Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2001, Blaðsíða 40

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2001, Blaðsíða 40
YFIRLIT YFIR KÖNNUN Á VIÐHORFUM FORELDRA TIL STARFSEMI SAFA- MÝRARSKÓLA OG ÖSKJUHLÍÐARSKÓLA Fræðslumiðstöð Reykjavíkur fór haustið 1998 af stað með úttekt á sérkennslu. Hluti af þessari úttekt var könnun á viðhorf- um foreldra til Öskjuhlíðarskóla og Safamýrarskóla. Athugað var hvort þeir væru ánægðir með skólastarfið og af hverju þeir völdu þá leið að setja barnið sitt í sérskóla. Úrvinnslu og skýrslugerð annaðist Guðný Berg- þóra Tryggvadóttir. Aðrir höfundar voru Anna Ingeborg Pétursdóttir, Anna Lilja Sigurðardóttir, Arthúr Morthens og Kristín Jónsdóttir. Könnuninni var beint til foreldra barna í Öskjuhlíðarskóla og Safamýr- arskóla eða 89 barna í Öskjuhlíðar- skóla og 26 barna í Safamýrarskóla. í skýrslunni er greint frá viðhorfum foreldra eins og þau birtast í svörum þess hóps sem þátt tók í könnuninni. HELSTU NIÐURSTÖÐUR Hér verða helstu niðurstöður dregn- ar saman og hverri rannsóknar- spurningu svarað í stuttu máli. Þjónusta skólanna Foreldrar voru spurðir hversu ánægðir þeir væru með þá þjónustu sem börnin fá í sérskóla. Niðurstöð- urnar sýna að mikill meirihluti for- eldra barna í skólunum tveimur var ánægður með störf skólanna eða 92- 93% foreldra. Þegar spurt var um einstaka þætti kom í ljós að mikill meirihluti foreldra var ánægður með þjálfun í boðskiptum og tjáningu, þjálfun í athöfnum daglegs lífs, kennslu í bóklegum greinum þar sem það átti við, kennslu í listgreinum og þá líkamsþjálfun sem börnin fengu í skólunum. Meirihluti foreldra var ánægður með eftirlit og umönnun barnanna í skólunum, samskipti starfsfólks við börnin, samskipti barnanna við aðra nemendur, sam- skipti kennara og starfsfólks við for- eldra og upplýsingastreymi frá skóla. Enn fremur kom fram að mikill meirihluti foreldra taldi að börnunum liði vel í skólanum. Nokkrir foreldrar Helgi Hróðmarsson voru þó óánægðir með líkamsþjálfun barnanna í skólanum. Afstaða foreldra til skólaúrræða Leitað var eftir afstöðu foreldra til skólaúrræða þegar börnin hófu skóla- göngu sex ára gömul, hvort sem þau fóru í sérskóla eða almennan grunn- skóla. Fram kom að við upphaf skólagöngu voru tæp 60% foreldra barna í Öskjuhlíðarskóla hlynntari því að börn þeirra stunduðu nám í sérskóla heldur en í heimaskóla og um 75 % foreldra barna í Safamýrar- skóla. Athygli vekur að í 50% tilvika var foreldrum barna í Öskjuhlíðar- skóla boðið upp á eitt skólaúrræði og í 83% tilvika var foreldrum barna í Safamýrarskóla boðið upp á eitt skólaúrræði þegar skólaganga hófst. Mismunandi úrræði voru kynnt fyrir foreldrum í minnihluta tilvika eða 46% foreldra i Öskjuhlíðarskóla og í tveimur tilvikum fyrir foreldrum í Safamýrarskóla. Um 41% foreldra barna í Öskjuhlíðarskóla var boðin skólavist fyrir börn sín í heimaskóla eftir að kynning hafði farið fram og í einu tilviki var foreldri barns úr Safa- mýrarskóla boðin skólavist í heima- skóla. Frumkvæði Kannað var hverjir áttu frumkvæði að því að börnin fóru í sérskóla við upphaf skólagöngu eða fluttust úr al- mennum grunnskóla yfir í sérskóla. Algengast var að foreldrar barna í Öskjuhlíðarskóla og Safamýrarskóla hefðu sjálfir haft frumkvæði að því að börnin færu í sérskóla. Sérfræð- ingar virtust þó hafa veruleg áhrif á ákvörðun foreldra um skólagöngu barnanna eða í tæplega 70% tilvika hvað varðaði val foreldra í Öskju- hlíðarskóla og um 40% tilvika hvað varðaði val foreldra í Safamýrar- skóla. Meirihluti foreldra reyndist sáttur við þá ákvörðun að börn þeirra stunduðu nám í sérskóla og flestir töldu að sú ákvörðun hefði verið samkvæmt ósk og vilja þeirra. Skólafyrirkomulag Athugað var hvaða skólafyrirkomu- lag foreldrar veldu fyrir börn sín ef þeir ættu að velja í dag. Þegar for- eldrar voru spurðir um afstöðu sína til sérskóla í dag sögðu 75% foreldra barna í Öskjuhlíðarskóla og tæp 60% foreldra barna í Safamýrarskóla að þeir myndu velja nám í sérskóla og skóladagvist í tengslum við hann ef þeir ættu að velja skólaúrræði núna. Um 5% foreldra barna í Öskjuhliðar- skóla og 17% foreldra barna í Safa- mýrarskóla sögðust myndu velja nám í sérskóla en nýta þjónustu skóladag- vistar í heimaskóla. Hvor kosturinn betri? Athugað var hvort börnin hefðu stundað nám í almennum skóla og hvor kosturinn, almenni skólinn eða sérskólinn hefði betur komið til móts við þarfir þeirra. Foreldrar þeirra barna í Öskjuhlíðarskóla sem bæði höfðu stundað nám í almennum grunnskóla og í sérskóla töldu að líðan barnanna, félagsleg staða og námsárangur væri betri í sérskóla. Foreldrar barna í Safamýrarskóla töldu að félagsleg staða væri betri í sérskóla en líðan og námsárangur svipaður í báðum skólum. 40

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.