Bændablaðið - 20.05.2020, Page 21
Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 2020 21
Erlendir staðlar um
mýrar ekki taldir henta við
íslenskar aðstæður
Í ítarlegum Kveiksþætti Sjónvarps
ins, undir stjórn Þóru Arnórsdóttur,
í október 2016 var doktorsneminn
Súsanna Mökel spurð hvort við
gætum yfirfært alþjóðlega staðla
um útreikning og losun og bindingu
mýra yfir á íslenskt votlendi. Hún
svaraði:
„Ég held því fram að við getum
það væntanlega ekki. Við höfum
eldvirknina hér og mjög tíð eldgos,
þannig að mýrarnar hér á landi
eru steinefnaríkari en í öðrum
löndum, þær fá mikil vindborin
efni sökum gjóskufalls og líka frá
þessum stóru auðnum sem við höfum
í landinu. Það hefur mikil áhrif á
kolefnisbindingu, niðurbrotsferli og
kolefnishringrásina í heild. Ég held
ekki að þessi staðlar séu hentugir
fyrir íslenskar aðstæður.“
Engin tæmandi gögn eru til um
losun né bindingu íslenskra mýra
Þáttastjórnandi Kveiks spurði
Súsönnu þá:
„Þannig að eins og er, þá vitum
við kannski ekki alveg nákvæmlega
hversu mikið þær binda og hversu
mikið þær losa.“ Súsanna svaraði:
„Nei, það eru rannsóknir í gangi
um það og ég held að það sé smám
saman að komast mynd á það, en við
þurfum klárlega frekari rannsóknir
á því.“
Samsetning jarðvegs
Spurning 4:
– Eru áætlanir um endurheimt
mýra byggðar á rannsóknum
varðandi samsetningu íslenskra
mýra með tilliti til foksands og
gosösku og losunargildi ólíkra
jarðvegstegunda?
Spurningin var m.a. hugsuð út frá
viðbrögðum Súsönnu Mökel sem
vísað er til hér að framan. Í svari
ráðuneytisins við þessari spurningu
segir:
„Ýmsar rannsóknir hafa verið
gerðar á hvaða áhrif samsetning
jarðvegs hefur á losun frá
framræstum mýrum og er samsetning
jarðvegs meðal þeirra atriða sem
skoðuð eru sérstaklega þegar ráðist
er í endurheimt votlendis. Fjölmargir
aðrir þættir koma einnig til álita, s.s.
áhrif endurheimtarinnar á búsvæði
fugla, temprun vatnsflæðis o.s.frv.“
Þetta er athyglisvert svar. Þrátt
fyrir að engin tæmandi gögn
séu til um losun né bindingu á
framræstu landi á Íslandi, þá halda
íslensk stjórnvöld og ráðherra
umhverfismála áfram að halda á
lofti fullyrðingum um slíkt. Líka þótt
vísindamenn telji að ekki sé hægt að
yfirfæra erlenda staðla um mýrar yfir
á íslenskar aðstæður, né að hægt sé
að fullyrða hvað framræstu mýrarnar
séu yfir höfuð að losa.
Sex milljónir til
Votlendissjóðs 2018
Spurning 5:
– Hversu há hafa framlög ríkissjóðs
verið til þessa og samkvæmt
fjárlögum fyrir 2020, annars
vegar í kolefnissjóð Kolviðar og
hins vegar í Votlendissjóð?
Hér er spurningunni ekki svarað
beint, en sagt:
„Votlendissjóður fékk stuðning
frá Landgræðslunni á stofnári
sjóðsins 2018 að upphæð 6 milljónir.
Síðan hefur Landgræðslan lagt
Votlendissjóði til þekkingu við
undirbúning og mat á verkefnum.“
Spurning 6:
– Hvaða áætlun er byggt á varðandi
endurheimt votlendis? Hvernig
landsvæði er þar í forgangi og á
hvaða landsvæðum?
Þarna er vísað í mikið plagg
um merkilega aðgerðaráætlun. Að
verk efninu eiga að koma fjölmargir
aðilar, m.a. bændur. Þar er samt nær
einungis vísað á áætlaðar tölur um
losun og ávinning. Þar kemur þó
fram að á árununum 2016–2018 hafi
verið endurheimtir að meðaltali 45
hektarar á ári og áætlað er að 2022
verði endurheimtin komin í 500
hektara á ári. Í svarinu segir:
„Ríkisstjórnin kynnti sl.
sumar aðgerðaáætlun um bætta
landnýtingu í þágu loftslagsmála.
Þar eru m.a. kynnt markmið og
aðgerðir stjórnvalda varðandi
kolefnisbindingu og samdrátt í
losun frá landi. Síðan hefur ríkið
aukið fjárframlög til endurheimtar
votlendis m.a. til að styrkja bændur
og aðra landeigendur til slíkra
aðgerða.
Þegar ákvörðun er tekin um
endurheimt votlendis er annars
vegar horft til fýsileika (s.s.
