Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2001, Qupperneq 36
Af stjórnarvettvangi
Frá aðalfundi ÖBÍ 2000.
Fundur var haldinn í stjórn Ör-
yrkjabandalagsins fimmtu-
daginn 14. des. sl. og hófst kl.
18.10 í fundarsal á Hótel Loftleiðum.
Mættir voru fulltrúar 22ja félaga.
Formaður setti fund og stjórnaði
honum og bað menn kynna sig hvað
menn gjörðu.
Bauð nýjan framkvæmdastjóra,
Arnþór Helgason, sérstaklega vel-
kominn til verka góðra.
Yfirlit formanns. Garðar formað-
ur fór þessu næst yfir helstu atriði
starfsins frá síðasta aðalstjórnarfundi.
Kynning og útsending ályktana aðal-
fundar hefði gengið ágætlega og
fengið umfjöllun fjölmiðla. Varðandi
starfsnefndir bandalagsins hefði
verið valin sú leið að tilnefna
ákveðna einstaklinga og þá um leið
hverjir forystu hefðu, en fólki síðan
frjálst að taka þátt í störfum nefnd-
anna, aðeins yrði það kynnt til skrif-
stofúnnar svo unnt yrði að boða á
fundi. Forysta starfsnefnda þessi:
Atvinnumálanefnd: Sigurður Björns-
son. Búsetunefnd: Arnór Pétursson.
Félagsmálanefnd: Guðríður Ólafs-
dóttir. Kjaramálanefnd: Gísli Helga-
son. Menntamálanefnd: Ólafur H.
Sigurjónsson. Þá gat Garðar um um-
sagnir bandalagsins um þingmál,
frumvörp sem tillögur. í umsögn um
skattamál hefði gefist kostur á að
koma á framfæri kjaraatriðum ör-
yrkja almennt. Einnig hefðu verið
ágætir fundir með þingnefndum þar
sem málflutningur ÖBÍ hefði skilað
sér vel m.a. um skattamál og Fram-
kvæmdasjóð fatlaðra.
Garðar greindi frá því að Friðrik
Alexandersson hefði setið í
nefnd menntamálaráðuneytis um
skipan fullorðinsfræðslu fatlaðra af
hálfu Öryrkjabandalagsins. Sú nefnd
hefði niðurstöðu skilað og í framhaldi
af því hefði ráðuneytið óskað til-
nefningar í nýja nefnd sem semja
skyldi drög að skipulagsskrá sjálfs-
eignarstofnunar sem sinna skyldi
fullorðinsfræðslunni. Friðrik til-
nefndur í þá nefnd. Þá gat Garðar um
aðalfund íslenskrar getspár í nóvem-
ber þar sem afkoman hefði verið
kynnt, en hún væri í heildina góð. Þá
fór Garðar yfir nauðsyn þess að Ör-
yrkjabandalagið ætti fulla aðild að
DPI - Disabled People's Internati-
onal. Helgi Hróðmarsson væri nú að
svara ýmsum þeim spurnum sem
svara yrði, svo aðild íslands yrði full-
tryggð strax á næsta ári. Garðar las
því næst upp bréf MS-félagsins um
viðræður við ÖBÍ um inngöngu í
bandalagið á ný. Las einnig svarbréf
ÖBÍ þar sem erindinu var fagnað,
engin krafa gjörð um viðræður, að-
eins formlegrar inngöngubeiðni
óskað, en hún enn ekki borist. Þá vék
Garðar að framkvæmdastjóraskiptun-
um. Áfram myndi Helgi Seljan sitja í
stjórnarnefnd um málefni fatlaðra,
koma eitthvað að Fréttabréfinu, vera
fulltrúi MG félagsins í aðalstjórn
ÖBI, en sem þakklætisvott fyrir starf
framkvæmdastjóra færði hann Helga
frá bandalaginu forkunnarfagran
ágrafinn hrafntinnustein með klukku
og pennastatívum sem Helgi þakkaði
vel. Arnþór Helgason kvað ósk um
að setjast í stól framkvæmdastjóra
hafa komið sér gjörsamlega í opna
skjöldu. Nýir siðir kæmu með nýjum
mönnum, en skarð Helga vandfyllt.
Hann kvað nýja starfið tilhlökkunar-
eíni og hét því að gjöra sitt besta og
treysti því að allir leggðu lið til allra
góðra verka.
2. Viljayfirlýsing félagsmála-
ráðuneytis og Hússjóðs Öryrkja-
bandalagsins. Það var Emil Thór-
oddsen varaformaður bandalagsins
og fulltrúi i stjórn Hússjóðs sem
framsögu hafði. Þetta er yfirlýsing
um samstarfssamning um afar viða-
mikið verkefni en spennandi um leið.
Hússjóður byggir sambýli og sér-
hæfðar íbúðir, en félagsmálaráðu-
neytið ábyrgist rekstur. Aðalhug-
myndin um 5 ára verkefni upp á
1200-1500 milljónir væri klár, en
nánari útfærsla og tímaáætlun eftir.
Málfríður Gunnarsdóttir spurðist
fyrir um biðlista hér annars vegar og
þá e.t.v. ónýtt húsrúm á landsbyggð-
inni hins vegar. Helgi svaraði þessu
og kvað biðlista nær eingöngu vera í
Reykjavík og á Reykjanesi - Vestur-
land eitt með óskir um viðbót þar
fyrir utan. Garðar upplýsti að banda-
lagið hygðist láta fram fara könnun
meðal aðildarfélaga sinna um fólk
vistað á sjúkrastofnunum við óvið-
unandi aðstæður og það svo kannað
við Hússjóð hversu úr mætti bæta.
3. Djáknaþjónustan. Helgi
Seljan hafði stutta framsögu um mál-
ið. Kvað reynsluna af starfi djákn-
ans, sem væri auk þess sjúkraliði með
háskólamenntun í sálarfræði, af-
bragðsgóða og full ástæða til fram-
halds. Skýrði frá viðræðum sínum
við Karl Sigurbjörnsson biskup um
aðkomu kirkjunnar að þjónustunni á
móti Öryrkjabandalaginu. Biskup
tekið því afar vel og formlegt erindi
bandalagsins þar um biði nú svars.
4. Önnur mál. Sigurrós M. Sigur-
36