Bændablaðið - 20.05.2020, Síða 57

Bændablaðið - 20.05.2020, Síða 57
Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 2020 57 Þegar Ella vinkona mín átti von á sínu fyrsta barni heklaði ég að sjálfsögðu teppi fyrir barnið. Ég vildi breyta til og hekla aðeins öðruvísi bylgjuteppi en ég hafði áður gert. Páfuglamynstur með hálfstuðlum varð útkoman og nefndi ég uppskriftina Elluteppið. Páfuglamynstur er klassískt mynstur svo ég var ekki að finna upp hjólið þar, en mér fannst ég afskaplega sniðug að hekla hálf- stuðla í stað fastapinna eins og er vanalega gert. Hálfstuðlarnir gera það að verkum að það er örlítið ólík áferð á teppinu á réttunni og röngunni, sem gleður mig sorglega mikið. Garnið er Scheepjes Stone Washed sem er alveg hreint dásam- legt að vinna með. Garnið fæst í yfir 30 fallegum litbrigðum og er hreyfing í litunum líkt og garnið sé steinþvegið. Heklkveðja, Elín & Guðrún María mæðgurnar í Handverkskúnst Garn: Scheepjes Stone Washed (50 g, 130 m).Fæst hjá Handverkskúnst www.garn.is 200 g Moon Stone nr. 801 (hvítur) 150 g Larimar nr. 828 (ljósblár) 150 g Blue Apatite nr. 805 (blár) Heklunál: 4 mm Heklfesta: 15 ST = 10 cm Skammstafanir á hekli: Sl. - sleppa, L - lykkja, LL - loftlykkja, HST - hálf- stuðull, ST - stuðull. *texti milli stjarna* merkir endurtekningu, [texti milli hornklofa] merkir endurtekningu innan endurtekningar. Uppskriftin: Fitjið upp 120 LL 1. umf: Heklið 1 HST í 2. LL frá nálinni (þessi 1 LL sem er sleppt telst ekki með), 1 HST í hverja L út umferðina. (119 HST) 2. umf: Heklið 3 LL (telst sem 1 ST), 1 ST í fyrstu L, 2 ST í næstu 2 L, [sl. 1 L, 1 ST í næstu L] x 5, sl. 1 L, *2 ST í næstu 6 L, [sl. 1 L, 1 ST í næstu L] x 5, sl. 1 L*, endurtakið frá * til * 5 sinnum til viðbótar, 2 ST í síðustu 3 L. 3. umf: Heklið 1 LL (telst ekki með), 1 HST í fyrstu L, 1 HST í hverja L út umferðina. (119 HST). Endurtakið umferðir 2-3 þar til teppið er orðið nógu langt. Teppið í þessar uppskrift er 85 umferðir. Mynstrið: Gengur upp í margfeldið af 17, svo er bætt við 1 LL. Þetta þýðir að þú fitjar upp 17, 34, 51, 68… lykkjur þar til æskilegri lengd er náð, þá er bætt við 1 LL. Þetta er gert til þess að mynstrið stemmi. Elluteppið HANNYRÐAHORNIÐ Sudoku Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Létt Þung Miðlungs 7 8 9 6 6 8 4 2 5 7 9 6 1 4 8 3 9 1 5 9 1 6 7 1 3 5 2 1 8 4 6 3 6 8 7 4 1 4 2 5 3 Þyngst 6 5 9 5 2 4 7 3 9 6 2 7 8 1 3 4 3 2 9 6 5 1 9 8 8 7 1 2 2 6 5 8 7 4 3 1 2 4 6 9 4 5 7 3 1 3 4 8 7 6 2 4 1 9 5 2 3 6 9 3 7 8 8 9 5 4 9 5 3 1 6 8 8 1 3 4 2 5 7 5 7 2 9 1 6 Kýr og apar FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ Ólöf Helga býr á Grófargili við Varmahlíð í Skagafirði ásamt for- eldrum sínum og tveimur systrum. Nafn: Ólöf Helga Ólafsdóttir. Aldur: 10 ára. Stjörnumerki: Steingeit. Búseta: Grófargil. Skóli: Varmahlíðarskóli. Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Fótbolti, fimleikar, sund og útivist. Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Kýr og apar. Uppáhaldsmatur: Hamborgari og pasta. Uppáhaldshljómsveit: Engin. Uppáhaldskvikmynd: Tall girl. Fyrsta minning þín? 4 ára afmælið mitt. Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Ég æfi fótbolta og fim- leika en æfi ekki á hljóðfæri. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Ég ætla að verða arki- tekt eða kennari. Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Þegar ég fór í fallturn á Ítalíu. Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt í sumar? Fara hringinn í kringum landið og hitta ættingja mína. Næst » Ég skora næst á Gísla Frank Traustason á Syðri-Hofdölum að svara. Ferðumst innanlands! Mjög falleg og notaleg þriggja herbergja fullbúin íbúð í hjarta Hafnarfjarðar. Íbúðin sem er fullbúin húsgögnum er með svefnpláss fyrir allt að sex manns. Allar upplýsingar inn á booking.com/ Hafnarfjörður og nafn íbúðar Pond apartment eða í s. 695-1095, Gyða - gyda@nyttheimili.is Bænda bbl.is Facebook

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.