Bændablaðið - 20.05.2020, Qupperneq 31

Bændablaðið - 20.05.2020, Qupperneq 31
Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 2020 31 ÍSLAND ER LAND ÞITT Fyrirtæki í ferðaþjónustu á Norðurlandi: Munu flest lifa af ástandið af völdum heimsfaraldurs – Munu nýta úrræði stjórnvalda, einkum hlutabótaleiðina Forsvarsmenn meirihluta fyrir­ tækja í ferðaþjónustu á Norður­ landi telja frekar eða mjög lík­ legt að þau muni komast í gegn­ um það ástand sem COVID­19 veiru faraldurinn hefur skap­ að og munu hafa opið hjá sér í sumar. Meirihluti ferðaþjónu stu­ fyrirtækjanna nýtir sér úrræði ríkisstjórnarinnar, flest hluta­ bótaleiðina. Þetta kemur fram í niðurstöð­ um könnunar sem Markaðsstofa Norðurlands gerði í byrjun maí. Könnunin var gerð dagana 5.–11. maí og bárust svör frá 172 fyrir­ tækjum en bróðurpartur þeirra hefur verið starfandi í 10 ár eða lengur. Arnheiður Jóhannsdóttir, fram­ kvæmdastjóri Markaðs skrifstofu Norðurlands, segir niðurstöðu könnunarinnar betri en fyrirfram var búist við. „Brúnin hefur aðeins verið að lyftast á mönnum í ferðaþjónustunni, bæði vegna þeirra aðgerðapakka sem boðið er upp á vegna ástandsins og eins því að menn eygja það nú að landið muni opnast á ný innan tíðar,“ segir hún. Íslenski markaðurinn fyrir tækjunum mikilvægur Arnheiður segir eigendur fyrirtækjanna á fullu þessa dagana í vöruþróun og að aðlaga starfsemi sína að breyttu umhverfi á komandi sumri, markaðurinn sé annar þegar viðskiptavinir verði að stærstum hluta Íslendingar. Um 20% af innkomu norðlenskra fyrirtækja árlega hefur komið til vegna Íslendinga svo augljóst er að flest missa stóran spón úr aski sínum. Engu að síður er íslenski markaðurinn norðlensku fyrirtækjunum mikilvægur, en 59% þeirra sem svöruðu nefndu að svo væri. „Þrátt fyrir að félögin sjái fram á mun lægri tekjur en vant er heyrist mér ekki annað en að hófleg bjartsýni ríki meðal þeirra sem stunda ferðaþjónustu. Þeir ætla sér að komast upp þessa brekku og eru í óða önn að laga sína starfsemi að þeim breytingum sem orðið hafa,“ segir hún. 58% nýta úrræði stjórnvalda Fram kemur í könnun Markaðsskrifstofunnar að 58% norðlensku fyrirtækjanna nýta sér úrræði stjórnvalda, langflest hluta­ bótaleiðina, eða 87%. Færri nýta önnur úrræði eins og brúarlán, lok­ unarstyrki, frystingu lána og eða frestun opinberra gjalda. Ríflega 20% fyrirtækjanna sögðu úrræði stjórnvalda ekki henta og 14% þeirra þurftu ekki á þeim að halda. Þá er nokkur hópur einungis með sumar­ starfsemi og 16% svarenda sögðu fyrirtæki sitt of lítið til að úrræði stjórnvalda nýttust því. Arnheiður segir þá ánægjulegu niðurstöðu hafa fengist úr könnun­ inni að flest fyrirtækjanna ætla sér að hafa opið árið 2020, eða 91% þeirra sem svöruðu þeirri spurningu. Einungis 1,2% svöruðu neitandi og 8% kváðust ekki vita það. Þeir sem svöruðu þessari spurningu játandi ætla að hafa opið í júní, júlí og ágúst, eða yfir 90%. Meirihluti svarenda, eða yfir 60%, þeirra sem svöruðu, ætla að hafa opið þá mánuði sem eftir eru ársins. Nýjar bókanir hafa borist „Ef allt gengur að óskum sjá menn fram á að erlendir ferðamenn komi hingað til lands síðsumars. Það eru margir sem eiga pantað í lok júlí og ágúst sem ekki hafa afbókað sig þannig að margir halda í vonina um að komast í sitt ferðalag til Íslands þrátt fyrir allt og afbóka ekki fyrr en í lengstu lög. Þá hefur það einnig gerst að nýjar bókanir hafa borist sem sýnir að fólk er ákveðið í að koma um leið og færi gefst,“ segir Arnheiður. Veðrið ræður för Íslendinga Hún segir á þessari stundu ómögulegt að segja fyrir um sumarið. Vissulega sé mikill hugur í Íslendingum og gera megi ráð fyrir að þeir verði meira á ferðinni en oft áður. Þeir hins vegar ferðast oft eftir veðri og sækja þangað sem sólin skín hverju sinni. Þannig geti brugðið til beggja vona, því verði norðlenska sumarið ekki upp á sitt besta má búast við að höfuðborgarbúar fari um skemmri veg í sín sumarfrí. „Við auðvitað vonum bara það besta,“ segir Arnheiður og bendir á að það sé jákvætt upp á ferðalög landsmanna að fleira fólk má nú vera á tjaldsvæðum en í fyrstu var gefið út. Myndin breytist „Það liggur fyrir að staðan er erfið og tekjur fyrirtækjanna í ár verða mun minni en áður,“ segir Arnheiður. Hún segir að þó séu dæmi um að fyrirtæki hafi farið í þrot, slíkt blasi líka við einhverjum og ljóst að einhverjir muni hætta rekstri. Þá megi búast við breytingum á eignarhaldi fyrirtækja í kjölfar ástandsins. „Við horfum upp á breytta mynd, það er alveg ljóst en almennt ríkir hins vegar bjartsýni í hópi norðlenskra ferðaþjónustufyrirtækja og flestir telja að þeir muni komast yfir þetta með tímanum.