Bændablaðið - 20.05.2020, Side 13

Bændablaðið - 20.05.2020, Side 13
Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 2020 13 Atvinnuleysi í Svalbarðs­ strandar hreppi samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun var 4,3% í mars síðastliðnum og áætlað atvinnuleysi í apríl er 8,4%. Til samanburðar var atvinnuleysi í mars í fyrra 1,27% og 0,96% í apríl. Á fundi sveitarstjórnar á dögunum var lagt fram minn- isblað frá sveitarstjóra, m.a. með tillögum um viðspyrnu- aðgerðir sveitarfélagsins vegna COVID-19 faraldursins. Þá hafa verið teknar saman upp- lýsingar um breytingar á rekstri sveitarfélagsins sem geta orðið til lækkunar á útsvari, fasteigna- gjöldum og samdrætti í úthlutun Jöfnunarsjóðs. Þrjár sviðsmynd- ir liggja fyrir en sú svartsýnasta gerir ráð fyrir 15% samdrætti í útsvari og öðrum tekjum og 10% samdrætti í fasteignagjöldum og framlagi Jöfnunarsjóðs, eða alls 60 milljónum króna. Stefnt er þó að því að útkoman verði hag- stæðari, eða að samdráttur nemi um 30 milljónum króna. Lágar langtímaskuldir Svalbarðsstrandarhreppur er ágætlega í stakk búinn til að takast á við efnahagslegt áfall sem hlýst af faraldrinum. Langtímaskuldir sveitarfélags- ins eru um 12 milljónir króna. Í fundargerð kemur fram að mik- ilvægt sé að vernda heimili og fyrirtæki eins og kostur er og hlúa að íbúum sveitarfélagsins, velferð þeirra og andlegri líðan. Sveitarstjórnin hefur því sett saman tíu aðgerðir sem felast annars vegar í áskorun til ríkis- ins um sértækar aðgerðir og hins vegar um vernd og viðspyrnu sveitarfélagsins fyrir starfsemi sína, íbúa og rekstraraðila. Velferðarþjónusta efld Hvað sértækar aðgerðir varðar er skorað á ríkisvald að koma með sveitarfélögum í stærri verkefni eins og fráveitu, styðja við upp- byggingu innviða sem nýtast bæði íbúum og ferðamönnum, eins og t.d. lagning göngu- og hjólastíga, áningastaða og gönguleiðir. Svalbarðsstrandahreppur hefur frestað allt að þremur gjalddög- um fasteignagjalda á íbúða- og atvinnuhúsnæði, gjöld í leikskóla hafa verið lækkuð í samræmi við notkun þjónustu og áfram verður matur í leik- og grunnskóla ókeypis. Efla á velferðarþjónustu og byggja upp gönguleiðir bæði innan og utan þéttbýlis á Svalbarðsströnd. Framkvæmdir við leik- og grunnskóla Þá má nefna að farið verður í viðhalds- framkvæmdir, m.a. á húsnæði Valsársskóla og við leikskólann Álfaborg og einnig við útisvæði skólanna. Útistofa verður sett upp við báða skólana. Þá verður hugað að umhverfi tjarna við vita og Tjarnartún og það lagað. Réttin verður endurnýjuð sem og fjall- girðing. Verkefni fyrir sumarstarfsmenn verða m.a. við að eyða kerfli, setja upp bekki og palla og minni áningarstaði fyrir göngufólk. /MÞÞ ÓSKARSGATA 7 • 580 SIGLUFJÖRÐUR SÍMI: 460 6900 • INFO@PRIMEX.IS • WWW.CHITOCARE.IS H U GV IT HRÁEFN I H R E I N L E IK I bl ek ho nn un .is bl ek ho nn un .is Svalbarðsstrandarhreppur: Vel í stakk búinn til að takast á við efnahagslegt áfall – Viðspyrnuaðgerðir í farvatninu Svalbarðsstrandahreppur stendur ágætlega og er vel í stakk búinn að takast á við efnahagslegt áfall í kjölfar COVID-19. Mynd / MÞÞ Vinnuskóli Flóahrepps: Starfræktur frá 8. júní til 24. júlí Sveitarstjórn Flóahrepps hefur samþykkt að vinnuskóli fyrir nemendur í 8.–10. bekk í sveitar­ félaginu verði frá 8. júní til 24. júlí í sumar, eða í sex vikur frá mánudegi til fimmtudags. Ein vika verður frívika í sam- ráði við flokksstjóra. Nemendur úr 7. bekk fá vinnu í 2 vikur í samráði við flokksstjóra. Þá verður einnig í boði vinnutengt úrræði í samráði við verkefnisstjóra í málaflokki fatlaðra á Suðurlandi fyrir íbúa í Flóahreppi 16–18 ára. Flokksstjórar í vinnuskólanum verða þær Kristín Lilja Sigurjónsdóttir, Andrea Björk Olgeirsdóttir og Ingibjörg Hugrún Jóhannesdóttir. /MHH

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.