Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2001, Side 38
Af vettvangi
stjórnarnefndar
Stjórnarnefnd um málefni fatl-
aðra hefur starfað lögum sam-
kvæmt sem slík frá ársbyrjun
1984, en frá 1980 til þess tíma hét
hún stjórnarnefnd um málefni
þroskaheftra og öryrkja. Nefndin er
því í raun komin á þrítugsaldurinn og
hefur sannarlega að mörgu komið í
gegnum tíðina. Nefndin á að vera
stefnumótandi um málefni fatlaðra og
hefur svo sem komið þar að en hvergi
nærri eins og þurft hefði, þannig að
aðalverkefni hennar þessi starfsár
hefur verið úthlutun fjár til hinna
margvíslegustu verkefna, en Fram-
kvæmdasjóður fatlaðra er í umsjón
hennar.
Þó verkefnin hafi vissulega verið
mörg þá er nú raunin samt sú að aðal-
ljármagnið hefur hverju sinni runnið
til byggingar eða kaupa á heimilum
fyrir fatlaða, mest til sambýla fyrir
þroskahefta þó. Skal i þessum stutta
pistli ekki farið út í einstök verkefni
en nefna má húsnæði fyrir skamm-
tímavistanir, áfangaheimili, vinnu-
staði, aðgengismál og sérstaka styrki
til byggingar íbúða. Eins hafa einstök
félög fatlaðra fengið oft góða styrki
til aðstöðusköpunar fyrir sitt fólk.
Síðari árin hefur vandamálið verið
það að Alþingi hefur mjög verulega
skert lögboðin framlög til sjóðsins og
bæði í fyrra og í ár nemur skerðing
framlaga meira en helmingi af því
sem vera ætti. Nýgerður samningur
Hússjóðs Öryrkjabandalagsins við
félagsmálaráðuneytið um stórátak í
húsnæðismálum er fagnaðarefni, en í
raun er aðeins verið að draga þessi
málefni að landi vegna þess stórfellda
niðurskurðar sem framkvæmdur hef-
ur verið um árabil og aldrei meira en
nú. En ekki orð um það meir.
í stjórnarnefnd hafa alltaf átt sæti
fulltrúar Öryrkjabandalagsins og
Þroskahjálpar svo og sveitarfélag-
anna og félagsmálaráðuneytis, fram
til 1993 áttu menntamálaráðuneyti og
heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti
einnig fulltrúa, en frá þeim tíma hefur
formaður íjárlaganefndar Alþingis átt
þar sæti svo og annar fulltrúi félags-
málaráðuneytis.
Gréta Sjöfn
Guðmundsdóttir
Helgi
Seljan
Ekki hefur verið mikið um manna-
skipti í nefndinni af hálfu hagsmuna-
samtakanna og þannig hefur Jón
Sævar Alfonsson setið allan tímann
af hálfu Þroskahjálpar, undirritaður
öll árin utan fjögur og Asgerður Ingi-
marsdóttir, Ólöf Ríkarðsdóttir og
Hafdís Hannesdóttir allmörg ár einn-
ig, þar sem samtökin áttu lengi
sameiginlega þrjá fulltrúa í nefndinni.
Þá má einnig geta þess að Margrét
Margeirsdóttir, deildarstjóri málefna
fatlaðra í félagsmálaráðuneytinu,
starfaði með nefndinni frá upphafi og
til ársins 2000 auk þess að vera um
skeið formaður stjórnarnefndarinnar.
Norðurland vestra
sótt heim
Stjórnarnefndin hefur að mínum
dómi fylgst allvel með framvindu
mála hvarvetna á landinu og hefur
víða á vettvangi verið og gleðilega oft
fengið tækifæri til að gleðjast yfir
nýjum áfangasigrum. Á janúardegi
nú, mildum og björtum var farið í
eina slíka heimsókn til Norðurlands
vestra til þess fyrst og fremst að
samfagna heimamönnum með nýja
og vel búna skammtimavistun á
Sauðárkróki, en Hvammstangi sóttur
heim í leiðinni. Ráðherra félagsmála
var þarna einnig mættur á báða staði,
enda Norðurland vestra hans kjör-
dæmi svo sem kunnugt er. Nánar til-
tekið var þetta hinn 29. janúar sl. Um
málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra
er í gildi sérstakur þjónustusamning-
ur milli félagsmálaráðuneytis og
Byggðasamlags Norðurlands vestra
um heildarþjónustu við fatlaða á
svæðinu í samræmi við lagastoð í
lögunum um málefni fatlaðra og þyk-
ir hafa gefist mjög vel, enda óhætt að
segja að allvel sé fyrir fjármagni séð i
samningnum. Það er líka skoðun und-
irritaðs að af miklum metnaði og
fyrirhyggju sé unnið að þessum mál-
um af hálfu heimamanna.
Af þessu tilefni átti undirritaður hið
ágætasta samtal við Grétu Sjöfn Guð-
mundsdóttur sem er framkvæmda-
stjóri þjónustuhóps þess er um mála-
flokkinn sér á vegum byggðasam-
lagsins, en hana hittum við bæði á
Hvammstanga og Sauðárkróki svo og
þau Elínu R. Líndal, formann
byggðasamlagsins og Bjarna Þór Ein-
arsson, framkvæmdastjóra þess.
Eins og lesendur e.t.v. muna eftir þá
var jörðin Gauksmýri á sínum tíma
keypt undir sambýli sem svo var þar í
nokkur ár, en gekk ekki sem skyldi og
kom ekki okkur á óvart sem höfðum
verið í nokkurri andstöðu við þessa
gjörð. Þá voru tvö raðhús leigð af
sveitarfélaginu undir starfsemina og
þar eru nú rými fyrir 5 einstaklinga,
en þröngt er um hvern og einn og
þess vegna uppi hugmyndir heima-
manna að breyta og bæta og stækka
heildarrými, svo vistlegra og heimil-
islegra verði fyrir hvern og einn. Um
þessa framkvæmd snerist fundur á
Hvammstanga en skv. samningnum
er til fjármagn til þessara breytinga
og tók ráðherra mjög jákvætt á því
sem og aðrir þeir sem að úthlutun
koma, svo efalaust verður í þessa
framkvæmd ráðist. Verður hún hin
þarfasta og m.a. eru uppi hugmyndir
að nýta eitt einkarýmið eftir breyting-
una í skammtímavist ef svo ber undir.
Á Hvammstanga er einnig iðja starf-
rækt fyrir þá sem á sambýlinu búa.
Ný skammtímavist
á Sauðárkróki
Frá Hvammstanga var svo haldið á
Sauðárkrók þar sem verið var að taka
í notkun nýja skammtímavist þar sem
áður var sambýli, en þaðan hafa íbú-
amir flutt í sjálfstæða búsetu að und-
anförnu. Þarna var fjölmenni saman-
komið og góðar og veglegar veitingar
á boðstólum. Elín R. Líndal stjórnaði
stuttri en ágætri athöfn, þar sem ráð-
herrann, Páll Pétursson, fór nokkuð
yfir þróunina á Norðurlandi vestra og
kvað þar einkar vel að öllu unnið.
Sömuleiðis minnti hann á fyrirliggj-
andi frumvarp um félagsþjónustu
sveitarfélaga og kvað óvíst um
endanlega gildistöku, en það væri
framtíðin að færa málefni fatlaðra
alfarið til sveitarfélaganna. Hann bað
38