Bændablaðið - 20.05.2020, Qupperneq 7

Bændablaðið - 20.05.2020, Qupperneq 7
Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 2020 7 Það hefur heldur betur verið líf og fjör í Grobbholti liðna daga, en þangað hafa leik- og grunnskólabörn af Húsavík ásamt öðrum góðum gestum komið og litið á litlu lömbin sem þar skoppa nú um að minnsta kosti bráðum grænar grundir. Grobbholt er skammt ofan Húsavíkur og þar stunda fjórir félagar úr bænum frístundabúskap af miklum móð. Fyrir hópnum fer Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar, stéttarfélags. „Við erum með um 40 kindur í Grobbholti og búskapurinn hjá okkur gengur vel. Sauðburður hefur sömuleiðis gengið vel og þó nokkuð komið af lömbum,“ segir hann. Leikskóla- og grunnskólabörn koma gjarn- an við í fjárhúsunum og hafa gaman af að berja ungviðið augum. Sá háttur hefur verið hafður á um nokkurra ára skeið og hafa Aðalsteinn og félagar gert hvað þeir geta til að taka vel á móti börnunum. Þeir hafa bætt við sig dýrum, eru með dúfur, hænu og kanínu svo börnin hafa nóg við að vera í heimsókn sinni í Grobbholt – sem Aðalsteinn segir að sumir hverjir vilji kalla Stóra-Grobbholt og þykir réttnefni. „Fólk hér um slóðir segir stundum að sumarið sé komið þegar búið er að líta við hjá okkur og heilsa upp á lömbin,“ segir Aðalsteinn. /MÞÞ LÍF&STARF M ikið sem góðar vísur geta glatt. Sigurð Hansen bónda, skáld og fræðimann á Kringlumýri í Skagafirði, þarf ekki sérstaklega að kynna hér, en færri vita hygg ég af einstakri gjaf- mildi hans. Staðarhaldarinn í Húnaveri, Davíð, sem er bankhagur í betra lagi, hefur verið við smíðar hjá Sigurði Hansen. Þar sem Davíð er nágranni Einars Kolbeinssonar í Bólstaðarhlíð, þá þekkir hann nokkuð til búsmala hjá Einari, og gat upplýst að eggandastofn Einars væri án steggs, og því lítil tímgunarvon þar á bæ. Sigurður bjó vel að steggjum, og var í þann veg að grisja hjá sér stofninn. Af mildi sinni ákveður því Sigurður að biðja Davíð smið að færa Einari einn andarstegg þá hann færi heim um kvöldið. Féútlát hefði Einar engin utan þau að launa sér stegginn með vísu. Davíð færir svo Einari stegginn. Verður hann „fjöðrum“ feginn, og byrjar strax að hamra saman bragarlaunin. Einari farast svo aðfaraorð að vísunni: Góðvinur minn, Sigurður Hansen bóndi, sem býr öfugum megin Vatnsskarðs, færði mér andarstegg, sem bjargaðist þannig frá Kakalaöxinni og varanlegum aðskilnaði búks og höfuðs. Nú tjóir ekki að nískast neitt og greiða strax umbeðið andvirði: Stóran prýðir stegginn flest, stél og eðlið trygga, ég held samt að mér hugnist best hvað hann er líkur Sigga. Um leið og Sigurður sér vísuna frá Einari sprettur þakkarvísan fram í muna hans: Þó að mér sæki aldurshregg engu þarf að kvíða, ef ég minni á ungan stegg sem ætlar að fara að…. . En víkjum frá viðskiptum Sigurðar á Kringlumýri og Einars í Bólstaðarhlíð. Næsta vísa er sögð svarfdælsk, en ekki lánaðist mér að finna henni höfund. Að morgni brúðkaupsdags hugðist hinn nývígði brúðgumi færa brúði sinni þakk lætisvott fyrir þægilega samveru um nóttina. Það taldi hann best gert með því að færa henni á rúmstokkinn þetta kostulega vísukorn: Drottinn gefi þér góðan dag og gleðilegan viðskilnað, sóma vafin silkihlín Sigurbjörg, elsku konan mín. Þessi dægrin eru víða lausir kjarasamningar hjá vinnandi stéttum. Aldrei hefur þó þurft að kalla ríkissáttasemjara til þegar þing- fararkaup er hækkað. Um miðja síðustu öld hækkuðu þingmenn laun sín ágrein- ingslaust. Þá orti Egill Jónasson á Húsavík: Þingmannskaupið þarf að hækka að þeirra dómi tíma hvurn. Mér finnst að það mætti lækka og miða það við eftirspurn. Þegar Guðbergur Bergsson hlaut „Silfurhestinn“ fyrir ritverk sitt, Ástir sam- lyndra hjóna, þá orti Þórey Jónsdóttir á Akranesi: Horbikkjuna höndlað fékk, - hún er talin mikið þing, en kímnigáfa kappans hékk á klámi, bulli og svívirðing. Finnbogi hét maður Kristófersson og bjó í Galtarholti á Mýrum. Finnboga vantaði vinnumann eitt harðindavorið. Hitti hann mann, sem hann þekkti, á förnum vegi og sagði við hann: Nú er svalt - ég býst við byl, bana er allt í skolti. Er það falt þú fáist til að fara að Galtarholti? Einhverju sinni var Finnbogi á ferð með séra Einari Friðgeirssyni á Borg. Er þeir kvöddust kvað Finnbogi: Mér í hjarta svíður sorg sviknra æskuvona. En þér á móti brosir Borg, börnin fimm og kona. Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com 250MÆLT AF MUNNI FRAM Leik- og grunnskólabörn af Húsavík ásamt öðrum góðum gestum í heimsókn í Grobbholti. Myndir / Aðalsteinn Árni Baldursson Líf og fjör í Grobbholti við Húsavík Aðalstein Árni Baldursson, frístundabóndi og fromaður verkalýðsfélagsins Framsýnar, er ólatur við að sýna börnunum kindurnar sínar. Kristín Þorvaldsdóttir var í skoðunarferð í Grobbholt og er hér með fallega kanínu í fanginu. Þetta var gaman. Jón Halldór Guðmundsson, hvergi smeykur með myndarlega landnámshænu á höfðinu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.