Bændablaðið - 20.05.2020, Side 52

Bændablaðið - 20.05.2020, Side 52
52 Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 2020 Um 40 km frá miðborg Chicago má finna þennan veglega grasagarð sem stofnaður var árið 1972. Því miður var Al Capone þá löngu látinn, svo hann náði ekki að heimsækja þennan fínan garð á sínum heimaslóðum. Það mætti næstum því kalla þetta vatnsgarð, því vatn spilar hér svo stórt hlutverk. Garðurinn er í raun samansafn 2,5 milljón plantna í 27 görðum sem dreifast yfir níu eyjar á rúmum 150 hekturum undir þessu nafni. Aðgangur að garðinum er frír og hér er opið allt árið. Samstarf garðsins við menntastofnanir er mikið en einnig er áhersla á að fræða gestina og sést það víða um garðinn. Einn hluti er t.d. tekinn undir ræktun ávaxta og grænmetis og er hægt að kynna sér ræktunaraðferðir og möguleika varðandi vaxtarmótun og fleira gagnlegt þar. Þessi nálgun er um margt aðdáunarverð, að geta miðlað reynslu og þekkingu með þessum skýra hætti til forvitinna gesta. Matvælaræktun Einstaklingur sem veltir fyrir sér að hefja ræktun á grænmeti eða ávöxtum í eigin garði getur heimsótt þann hluta grasagarðsins, rölt um svæðið og velt fyrir sér hvaða nytjajurtir henta best. Þarna fær viðkomandi t.d. upplýsingar um hvaða ávaxtayrki hafa reynst vel í nágrenninu um langa hríð, sem og hvaða rótarstofnar gætu verið heppilegastir. Þetta getur oft reynst mun betur en að treysta sölumanni með stóran lager af plöntum sem eru jafnvel óheppilegar fyrir þennan einstakling. Hvernig á svo að stýra vexti til að hámarka nytjar, nýta sem best plássið sem þú hefur, verjast óværum, velja saman ólíkar tegundir? Þarna má einnig finna svæði sem veitir almennt hugmyndir og ráð varðandi ræktun plantna á óhentugum svæðum eða jafnvel án eiginlegs garðs. Enn fremur ábendingar varðandi hin ýmsu áhöld, umhverfismál og náttúruna almennt. Skilti sem veita ekki bara upplýsingar um plöntur, heldur einnig heppilegar samsetningar í görðum, hugmyndir um lita­ palettur, áferð o.fl. Dæmi um upplýsingaskilti sem hjálpar til með litaval í garðinum situr t.d. við blöndu rauðfjólublárrar dahliu, lime litaðrar Iresine herbstii, fjólubláa ilmexir (agastache) og gult flauelsblóm. Skiltin skýra þá m.a. af hverju þessi samsetning lita og áferða gæti verið heppileg í garðin­ um. Hér er yfirhöfuð mjög áber­ andi áhersla á að veita almenningi víðfeðma fræðslu, með praktíska nálgun. Skýjasnyrting er ekki bara flugvélaklósett Svo margir hlutar þessa garðs eru jafnt áhugaverðir sem og fallegir að heimsækja. Mig langar að nefna sér­ lega fallega Japansgarðinn þeirra. Indælt að rölta um í rólegheitunum, skoða, njóta og láta hugann reika. Þar má finna mörg dæmi um það sem nefnist á ensku „cloud pruning“, trjáformun sem gæti þá útlagst á íslensku sem „skýjasnyrting“. Aðferð sem sumir vilja meina að gangi frekar út á að finna innri sál trjáplöntunnar en að fjarlægja dauðar greinar. Skýjasnyrting er oft notuð til að láta tré líta út eldri, eða hið minnsta að þau virðist hafa átt mun áhugaverðara líf en þau hafa í raun átt, jafnvel með áherslu á óvenju­ legan greinavöxt. Á þessum slóðum er einnig gott að íhuga heimsókn í Morton trjásafnið (e. arboretum) sem spann­ ar um sjö km2 af fallegri náttúru, ekki svo fjarri garðinum. https://www.chicagobotanic.org/ http://www.mortonarb.org/ UTAN ÚR HEIMI Grasagarður Eplatré vaxtarstýrt sem veggtré eftir „espalier“ forminu. Eplatré vaxtarstýrt sem veggtré eftir „espalier“ forminu.Kristján Friðbertsson. Samsett mynd af vatnaliljum, sem sýnir þær jafnt blómstrandi sem og með knúpa, ásamt því að sýna vatnaliljublöð (diska) sem hafa opnast sem og eitt sem á eftir að opnast. Samsett mynd af útsýni að eyjum Japansgarðs og öðru vatni sem skilur að eyjar grasagarðsins. Á vatnalilju blómknúp, drekafluga lenti. Ljósmyndunar happ mig henti.Lágvaxinn en langur gosbrunnur brýtur upp göngusvæði milli tveggja garða.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.