Bændablaðið - 20.05.2020, Side 51
Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 2020 51
Hjá okkur
færðu allt fyrir
háþrýstiþvottinn
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
afurðaaukningunni einni og sér og
í þessu tilfelli eru það um 400 kíló
mjólkur. Hinn hlutann má skrifa
á betri aðbúnað og hreyfingu,
nákvæmari kjarnfóðrun og almennt
betri búnaðar til bættrar bústjórnar á
búum sem nota sjálfvirk mjaltakerfi.
Mjaltaþjónafjós einnig stærst
Ekki þarf að koma á óvart að lausa-
göngufjós með mjaltaþjónum eru
stærst að meðaltali en árskúafjöldi
þeirra er í árslok 2019 var 65,3 kýr
en þessi bú eru að jafnaði með 1,25
mjaltaþjóna. Þrátt fyrir að þessi bú
beri af í fjölda kúa, þá er bústærðin
enn vafalítið nokkuð undir þeim
mögulega árskúafjölda sem þessi
fjós geta mjaltatæknilega séð borið.
Næststærsta fjósgerðin er svo
lausagöngufjós án mjaltaþjóns
og þar á eftir koma básafjós með
mjaltabásum og hafa þessi bú einnig
stækkað á undanförnum árum. Hin
hefðbundnu básafjós eru vel innan
við helmingi minni en mjaltaþjóna-
fjósin eins og sjá má á töflu 2.
76% mjólkurinnar frá
kúm í lausagöngu
Út frá framangreindum upplýs-
ingum má áætla framleiðslugetu
hverrar fjósgerðar, sem hlutfall
af heild. Árið 2009 var fyrsta árið
sem mjólk frá kúm í lausagöngu
náði yfir 50% af heildinni en þá
reiknaðist framleiðsla allra lausa-
göngufjósa til að vera 51,7% en nú
reiknast þetta hlufall að vera 76,0%.
Fimmtungur kúnna
í fjósum með >80 kýr
Í skýrslunni kemur fram að flest
fjós landsins eru í dag með 21-40
árskýr eða 191 talsins en fjós með
færri en 20 árskýr voru ekki nema
44 í árslok 2019 og voru þau þá með
650,1 árskú. Það eru færri árskýr en
t.d. voru í þremur stærstu fjósum
landsins, sem voru á sama tíma með
658,4 árskýr.
Meðalbústærð fjósanna í
uppgjörinu var 47,8 árskýr
en tveimur árum fyrr var
meðalbústærðin 45,9 árskýr, sem
er stækkun um 4,1%. Alls voru
235 kúabú með færri en 40 árskýr
í þessu uppgjöri eða 43,4% en
í þessum 235 fjósum voru voru
þó ekki nema 24,9% af árskúm
landsins. Bú á bilinu 40-80 árskýr
voru alls 262 talsins eða 48,3% og
í þessum fjósum voru 55,5% af
árskúm landsins í árs-lok 2019. Þá
voru fjós með fleiri en 80 árskýr
alls 45 eða 8,3% og hefur þetta
hlutfall hægt og rólega verið að
skríða upp á við á undanförnum
árum. Þannig voru t.d. ekki nema
3,8% fjósa landsins með fleiri en 80
árskýr árið 2013. Nærri fimmtungur
árskúa landsins eða 19,6% voru í
fjósum með fleiri en 80 árskýr í
árslok 2019.
Hlutfall aftakara aukist
Árið 2009 voru í fyrsta skipti
teknar saman upplýsingar um
vinnuléttandi tækni við mjaltir,
þ.e. upplýsingar um brautakerfi í
básafjósum, aftakarakerfi í bása-
fjósum og tíðni aftakarakerfa í
mjaltabásum. Var þetta gert til
þess að varpa betur ljósi á þær
vinnuaðstæður sem kúabændur
landsins búa við, enda er einn mesti
vinnusparnaður við mjaltir talinn
felast í aftakaratækninni. Á þeim
10 árum sem liðin eru hefur orðið
mikil hlutfallsleg aukning á notkun
tækninnar við mjaltir, bæði vegna
nýfjárfestinga í tækninni, en einnig
vegna úreldingar fjósa sem ekki
höfðu þessa tækni. Þannig mátti
finna aftakara í 41,7% fjósa árið
2009 en nú í 52,8% allra fjósa þar
sem hefðbundin mjaltatækni er
notuð. Þessari vinnuléttandi tækni
fjölgar því afar hægt sem vekur
nokkra furðu og þannig fækkaði
t.d. fjósum sem nota aftakara við
mjaltir um 34 síðustu tvö ár en
athygli vekur að hin notuðu tæki,
sem þessi kúabú hafa hætt notkun
á, virðist ekki skila sér í áfram-
haldandi notkun á öðrum búum.
Í skýrslunni eru ýmsar aðrar
upplýsingar en hér hafa verið
nefndar en hægt er að lesa hina
ítarlegu skýrslu í heild sinni á vef
Landssambands kúabænda, www.
naut.is.
Tafla 2. Meðalfjöldi árskúa eftir fjósgerð og mjaltatækni
2019
Árskýr, meðaltal
Básafjós með fötukerfum 12,0
Básafjós með rörmjaltakerfum 28,1
Básafjós með mjaltabásum 42,2
Lausagöngufjós án mjaltaþjóna 49,1
Lausagöngufjós með mjaltaþjónum 65,3
Háskólinn á Hólum
Hagnýtt háskólanám
• Ferðamálafræði
• Stjórnun ferðaþjónustu og móttaka gesta
• Viðburðastjórnun
• Fiskeldisfræði
• Reiðmennska og reiðkennsla
Tækifærin eru í okkar greinum
Hólaskóli -
Háskólinn á Hólum
Hólum í Hjaltadal 551 Sauðárkrókur
Sími 455 6300 holaskoli@holar.is www.holar.is
Þú finnur Hólaskóla
bæði á Facebook
og Twitter!
Háskólasamfélag með langa sögu
Hólar í Hjaltadal er í senn mikill
sögustaður og útivistarparadís.
Háskólinn á Hólum er lítill en
öflugur háskóli sem sinnir kennslu
og rannsóknum á sviði ört
vaxandi atvinnugreina.
w
w
w
.h
ol
ar
.is
geispur
& burðaráhöld
VORVERK.IS
Þverholt 2, Mosfellsbæ
sími 665 7200 vorverk@vorverk.is
82V
rafhlöðu
tæki
Afl og ending sem uppfylla kröfur fagmanna.
Sama rafhlaða fyrir keðjusagir, pólsagir,
hekkklippur, orf, sláttuvélar, greinaklippur,
og fleiri tæki.
Ársfundur 2020
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda verður haldinn
föstudaginn 12. júní 2020 kl. 14 að Stórhöfða 23, 4. hæð,
Reykjavík.
Dagskrá:
• Venjuleg ársfundarstörf.
• Stjórnarkjör skv. samþykktum.
• Önnur mál.
Stjórn Lífeyrissjóðs bænda
Lífeyrissjóður bænda - Stórhöfða 23 - 110 Reykjavík
Sími 563 1300 - lsb@lsb.is - www.lsb.is
Bænda Smáauglýsingar hafa áhrif um land allt! Sími 56-30-300