ávinnings og hversu auðveld
endurheimtin er í framkvæmd) og
hins vegar aðgengis að landi þar
sem vilji landeigenda er ráðandi
þáttur. Við mat á fýsileika er horft
til losunar gróðurhúsalofttegunda
en einnig annarra atriða, s.s.
vatnsbúskapar landsins, stærð
og samfellu svæðisins, áhrifa á
nærliggjandi svæði, áhrifa á lífríki
ofl,“ segir í svari ráðuneytisins.
Varðandi fjármögnun verkefna
segir í skýrslunni að fjármálaáætlun
2019–2023 geri ráð fyrir verulegri
aukningu í fjárframlögum ríkisins
til að hrinda í framkvæmd
aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.
Þar af er gert ráð fyrir að á árunum
2019–2022 verði varið alls 2,1
milljarði til verkefna sem fela í sér
aukna kolefnisbindingu og sem
stuðla að samdrætti í losun frá landi.
Engar samanburðarmælingar
gerðar á einstökum verkefnum
Í svörum við spurningum 7–9 hér á
eftir kemur fram að engar mælingar
fara fram á gaslosun úr framræstu
landi áður en mokað er ofan í skurði
á einstökum stöðum. Ekki eru
heldur gerðar samanburðarmælingar
eftir að mokað hefur verið ofan í
skurði á hverjum stað þrátt fyrir
að samsetning jarðvegs geti verið
mjög ólík. Einungis er stuðst við
tilteknar staðbundnar mælingar sem
Landgræðslan heldur utan um og
þær yfirfærðar á öll önnur verkefni.
Fullyrt er að niðurstöður verði birtar
en engar upplýsingar gefnar um hvar
megi leita að slíkum gögnum.
Þetta hlýtur að teljast afar döpur
niðurstaða og alls ekki í samræmi
við það vísindalega yfirbragð sem
menn hafa reynt að sveipa um
þessa umræðuna um endurheimt
votlendis.
Spurning 7:
– Eru gerðar mælingar á losun
þess lands þar sem ætlunin er
að endurheimta mýrar hverju
sinni, áður en mokað er ofan í
viðkomandi skurði?
„Eins og viðgengst í öðrum
svipuðum aðgerðum s.s.
landgræðslu og skógrækt eru
stundaðar rannsóknir/vöktun á
ákveðnum svæðum og niðurstöður
sem fást þaðan yfirfærðar á önnur
svæði. Landgræðslan stundar vöktun
á fjórum svæðum þar sem fylgst
er með breytingum á lykilþáttum
vistkerfis við endurheimt votlendis.
Sterk fylgni er á milli vatnshæðar
og losunar gróðurhúsalofttegunda
og fylgst er með því hvort og
hversu mikið vatnshæð hækkar við
endurheimt allra stærri svæða.
Rétt er að benda á að Land
græðslan kemur ekki að öllum
verkefnum þar sem unnið er að
endurheimt votlendis. Landeigendur
geta og hafa t.a.m. endurheimt
votlendi á sínum jörðum án þess að
nokkur annar komi þar að, rétt eins
og landeigendur græða upp land og
rækta tré á eigin forsendum.“
Spurning 8:
– Verða gerðar reglulegar mælingar
yfir einhverra ára tímabil á losun
þess lands sem endurheimt er eftir
að mokað hefur verið ofan í skurði
til að meta árangur aðgerða?
„Já á vöktunarsvæðum, sjá svar
við spurningu 7.“
Spurning 9:
– Ef svo er, verða slíkar mælingar
aðgengilegar?
„Niðurstöður úr slíkum
mælingum verða birtar.“
Kaup á kolefnisvottorðum veitir
engan eignarrétt í landi
Spurning 10:
– Hver er lögformleg staða
lands þar sem mokað hefur
verið ofan í skurði og seldar
kolefnisjöfnunarviðurkenningar
fyrir?
„Endurheimt votlendis hefur
engin áhrif á eignarréttarlega
stöðu lands. Það er samningsatriði
hverju sinni hvort og þá hve miklar
takmarkanir eru á landnýtingu í
kjölfar endurheimtar.”
Sagt í valdi landeigenda að
ákveða hvort votlendi sé aftur
tekið í landnýtingu
Spurning 11:
– Er hægt að taka það land í
notkun aftur t.d. fyrir landbúnað?
„Rétt eins og með skógrækt
og landgræðslu eru mismunandi
samningar um mismunandi svæði.
Yfirleitt eru bindandi samningar
um ákveðinn árafjölda og að þeim
tíma loknum er það landeiganda að
ákveða hvað hann gerir við landið.“
Spurning 12:
– Ef svo er, þurfa bændur þá að
kaupa það til baka, þá af hverjum
og hvaða forsendur verður þá
lagðar fyrir verðlagningu þess
lands?
