Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2001, Blaðsíða 51
Þj ónustusetur líknarfélaga
flytur í nýtt húsnæði
Föstudaginn 2. mars síðastlið-
inn var gleðistund á 9. hæð
Hátúns lOb þegar tekið var í
notkun nýtt húsnæði Þjónustuseturs
líknarfélaga. Veðurguðirnir léku við
hvern sinn fingur og gættu þess að
menn gætu notið hins fagra útsýnis
sem ber fyrir augu úr gluggum set-
ursins. Þjónustusetur líknarfélaga
tók til starfa í febrúar 1999. Aðild
að því eiga Parkinsonsamtökin á
íslandi, Lauf, landsamtök áhuga-
fólks um flogaveiki, Sam-
tök sykursjúkra, Félag
nýrnasjúkra, Tourette-
samtökin á íslandi, Um-
sjónarfélag einhverfra og
Málbjörg, félag um stam.
Fyrst í stað var það til
húsa að Tryggvagötu 26.
En á síðasta ári var hús-
næðið selt. Leitaði stjórn
Þjónustusetursins því til
Hússjóðs Öryrkjabanda-
lagsins um leigu á hent-
ugu húsnæði. Þannig stóð
á að húsnæði var laust á 9.
hæð Hátúns lOb og var
þegar hafist handa við
endurbætur þess.
- Mér finnst eins og að nú séu fé-
lögin sem standa að þjónustusetrinu
loksins komin í heimahöfn, sagði
Jón Guðnason, ífamkvæmdastjóri
Þjónustusetursins þegar hann var
spurður um starfsemi setursins.
Dagspítali öldrunardeildar
Landspítalans var í þessu húsnæði
áður. Innréttingarnar voru teknar út
úr húsnæðinu, skipt um gólfefni og
gler og lagðir tölvukaplar. Þessar
framkvæmdir annaðist Hússjóður
Öryrkjabandalagsins og kunnum
við Önnu Ingvarsdóttur, fram-
kvæmdastjóra, miklar þakkir fyrir
einstaklega góða samvinnu og góð
ráð. Aftur á móti á þjónustusetrið
sjálft skilrúm sem notuð eru til þess
að afmarka rými félaganna.
Annars er þetta húsnæði opið. Hér
er gott fundarherbergi og hefur
hvert félag sinn litla bás, en að öðru
leyti er allt rými sameiginlegt. Þetta
samrýmist ágætlega þeirri hugsun
að hingað geti félagsmenn aðildar-
félaganna komið og fræðst um þá
kvilla sem við ijöllum hér um á
hverjum degi. Hérna erum við með
myndband og sjónvarpstæki og
talsvert efni á myndböndum.
Nýr þjónustufulltrúi
Ráðinn hefur verið sérstakur
starfsmaður, Anna Guðmundsdóttir,
til þess að sjá um þjónustu við þá
sem leita hingað. Hún mun einnig
annast um félagaskrár og jafnvel
bókhald fyrir félögin ef óskað er
eftir því.
Þá erum við að byggja upp sam-
eiginlegan gagnagrunn með upp-
lýsingum um þá sjúkdóma sem fé-
lögin íjalla um. Allur tölvubúnaður
félaganna er samtengdur og það á
því að vera auðvelt að leita þeirra
upplýsinga sem fólk þarf á að halda.
Hérna erum við með sítengingu
við Alnetið og því geta allir félags-
menn komið hingað og leitað sér
upplýsinga í þeim ótæmandi gagna-
grunni sem þar er. Markmið okkar
er að hjálpa félagsmönnum til þess
að afla sér fræðslu og styðja þá með
hvers konar hætti. Það hefur jafnvel
komið til tals að fitja upp á þjónustu
svipaðri þeirri sem Öryrkjabanda-
lagið er með og get ég nefnt í því
sambandi sálfræðiráðgjöf og þjón-
ustu djákna því að margt okkar fólk
hefur lent í miklum hremmingum
og þarf á aðstoð að halda.
Fleiri félög geta fengið aðild
Jón Jóhannsson, formaður stjórn-
ar þjónustusetursins sagði að setrið
væri byggt upp á frjálsri aðild félag-
anna. I lögum setursins er kveðið á
um að félög, sem segja sig úr setr-
inu, eigi ekki kröfúr til neinna eigna
setursins heldur gangi þær til þeirra
félaga sem eftir eru eða
þess félags sem ef til vill
komi í staðinn.
- Það er hægt að bæta
við einni skrifstofu eins
og er og hægt kannski að
samnýta það skrifstofu-
rými sem fyrir er. Ég get
nefnt sem dæmi að Mál-
björg kom til samstarfs
við okkur á meðan við
vorum niðri á Tryggva-
götu. Félagið fékk hjá
okkur fundaraðstöðu og
bæklingar frá því lágu
frammi. Við buðum þess
vegna Málbjörg að koma
til samstarfs við okkur
þegar við fluttum í þetta nýja hús-
næði.
setur@,vortex.is
Þeir félagar, Jón formaður og Jón
framkvæmdastjóri eru bjartsýnir á
framtíð Þjónustusetursins. Setrið er
nú komið á fost ijárlög en starfs-
menn þess og félagsmenn aðildar-
félaganna vinna auk þess ötullega
að frekari ljáröflun fyrir setrið. Á
vegum þjónustusetursins er félög-
unum veitt alhliða skrifstofuþjón-
usta og í framtíðinni sjá þeir félagar
fyrir sér útgáfuráðgjafa, starfsmann
sem sinni útgáfumálum fyrir félög-
in svo að kostnaður verði í lágmarki
og ekkert fé fari í súginn.
Öryrkjabandalag íslands óskar
þessum aðildarfélögum sinum
hjartanlega til hamingju með þessa
glæsilegu aðstöðu og fagnar því að
þau skuli komin í nágrennið.
A. H.
Frá opnun Þjónustuseturs líknarfélaga,
Hátúni lOb, 9. hæð.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
51