Bændablaðið - 20.05.2020, Side 56
Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 202056
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
„Við fluttum á Blesastaði árið
1997. Þá var hér rekið myndar-
legt kúabú sem við breyttum yfir
í hrossarækt strax á fyrsta árinu.
Við fáum um 20 folöld á ári sem
svo flest eru seld einhvern tíma á
lífsleiðinni,“ segja ábúendurnir.
Býli: Blesastaðir 1a.
Staðsett í sveit: Á Skeiðunum í
Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Ábúendur: Magnús Trausti
Svavarsson og Hólmfríður Birna
Björnsdóttir ásamt dætrum okkar,
Karen, Hrafnhildi og Heklu Salome.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Fimm manna fjölskylda, hundurinn
Hera og kötturinn Tási.
Stærð jarðar? Um 330 ha.
Gerð bús? Hrossaræktarbú.
Fjöldi búfjár og tegundir? Við
erum með um 150 hross.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Morgungjafir 07.30 og svo morgun-
matur hjá okkur.
Eftir það er farið í tamningar
og útreiðar fram eftir degi, svo er
útigangi gefið og kvöldgjafir um
kl 18.00.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Það er mjög gaman að
fá vel heppnuð folöld en akstur á
rúllum virðist venjast illa.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Með svipuðu sniði, bara fleiri
gæðingar.
Hvar teljið þið að helstu tæki-
færin séu í framleiðslu íslenskra
búvara? Við teljum að helstu tæki-
færin liggi í heilbrigði, hreinleika
og gæðum íslenskra búvara og
mikilvægt sé að nálgast neytendur
út frá því.
Hvað er alltaf til í ísskápnum? Þær
vörur sem enginn vill.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Lax og nautakjöt.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Eitt af því er þegar
hryssan Gýgja frá Blesastöðum
náði heilsu eftir erfiða köstun þar
sem henni var ekki hugað líf og
hefur síðan átt þrjú afkvæmi sem
aldrei var reiknað með og er í fullu
fjöri í dag.
Bakað blómkáls-taco og lambakóróna
Bakað, blómkáls-taco getur verið
skemmtileg tilbreyting frá hakk-
réttum sem oftast eru notaðir í
svokallaða taco-rétti; bragðmikil
máltíð sem byggir á grænmeti og
er hollt og ferskt.
Svo er góð hugmynd að nota
blómkálið sem meðlæti með
lamba hrygg á bein, það er alltaf
góð hugmynd að auka vægi græn-
metis á diskinn til að lækka mat-
arverðið og hafa fjölbreytilega
fæðuflokka.
Blómkál
› 2 blómkálshöfuð skorin í bita
› 2–4 msk. avókadóolía eða kókos-
hnetuolía
› 3 tsk. mulið broddkúmen (cumin)
› 2 tsk. chiliduft
› 2 tsk. reykt paprikuduft
› 1 tsk. sjávarsalt
› 12-15 heilkorna tortillur pönnukökur
› limesafi
› kóríander
› þunnt sneitt rauðkál (valfrjálst)
› salsa (valfrjálst)
› avókadósneiðar (valfrjálst)
Aðferð
Hitið ofninn í 200 gráður og setj-
ið blómkálið á tvær stórar bök-
unarplötur. Setjið smá olíu (eða
sleppið), kúmen, chiliduft, papriku
og salt. Veltið þessu til á pönnunni
þannig að kryddið dreifist jafnt yfir
blómkálið og bakið í 20–25 mínútur
eða þar til það verður gulbrúnt og
stökkt.
Hitið tortillur í örbylgjuofni eða í
ofni. Bætið síðan við 1–2 matskeið-
um af salsa ef óskað er á blómkálið.
Berið fram þannig að allir bæta sínu
uppáhalds meðlæti við og sýrðum
rjóma.
Ristaðar lambakótelettur
› 1/2 bolli fersk brauðmylsna
› 2 matskeiðar saxaður hvítlaukur
› 2 msk. saxað ferskt rósmarín
› 1 tsk. salt
› 1 / 4 tsk. svartur pipar
› 2 matskeiðar ólífuolía
› 1 lambahryggvöðvi með beini, snyrt
að frönskum hætti (beinin snyrt en
föst við kjötið)
› 1 tsk. salt
› 1 tsk. svartur pipar
› 2 matskeiðar ólífuolía
› 1 matskeið Dijon sinnep
Aðferð
Hitið ofninn í 230 gráður. Setjið
ofnskúffuna á miðhæðina í ofninum.
Í stórri skál skulið þið blanda saman
brauðmylsnu, hvítlauk, rósmarín,
1 tsk. salti og 1/4 tsk. pipar. Bætið
2 msk. ólífuolíu við til að væta
blönduna. Setjið til hliðar.
Kryddið vöðvann með salti og pipar.
Hitið 2 msk. ólífuolíu í stórum potti
eða pönnu, brúnið kjötið í eina til
tvær mínútur á alla kanta. Setjið til
hliðar í nokkrar mínútur. Penslið
vöðvann með sinnepinu. Rúllið
honum yfir brauðmylsnublönduna
þar til hún þekur vöðvann.
Setjið beinshliðina niður á pönnuna.
Steikið lambið í forhituðum ofni í
12 til 18 mínútur, háð því hvernig
þú vilt kjötið eldað. Með kjöthita-
mæli er gott að mæla eftir 10 til
12 mínútur og taka kjötið út, eða
láta það eldast lengur, eftir þínum
smekk. Flestum finnst 63 gráður
vera góður kjarnhiti fyrir bleikt
kjöt. Hvílið kjötið í það minnsta í
fimm til sjö mínútur áður en það er
skorið á milli rifbeinanna.
Bjarni Gunnar Kristinsson
matreiðslumeistari
Blesastaðir 1a
Hundurinn Hera.
Králit.