“ /MÞÞ Forsvarsmenn meirihluta fyrirtækja í ferðaþjónustu á Norðurlandi telja frekar eða mjög líklegt að þau muni komast í gegnum það ástand sem COVID-19 veirufaraldurinn hefur skapað og munu hafa opið hjá sér í sumar. „Ef allt gengur að óskum sjá menn fram á að erlendir ferðamenn komi hingað til lands síðsumars.“ Arnheiður Jóhannsdóttir, fram- kvæmda stjóri Markaðsskrifstofu Norðurlands. Matarstígur Helga magra: Kvenfélögin verða með á bændamörkuðum Stjórn Matarstígs Helga magra hefur samþykkt að veita kven­ félögum Eyjafjarðarsveitar aðild að matarstígnum. Kven félögin í sveitarfélaginu eru þrjú talsins. Kvenfélögin eru hornsteinn góðgerðarmála í samfélaginu og hafa aflað fjár m.a. með sölu matvæla og handverks á Handverkshátíð sem nú hefur verið aflýst þetta árið. Til að koma til móts við þarfir kvenfélaganna og styðja við þeirra mikilvæga starf býður matarstígurinn að þau fái að starfa á bændamörkuðum sumarsins. Afla tekna fyrir góðgerðarstarf Í ljósi sérstöðu þeirra munu þau hafa heimild til að selja ekki bara matvörur heldur líka handverk. Fyrir utan það að glæða markaðina meira lífi fá félögin tækifæri til að afla tekna fyrir sitt góðgerðarstarf, segir í tillögu stjórnar Matarstígs Helga magra sem samþykkt var á síðasta fundi. Bændamarkaðir verða í Eyjafjarðarsveit í sumar og hefj­ ast að líkindum í júlí en vera má að sleppi til að einn verði í júní. /MÞÞ Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 ALTERNATORAR í flestar gerðir dráttarvéla Bænda 4. júní STAÐA NÝDOKTORS ÆSKILEGT ER AÐ UMSÆKJANDI HAFI: » Sýnt fram á kunnáttu í tölfræði auk meðhöndlunar og úrvinnslu stórra gagnasetta » Reynslu af smíði hag-, vistfræði- eða lífræðilíkana » Góða þekkingu á forritunarumhverfinu R auk almennar forritunarkunnáttu » Birtingar í ritrýndum fræðitímaritum » Reynslu af þverfaglegri teymisvinnu » Getu til að vinna sjálfstætt og sem hluti af hóp Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert. Með umsókn skulu fylgja kynningarbréf, starfsferilskrá og nöfn tveggja meðmælenda með upplýsingum um hvernig er hægt að ná í þá. Nánari upplýsingar veitir Erla Sturludóttir erla@lbhi.is 694 2149 og Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri, gudmunda@lbhi.is sími 433-5000 Umsóknarfrestur er til 4. júní 2020 Við ráðningu skal leggja fram staðfestingu á doktorsgráðu. Sótt er um starfið gegnum ráðningarkerfi ríkisins á www.lbhi.is/storf Laus er til umsóknar staða nýdoktors í gerð vistkerfislíkana við Landbúnaðarháskóla Íslands Landbúnaðarháskóli Íslands hlaut öndvegisstyrk frá Rannís fyrir verkefnið Fiskveiðar til framtíðar í samstarfi við Hafrannsóknastofnun og Háskóla Íslands. Verkefnið fjallar um þróun vistkerfislíkana fyrir hafið en vistkerfislíkön geta verið gagnleg við fiskveiðistjórnun og til að svara vistfræðilegum spurningum. Þá hafa þau líka verið notuð til að skoða félagsleg og hagræn áhrif af nýtingu sjávarauðlinda. Nýdoktornum er ætlað að starfa við smíði vistkerfislíkans fyrir hafsvæðið í kringum Ísland. Um er að ræða þriggja ára stöðu styrkta af Rannís þar sem nýdoktornum er ætlað að vinna að uppsetningu á fiskveiði- og haglíkani fyrir vistkerfislíkanið Atlantis. Þá mun verkefnið einnig fela í sér vinnu við að tengja Atlantis við stofn- matslíkön. Þá mun nýdoktorinn sjá um gerð stjórnendastefnuhermanna og koma að vinnu við að nota Atlantis líkanið til að kanna áreiðanleika einfaldari líkana. Verkefnið mun nýta lífmælingagögn safnað af Hafrannsóknastofnun auk upp- lýsinga um landaðan afla, úr afladagbókum og frá fiskmörkuðum. Æskilegt er því að umsækjendur hafi góðan grunn í gagnagreiningu og líkanagerð. Nýdoktorinn mun vinna með hópi sérfræðinga á sviði líkanagerðar, tölfræði, hagfræði og fiskifræði frá LbhÍ (Dr. Erla Sturludóttir), Hafró (Dr. Pamela J. Woods og Dr. Bjarka Þór Elvarsson) og HÍ (Dr. Gunnar Stefánsson og Dr. Sveinn Agnarsson). Nýdoktorinn mun einnig starfa með öðrum nýdoktorum og doktorsnemum er tengjast verkefninu.Umsækjendur þurfa að hafa lokið doktorsprófi í líffræði, auðlindastjórnun, hagfræði, verkfræði, tölfræði, hagnýtri stærðfræði eða skyldum greinum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.