Bændablaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 17
Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 2020 17
Vangaveltur um brottkast til
sjós þekkjast víðar en á Íslandi.
Rannsóknir á veiðum við
Bretlandseyjar benda til að þús-
undum tonna af fiski sé hent í sjó-
inn í Norðursjó og við Skotland á
hverju ári.
Mest er brottkastið sagt vera á
undirmálsfiski sem meðal annars
veiðist í net með ólöglega og allt
of smáa möskva. Samkvæmt lögum
Evrópusambandsins er allt brottkast
á fiski bannað og allur afli talinn
til kvóta.
Talið er að á síðasta ári hafi um
10,5 þúsund tonnum af þorski og
ýsu verið varpað ólöglega í sjóinn
við Bretlandseyjar og er það meðal
annars stutt af því að lítill sem enginn
undirmálsfiskur berst að landi og er
skráður sem afli fiskiskipa sem veiða
nálægt uppeldisstöðvum fiska. /VH
Reykir ber með sér
ljúfan birkireykjarilm
og hefur kröugt
eirbragð.
Greir hefur milt bragð
og auelsmjúka áferð
sem er er að standast.
Feykir hefur fengið að
þroskast í 12 mánuði sem
gefur honum einstakt
bragð og áferð.
Reykir Feykir Greir
NYTJAR HAFSINS
Samkvæmt lögum Evrópusambandsins er allt brottkast á fiski bannað og
allur afli talinn til kvóta.
Bretland:
Þúsundum tonna af
fiski hent
Lífríki hafsins er fjölbreytt
og annað slagið finnast áður
óþekktar tegundir í sjónum.
Það er þó sjaldgæft að menn
finni stórar tegundir fiska sem
ekki hafa verið greindar áður
Íbúar í Suðaustur-Ástralíu
hafa í talsverðan tíma verið að
veiða og borða fisk, sem sagð-
ur er vera bragðgóður, sem þar
til fyrir skömmu hefur ekki
verið vísindalega greindur til
tegunda.
Fiskurinn sem um ræðir hefur
manna á meðal gengið undir
heitinu rockcod en líkist frem-
ur karfa en þorski. Fiskurinn
vakti fyrst athygli þegar sjó-
maður sendi áströlskum fiski-
fræðingi mynd af fiskinum til
greiningar sem hann þekkti
ekki. Við nánari leit fann fiski-
fræðingurinn eintak af fiskinum
á fiskmarkaði við Brisbane.
Í dag hefur tegundin fengið
latínuheitið Epinephelus fusco-
marginatus og sagt að búsvæði
hennar sé við Kóralrifið mikla
út frá strönd Queensland á um
220 metra dýpi. /VH
Ástralía:
Óþekkt fisktegund í matinn
Epinephelus fuscomarginatus.
Leiðangurinn er skipulagður af
vinnuhóp á vegum Alþjóðahaf
rannsókna ráðsins.
Hafrannsóknastofnun:
Kannar vistfræði
Austurdjúps
Rannsóknaskipið Árni Friðriksson
hélt fyrir skömmu af stað í fjöl-
þjóðlegan leiðangur til að kanna
vistfræði Austurdjúps.
Eitt af meginmarkmiðum
verkefnisins er að meta magn og
útbreiðslu norsk-íslenskrar síldar
og annarra uppsjávartegunda
í Austurdjúpi og á austur- og
norðausturmiðum.
Í tilkynning frá Hafrannsókna-
stofnun segir að þessu til við-
bótar verði ástand vistkerfisins
kannað, meðal annars hitastig og
magn átustofna. Leiðangurinn er
skipulagður af vinnuhóp á vegum
Alþjóðahafrannsóknaráðsins.
Auk rannsóknarskipsins Árna
Friðrikssonar, taka rannsóknarskip
frá Noregi, Færeyjum, Danmörku og
Rússlandi þátt í verkefninu.
Leiðangurinn hefur verið far-
inn árlega síðan 1995 og gefa
niðurstöður mikilvæga tímaröð
bergmálsmælinga sem notaðar
eru við stofnmat og veiðiráðgjöf
norsk-íslenska síldarstofnsins
innan Alþjóðahafrannsóknaráðsins.
Leiðangurinn hefur verið farinn
árlega síðan 1995 og eru niðurstöð-
ur nýttar við gerð stofnmats fyrir
norsk-íslenska síld. /VH