„Eignarrétturinn á landinu
breytist ekki og er það sambærilegt
við land þar sem landgræðsla eða
skógrækt til kolefnisjöfnunar er
stunduð.“
Spurning 13:
– Eiga þeir sem keypt hafa
kolefnisbindingarvottorð í
endurheimt mýra, tilkall í það land,
eða hver á það land lögformlega
eftir að mokað hefur verið ofan í
skurði?
„Nei, ekki við það eitt að kaupa
sér kolefnisbindinguna, ekki frekar en
þau sem kaupa sér kolefnisbindingu
með skógrækt eða landgræðslu
eiga tilkall í land sem nýtt er í þeim
tilgangi.“
Farið yfir frágang svæða
sem endurheimt eru
Spurning 14:
– Hvaða ráðstafanir hafa verið
gerðar til að tryggja að ekki
myndist hættur fyrir dýr og fólk á
ógirtu landi þar sem mokað hefur
verið ofan í skurði? Liggja fyrir
leiðbeinandi reglur um frágang eftir
slíkar framkvæmdir?
„Á framkvæmdartíma eru svæðin
ekki heppileg undir dýrahald frekar
en önnur framkvæmdarsvæði. Við
framkvæmd er hugað að öryggi
dýra og fólks sem kann að sækja
svæðin heim. Í leiðbeiningum
um endurheimt votlendis sem
samstarfsaðilar Landgræðslunnar
fá er farið yfir frágang svæðanna,
s.s. varðandi frágang uppfyllinga
og opinna vatna sem myndast vegna
endurheimtarinnar, í því skyni að
minnka slysahættu eins og kostur er.“
Verður að fara að lögum
Spurning 15:
– Liggja fyrir reglur sem tryggja
að einstakir landeigendur trufli
ekki eðlilega framrás vatns neðar
í landinu og hver er lagaleg staða
landeigenda þar ef tjón verður
hjá þeim vegna lokunar skurða
og annarra vatnsrása ofar í
vatnakerfinu?
„Landeigendur þurfa í þessu
ferli (líkt og varðandi annars konar
breytingar á landnýtingu) að fara
eftir gildandi lögum. Staða einstakra
landeigenda, sem framkvæmdir
kunna að hafa áhrif á, hvort sem
um er að ræða þurrkun lands eða
endurheimt votlendis, er skoðuð í
hverju tilfelli fyrir sig. Rétt er að
benda á að ákvæði vatnalaga veita
í þessum málum ákveðna leiðsögn.“
Ekki sögð þörf á að
vinna sérstakt deiliskipulag
fyrir endurheimt votlendis
Spurning 16:
– Falla framkvæmdir við lokun
skurða undir deiliskipulag sveitar-
félaga?
„Ekki er þörf á að vinna sér
stakt deiliskipulag fyrir svæði þar
sem til stendur að endurheimta
votlendi. Nánar má lesa um endur
heimt votlendis og skipulagsmál
í sérstökum leiðbeiningum sem
Skipulagsstofnun hefur gefið út,
sjá http://www.skipulag.is/media/
pdfskjol/Um_endurheimt_votlend
is.pdf.”
Fellur ekki undir lög um
mat á umhverfisáhrifum?
Spurning 17:
– Geta landeigendur krafist um-
hverfismats vegna moksturs í
skurði á aðliggjandi landi?
„Endurheimt votlendis fellur ekki
undir lög um mat á umhverfisáhrif
um. Þótt endurheimt votlendis falli
ekki undir lög um mat á umhverfis
áhrifum er fullt tilefni til að í til
kynningu til sveitarstjórnar um
áformaða endurheimt votlendis sé
gerð grein fyrir líklegum áhrifum
verkefnisins á náttúru og vatnaf
ar á framkvæmdasvæðinu og landi
umhverfis það, sem og væntum
ávinningi í loftslagsmálum,” segir
í svari ráðuneytisins.
Það hlýtur að vekja athygli að
endurheimt votlendis falli ekki undir
lög um mat á umhverfisáhrifum ef
áhrifin eru jafn stórfelld og yfirvöld
telja þau vera í sínum yfirlýsingum.
匀欀漀爀爀椀 攀栀昀 ∠ 䈀氀搀猀栀昀椀 ㈀ ∠ 刀瘀欀 ∠ 㔀㜀㜀ⴀ㔀㔀 ∠ 眀眀眀⸀猀欀漀爀爀椀⸀椀猀
刀愀昀最攀礀洀椀爀椀渀渀 搀爀琀琀愀爀瘀氀椀渀渀椀
漀爀椀渀渀 最愀洀愀氀氀 漀最 氀切椀渀渀 㼀
嘀攀爀琀甀 琀椀氀戀切椀渀 瘀漀爀瘀攀爀欀椀渀 洀攀
刀䄀䘀䜀䔀夀䴀䄀刀
Sterkar líkur eru á að það þjóni litlum sem engum tilgangi í baráttunni gegn
losun gróðurhúsalofttegunda að moka ofan í áratugagamla skurði eins og
þessa á Ingjaldssandi. Mynd /HKr.