Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2001, Blaðsíða 29
Eyþór með föður sínum. Eyþór bíður eftir gerviauga.
40 stundir. Þannig verður nóg til
skiptanna.
Þeir sem aðhyllast gerviaugu úr
gleri hafa haldið því fram að akríl-
augu verði ekki eins slétt. Þetta er
ekki rétt því að akrílefnið er mun
sléttara og mýkra viðkomu. Með
tímanum myndast smáar agnir og
sprungur á glerungi gerviaugna úr
gleri. Þetta stafar af því að ákveðin
tegund sýkla ræðst á glerunginn.
Þetta er í rauninni svipað tann-
skemmd. Þá verður yfirborð augans
hrjúft og jafnvel beitt því að það er
eins og efsta glerlagið flagni af gervi-
auganu. Hins vegar hafa engir sýklar
lyst á akríl. Þess vegna endist það
mun lengur. Það þarf einungis að
skipta því út þegar breytingar hafa
orðið á augntóftinni. Ég sá einn mann
sem var með 40 ára gamalt gerviauga
úr akríl. Það var ekkert slitið en pass-
aði engan veginn. Það er ekkert óal-
gengt að ég fái menn sem ég smíðaði
í augu fyrir 15 árum og hafa aldrei
litið til mín síðan.
Vínandi eyðileggur
gerviaugu
- En nú sagðir þú greinarhöfundi
að það vœru komnar sprungur í
augun. Þetta þýðir með öðrum
orðum að þessi augu geti slitnað líka.
Þetta er aðeins á öðru gerviauganu
þínu. Það getur myndast ákveðin
spenna í efninu. Ég veit ekki hver
ástæðan er. Einu sinni fékk ég til mín
mann sem var með gerviauga. Það
var þéttsett sprungum. Þegar ég fór
að leita eftir skýringum á þessu
komst ég að því að hann sótthreinsaði
augað með vínanda, en vínandi eyði-
leggur akrílefnið.
- Hvernig eiga menn þá að hreinsa
augun?
Núna ráðlegg ég fólki að þrífa
augun eftir þörfum. Ef manni finnst
engin ástæða til þess að taka augað úr
þá má hann hafa það mánuðum
saman. Stundum fæ ég fólk til mín á
18 mánaða fresti, tek úr því augað,
fægi það og hreinsa og síðan er augað
ekki snert næstu 18 mánuðina.
Svo eru aðrir sem þurfa að taka úr
sér gerviaugað reglulega og þrífa
það. Þá mæli ég með að notaður sé
venjulegur uppþvottalögur. Það getur
einnig verið gott að skola gerviaugu
úr hreinu vatni. En ég mæli með upp-
þvottalegi vegna þess að hann leysir
upp fitu. Þú þarft ekki annað en að
steikja mat. Þá sérðu að það sest fitu-
brák á gleraugu. Hið sama á við
gerviaugun.
Gerviaugnaþegum
fer fækkandi
Hér á landi hefur orðið mjög gleði-
leg þróun. Sem dæmi get ég sagt þér
að ég hef nánast ekki fengið fólk til
mín sem hefur misst augu í bílslysi
eftir að notkun bílbelta var lögleidd.
Stundum þurftu menn ekki að vera á
nema 30 km hraða til þess að nrissa
jafnvel bæði augun. Þetta gerðist
þannig að fólk skall með ennið á
framrúðunni sem brotnaði. Þá
dreifðust glerbrotin um allt andlitið
og eyðilögðu jafnvel bæði augun.
Þá er nú bannað að starfa á ýmsum
vinnustöðum án þess að vera með
öryggisgleraugu. Þetta á einnig við
um gamlárskvöld. Sífellt fleiri nota
nú öryggisgleraugu þegar þeir skjóta
upp flugeldum.
Mig langar að segja þér eina sögu
af notkun öryggisgleraugna: Fyrir
nokkrum árum fór fjögurra manna
fjölskylda upp á veðurstofuhálendið,
eins og Jón Múli kallaði það hér um
árið til þess að horfa á flugeldana á
gamlárskvöld. Þá vildi svo illa til að
það lenti stór flugeldur á jörðinni á
milli þeirra og sprakk. Þau þurftu öll
að fara á slysavarðstofuna og voru
þar fram eftir nóttu í aðgerð. En aug-
un sluppu því að þau voru öll með
öryggisgleraugu. Það er ekki ósenni-
legt að öryggisgleraugun hafi komið
í veg fyrir augnskemmdir.
Nú eru læknar farnir að bjarga
augum sem ekki var reynt að bjarga
fyrir nokkrum árum. Menn missa nú
sjaldan augu vegna sýkinga og glák-
an var einn skaðvaldurinn hér áður
fyrr. En nú er þetta sem betur fer liðin
tíð. Fólk missir helst ekki augu.
Fjölskyldan
Stefán Baldursson er giftur Beatriz
Rós Hernandez sem er fædd á Phil-
ipseyjum. Þau eiga 7 ára gamla dótt-
ur, Maríu Rós.
Stelpan heitir eftir ömmu sinni á
Philipseyjum. Þær mæðgur eru úti í
Danmörku hjá mér. Konan mín
nrenntaði sig í ferðamálafræðum á
meðan við dvöldumst í Bretlandi og
vinnur nú sem markaðsfulltrúi hjá
eþíópíska flugfélaginu í Kaupmanna-
höfn. Dóttir okkar gengur í barna-
skóla sem er skammt frá heimili okk-
ar og fer þangað hjólandi. Það hefði
ekki þýtt að reyna í Bretlandi vegna
glæpa.
Konan hjólar einnig á hverjum
degi. Það er hins vegar of langt fyrir
mig að hjóla í vinnuna. Auðvitað
gæti ég hjólað í vinnuna en það er svo
algengt að ég þurfi að nota bílinn
vegna starfa minna.
A.H.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
29