Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2001, Blaðsíða 49
skilnings og kynnast reynslu annarra.
Þannig fundir verða væntanlega
haldnir nú í lok mars og apríl. Ásamt
leikfimi- og sundtímum fyrir mis-
þroska börn hjá íþróttafélagi fatlaðra
eru þessir fundir úrvalsfæri á að ræða
málin, blása út og fræðast hvert af
öðru.
Þann 11. október fengum við Gylfa
Jón Gylfason sálfræðing og kennara
til að halda fyrirlestur um efnið
Ofvirkni, hvatvísi og athyglisbrest-
ur, hvernig hjálpum við börnunum
best? Gylfi hélt hörkugóðan fyrir-
lestur og var mæting afar góð. Kristín
vann góða samantekt um þennan fyr-
irlestur í janúartölublaði íféttabréfs
okkar.
Af fréttabréfinu komu út þrjú tölu-
blöð á árinu og er upplagið nú komið
í 1.500 eintök. Einnig var gefið út
nýtt og endurskoðað upplag af kynn-
ingarbæklingnum Glímir barnið
við.... Hann er reyndar líka að finna
á netinu hjá netdoktor.is.
Eirðarnámskeið fyrir foreldra var
haldið um miðjan október í húsi ÖBI.
Þar mættu óvenjufáir eða um 35
manns en námskeiðið var engu að
síður vel heppnað faglega séð.
I byrjun nýs árs fréttum við að
Svanhildur Svavarsdóttir, talmeina-
og boðskiptafræðingur og einhverfu-
ráðgjafi, yrði á landinu í lok janúar
og okkur tókst að fá hana til að halda
fyrirlestur hjá félaginu í lok janúar.
Hún vann lengi með misþroska börn
áður en hún snéri sér í auknum mæli
að einhverfum börnum og hvarf svo
til náms og starfa í Bandaríkjunum.
Á árinu fundaði stjórnin 9 sinnum
og eru það alltaf góðir fundir. Þar er
auðvitað lögð áhersla á starfsemi
félagsins en ekki eru þeir síður góður
vettvangur stjórnarfólks til umræðna
og gagnkvæmrar fræðslu og á grund-
velli þessa koma oft fram tillögur að
umljöllunarefni á fyrirlestrum eða
greinum í fréttabréfinu.
Upplýsinga- og fræðsluþjónustan
að Laugavegi 178, 2. hæð, er opin tvo
tíma á dag alla virka daga tíu mánuði
ársins og mikið er sótt þangað, bæði
af foreldrum og fagfólki. Það er þó
áberandi hvað foreldrar hringja
frekar á meðan t.d. nemendur KHÍ
eða leik- og grunnskólakennarar
koma til að kynna sér bækur, mynd-
bönd og annað efni. Félagið á t.d.
mjög gott úrklippusafn sem hægt er
að sækja mikinn fróðleik í. Alls
hringdu eða komu í heimsókn á árinu
hátt í 900 manns.
FFMB er aðili að Öryrkjabandalagi
íslands og sækir þangað bæði stuðn-
ing og fræðslu. Stjórn félagsins hefur
stutt ÖBI heils hugar í baráttu þess
íyrir bættum kjörum öryrkja en óum-
deilt er að mörg af börnum okkar
falla um skamma eða langa hríð und-
ir þá skilgreiningu.
Nú á næstunni verður opnuð heima-
síða félagsins. Gaman verður að sjá
hvernig til tekst. Frá þessu verður
nánar sagt í næsta fréttabréfi, auk
þess sem heimasíðan verður væntan-
lega vel kynnt í dagblöðum, í blaði
ÖBÍ og víðar. Þar fæst góður vett-
vangur til kynningar á félaginu og
baráttumálum þess.
Að lokum viljum við hvetja félaga
okkar til að hafa samband við skrif-
stofu félagsins og láta í sér heyra um
hvaðeina það sem því finnst félagið
geta gert, tillögur að fyrirlesurum og
fleira.
F.h. stjórnar FFMB,
Matthías Kristiansen.
Hlerað í hornum
Bóndi nokkur tók klerk sinn tali á
hörðu vori og sagðist halda að and-
skotinn væri farinn að stjórna tíðar-
farinu. Þá sagði klerkur með hægð:
“Ja, ekki kæmi það mér á óvart, svo
lengi er ég nú búinn að vara við
honum”.
Kona ein hljóp beint í fangið á presti
einum og varð mikið um og hrópaði
upp: “Ó, Jesús minn”. Þá sagði
prestur: “Ekki er þetta nú hann, en
við vinnum reyndar hjá sama fyrir-
tæki”.
Eiginmaðurinn var með afbrigðum
nískur. Þegar eiginkonan keypti tvo
happdrættismiða á basar varð hann
alveg bálreiður og hvæsti: “Ertu vit-
laus kona að kaupa tvo miða þegar
það er bara einn aðalvinningur”.
***
Það var á þeim tíma þegar Super
Corega töflurnar voru sem vinsæl-
astar, en þær notaði fólk með falskar
tennur til að setja út í vatn á kvöldin
og lét gómana liggja í glasinu yfir
nóttina svo þær urðu skjannahvítar að
morgni. Dóttir hjónanna á bænum
var að reyna að sofna en móðirin
kallaði sífellt til föðurins að það
þyrfti að kaupa “kúrekatöflur”, því
þær væru búnar. Þeirri litlu leiddist
þetta og kallaði: “Mamma, mundu
eftir að setja gómana í sitthvort glas-
ið, svo þeir haldi ekki áfram að tala í
alla nótt”.
Tvær konur voru í stórverslun og það
var mikil örtröð við kassana. Þær
fóru að svipast um eftir kassa þar sem
biðin væri minnst og allt í einu kallar
önnur: “Komum hingað. Mér líst
best á þennan”. Þegar þær komu svo
að kassanum þá brosti maðurinn sem
næstur var í röðinni fyrir framan
breitt til þeirra sem kallað hafði og
sagði: “Þetta er nú það fallegasta
sem sagt hefur verið við mig í dag”.
***
Maður einn illa til reika og grút-
skítugur kom inn í anddyri hótels og
spurði afgreiðslumanninn hvar hann
gæti kastað af sér vatni. Afgreiðslu-
maðurinn sagði: “Farðu þarna inn til
hægri og þá eru þar dyr sem á stend-
ur: Gentlemen og láttu svo bara eins
og þú sjáir það ekki”.
KÖNNUN Á HÖGUM BARNA MEÐ
ATHYGLISBREST MEÐ OFVIRKNI
í febrúar fékk nokkur hópur félaga í Foreldrafélagi misþroska barna
með börn á ákveðnum aldri senda könnun sem er hluti af meistaraprófs-
rannsókn Jónínu Sæmundsdóttur á aðstæðum foreldra barna með
athyglisbrest / ofvirkni og stuðningi við þau. Margir foreldrar hafa
brugðist vel við, fyllt út listann og sent til baka. Þeim eru færðar bestu
þakkir fyrir þátttökuna.
Það er mjög mikilvægt að sem flestir svari svo rannsóknin takist sem
best. Ef einhver hefur enn ekki haft tækifæri til að svara listanum er sá
hinn sami hvattur til að gera það sem fyrst og senda hann til baka. Ef
spumingalistinn hefur glatast eða skemmst er hægt að hafa samband við
skrifstofu Foreldrafélags misþroska barna og fá sendan nýjan lista.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
49