Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2001, Side 45
«91
m
iSKiianuiff
mmniii
Frá opnun að Sléttuvegi 9.
Hluti boðsgesta.
NÝTT FJÖLBÝLISHÚS OG RAÐHÚS
VIÐ SLÉTTUVEG 9 í REYKJAVÍK
Laugardaginn 17. febrúar var tekið í notkun nýtt ijöl-
býlishús Hússjóðs Öryrkjabandalagsins að Sléttuvegi 9 í
Reykjavík. Hafði það verið 2 ár í byggingu en Tómas
Helgason, fyrrum formaður Hússjóðs, tók fyrstu
skóflustungu þess 20. mars 1999.
Teiknistofan Óðinstorgi sá um hönnun hússins sem er
alls 2.778 fm. 4 íbúðarhæðir og kjallari ásamt bíla-
geymslu sem er undir garði hússins.
Húsið er allt hið glæsilegasta og hannað með þarfir
fatlaðra í huga. íbúðirnar eru 27, 11 einstaklingsíbúðir,
stærð 47 fm., 6 tveggja herb. íbúðir stærð 70 fm. og 6
3ja herb. íbúðir 91 fm.. Einnig eru 3 raðhús sambyggð
aðalhúsinu og hafa 2 þeirra verið seld.
Fyrsti áfangi
Hússjóðs
og félagsmálaráðunevtisins
Við opnunarathöfnina afhenti formaður Hússjóðs,
Helgi Hjörvar, Páli Péturssyni, félagsmálaráðherra, lykla
að þriðju hæð hússins en þar mun Svæðisskrifstofa
Reykjavíkur reka íbúðasambýli fyrir skjólstæðinga sína.
Er það fyrsti áfangi samkomulags sem Hússjóður
Öryrkjabandalagsins og félagsmálaráðuneytið gerðu
með sér um síðustu áramót um byggingu sambýla.
Næsta verkefni Hússjóðs samkvæmt samningnum
verður bygging tveggja sérhæfðra sambýla í Reykjavík.
Hlerað í hornum
Tveir vinir fóru í leikhús saman, en
báðir voru annálaðir kappsmenn við
vinnu. Að loknum öðrum þætti segir
annar þeirra: “Ja, nú er best að drífa
sig í múrverkið”. “Hvaða vitleysa”,
segir hinn þá. “Þriðji þátturinn er eft-
ir”. “Eins og ég viti það ekki en í
leikskránni segir að hann gerist ekki
fyrr en sex mánuðum síðar”.
Símahlerun var algeng í sveita-
símanum á árum áður. Tveir bændur
töluðu saman í símann og barst tal
þeirra að kerlingu einni í sveitinni
sem altalað var að lægi á línunni. “Já,
það er víst vissara að tala ekki of
mikið því hún Gudda gamla er
ábyggilega að hlusta”. Þá gellur við í
símanum: “Það er bölvuð lýgi að ég
liggi á línunni og baknagið þið mig
bara áfram ef þið þorið”.
Kerling ein fékk sér taminn hrafn og
undruðust menn þetta háttalag mjög
þar sem kerla hafði orð á sér fyrir
annað en að vera dýravinur. Hún var
spurð um ástæðuna og svaraði þá að
bragði: “Eg las það um daginn að
hrafnar gætu orðið 100 ára og mig
langar bara til að sannreyna það”.
***
Prófessorinn var afar utan við sig.
Eitt sinn bauð hann vini sínum heim
og tíndi til matfong handa þeim. En
svo sagðist hann ætla að bregða sér
fram í eldhús til að sjóða þeim egg.
Svo leið og beið og vinurinn fór að gá
að prófessornum. Hann stóð þá á
miðju gólfi með egg í höndum en
úrið sauð í pottinum.
Prestur og Jón bóndi höfðu lengi átt í
illdeilum. í einni messunni varð
klerki á mismæli svo hann sagði:
“Elska skaltu nágranna þinn eins og
sjálfan þig”. Eftir messu þakkaði Jón
presti innilega fyrir hugarfars-
breytinguna en þá sagði prestur:
“Mér urðu á mismæli, það væri brot á
boðorðum drottins að sýna nágranna
sínum nokkra miskunn, en náunginn
er nú sjaldnast svo nærri að hann
flækist fyrir manni”.
Ungur eiginmaður kom inn í verslun
eina fýrir jólin og vildi fá jólagjöf
handa konu sinni, “en hún verður að
vera sérstaklega mjúk”. Kaupmaður
spurði hvers vegna og þá sagði mað-
urinn: “Ef ég skyldi nú fá hana aftur
í hausinn þá væri ansi mikið betra að
hún rotaði mig ekki”.
Dóttirin: “Þú verður að kaupa mér
fallegri kjól en þennan, sem ég er í.
Hann er sko ekki “móðins” lengur”.
Faðirinn: “Ekki gekk hún móðir þín
eins vel klædd og þú ert núna, áður
en hún giftist”. “Það getur verið, en
hún náði nú líka bara í þig”.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
45