Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2001, Síða 33
Útibúinu fagnað af aðstandcndum.
ÚTIBÚ
FRÁ
SLFÍ
HAFNAR-
FIRÐI
Rabbað við Vilmund
Gíslason um það og
fleira
Hinn 23. nóv. sl. var formlega
opnuð iðjuþjálfun á vegum
Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra í Hafnarfirði, nánar tiltekið
í íþróttahúsinu við Strandgötu. Við
Guðríður Olafsdóttir samglöddumst
fólki suður þar af þessu tilefni, en
athöfnin öll hin ánægjulegasta.
Ámi Þór Hilmarsson forstöðumaður
og tengiliður Hafnarijarðarbæjar í
málinu stjórnaði þessari athöfn.
Þórir Þorvarðarson formaður SLF
rakti sögu félagsins í stórum drátt-
um og minnti á hve mörgu hefði
verið vel á veg komið í áranna rás.
Vilmundur Gíslason framkvæmda-
stjóri SLF fór yfir tilurð útibúsins.
Magnús Gunnarsson bæjarstjóri í
Hafnarfirði fagnaði framtaki þessu
fyrir hönd bæjarins og íbúa þess.
Hrefna Óskarsdóttir yfiriðjuþjálfi
SLF sagði almennt frá iðjuþjálfun
og því um leið hvað þarna væri
fyrirhugað. Gissur Guðmundsson
frá Lionsklúbbnum fylgdi með
ávarpi gjöf klúbbsins til iðju-
þjálfunarinnar - fullkominni þjálf-
unartölvu að verðmæti rúmar 200
þús.
Þá undirrituðu þeir Magnús og
Vilmundur samninginn f.h. bæjarins
og SLF og uppskáru lófaklapp að
launum. Á eftir var svo kaffi-
drykkja í boði bæjarins.
f þessu tilefni tyllti undirritaður
sér niður hjá Vilmundi Gísla-
syni síðast í nóvember og fékk hjá
honum nokkra frekari fróðleiks-
mola.
I útibúinu starfa tveir iðjuþjálfar í
sem svarar einu og hálfu stöðugildi
- þær Anna Sigríður Jónsdóttir og
Helga Guðjónsdóttir og munu hafa
nóg að gjöra, því vitað er um 60
böm af Hafnarfjarðarsvæðinu sem
þurfa á þjónustu að halda, sum
þeirra á biðlista.
Það var raunar FABS - Foreldra og
aðstandendafélag barna með sér-
þarfir sem hafði knúið rösklega á
um úrlausn við SLF og Hafnar-
fjarðarbæ.
Áður hafði Anna Sigríður unnið
að þessu sem tilraunaverkefni hjá
heilsugæslunni í Hafnarfirði og má
segja að þar hafi kveikjan að þessu
verið.
Lengi var leitað að hentugu hús-
næði en það fékkst loks á afar
ákjósanlegan máta í íþróttahúsinu,
þar sem húsvarsla og þrif eru sam-
eiginleg með annarri starfsemi í
húsinu. Aðgengið þarna er einkar
gott og húsið mjög miðsvæðis.
Vilmundur segir að ákveðið hafi
verið að ráða starfsmenn með
reynslu í útibúið. Þetta útibú verður
til þess að SLF getur fullnýtt kvóta
sinn í iðjuþjálfún en húsnæðið að
Háaleitisbrautinni bauð ekki upp á
það. Nú hefði rn.a.s. verið auglýst
eftir iðjuþjálfa til viðbótar þeim sem
fyrir væru.
Þrátt fyrir það verður þörfinni
ekki fullnægt, þar þarf meira til
að koma. Vilmundur talar um 60
börn þarna, flest þeirra misþroska
börn með sértæka erfiðleika, börnin
sem mest urðu útundan áður, enda
er SLF eini aðilinn sem þessum
börnum sinnir, þó vissulega mætti
meira vera.
Vilmundur minnir þessu næst á
þjónustu þá sem Öskjuhlíðarskóla er
veitt, en ífá æfingastöð SLF fara 2
sjúkraþjálfarar og einn iðjuþjálfi í 3'/2
dag í viku hverri. Auðveldara er að
fara á staðinn, fleiri sem þessa njóta, þó
sumir nemendur hefðu örugglega
komið á Háaleitisbrautina.
Vilmundur segir frá því að Félags-
þjónusta Akureyrar hafi beðið SLF að
setja upp útibú nyrðra í iðjuþjálfun, það
mál sé í athugun. Greininguográðgjöf
sé unnt að sinna með fjarþjónustu, en
önnur þjónusta kalli að sjálfsögðu á
það að vera á staðnum. Ýmislegtfleira
bar á góma hjá okkur Vilmundi m.a.
sagði hann að í Kópavogi væri starf-
andi iðjuþjálfi í leik- og grunnskólum,
en ef þjónustu þar væri þörf, þá kæmi
viðkomandi á æfingastöð SLF.
En nóg sungið að sinni og héðan
færðar hamingjuóskir góðar vegna
aukinna umsvifa og útibúsins í
Hafnarfirði. Þama er vissulega gott
verk af hendi leyst til heilla fyrir svo
marga.
Helgi Seljan
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
33