Bændablaðið - 20.05.2020, Síða 58
Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 202058
Farsælt samstarf Aflvéla og Pronar skapa tækifæri hjá Jötni á Selfossi:
Hefja sölu á landbúnaðartækjum
frá Pronar í Póllandi
– Leiðandi fyrirtæki með umboðsaðila í yfir 60 löndum, þar á meðal í Ástralíu
UTAN ÚR HEIMI
Norskar sætar kartöflur frá
Bjertnæs & Hoel á markað
Fram til þessa hafa allar sætkart
öflur sem seldar eru í verslunum
í Noregi verið innfluttar en nú
verður breyting á. Eftir fimm ára
tilraunastarfsemi og kostnað upp
á um 140 milljónir árlega hefur
fyrirtækinu Bjertnæs & Hoel tekist
að rækta rótargrænmetið í Noregi
og koma því á markað.
Hver Norðmaður neytir um eitt
kíló af sætkartöflum á ári hverju
og vinsældir þessarar tegundar
rótargrænmetis eykst ár frá ári.
Kjörskilyrði fyrir ræktuninni er
í heitu veðri og vegna þess hafa
sætkartöflur ekki verið ræktaðar í
Noregi. Árið 2015 veitti svokallaður
Gróðursjóður fyrirtækinu Bjertnæs
& Hoel í Vestfold-fylki fjármagn
til að hefja tilraunaverkefni með
að framleiða sætkartöflur í Noregi.
Gróðursjóðurinn var stofnaður af
Gartnerhallen, Bama Eiendom og
Norgesgruppen með tæpan einn
og hálfan milljarð íslenskra króna
í startfé en þeir deila út um tíu prósent
af fénu árlega í tilraunaverkefni.
Markmið Bjertnæs & Hoel var
að kanna hvort mögulegt væri á
að rækta sætkartöflur í Noregi og
eftir fimm ára tilraunastarfsemi er
fyrirtækið tilbúið að senda fyrstu
vörurnar á markað en forsvarsmenn
fyrirtækisins segja ferlið langt í frá
hafa verið einfalt og ýmsar áskoranir
á leiðinni.
Þrátt fyrir nafnið eru sætkart öflur
ekki í ætt með venjulegum kartöflum.
Mestur hluti heimsframleiðslunnar
fer fram í Kína en það sem flutt
er inn til Evrópu kemur að mestu
frá Bandaríkjunum. Mest neysla á
rótargrænmetinu í Evrópu er á Suður-
Spáni og Ítalíu. /ehg - Nationen
Innan tíðar geta norskir neytendur farið að kaupa sætar kartöflur sem
ræktaðar eru í Norgi í stað innfluttra. Mynd / Bjernes & Hoel
VÉLAR&TÆKI
Höfuðstöðvar Pronar eru í Narew í Podlasie-héraði í austurhluta Póllands. Þeir eru örugglega ekki margir framleiðendur
landbúnaðartækja í heiminum sem státað geta af flugvelli í bakgarðinum. Sjö verksmiðjur eru staðsettar á svæðinu og
taka pláss á við 80 fótboltavelli. Í verksmiðjunum eru notuð um 600 tonn af stáli á dag í framleiðslu hinna ýmsu tækja.
Myndir / Pronar
Samstarf Aflvéla og Pronar hófst
árið 2011 á Íslandi. Stefnan var
sett á vörur fyrir verktaka og
sveitarfélög fyrir vetrar og sum
arþjónustu ásamt vögnum o.fl.
Vörurnar nutu strax vinsælda
vegna gæða, hönnunar og hag
stæðs verðs. Mikil og góð reynsla
er því komin á Pronar tækin við
oft og tíðum mjög svo krefjandi
íslenskar aðstæður.
Við kaup Aflvéla á Jötni á
Selfossi hefur skapast tækifæri til
að koma með landbúnaðartæki frá
Pronar inn á íslenskan markað. Nú
þegar eru fyrstu sendingarnar af
Pronar heyvinnutækjunum komn-
ar til landsins og búið er að tryggja
nægilegt framboð fyrir sumarið.
Pronar tækin eru í miklum gæðum
og til að undirstrika það bjóða þeir
3 ára verksmiðjuábyrgð á flestum
heyvinnuvélum og vögnum.
Pronar leiðandi
fyrirtæki í Póllandi
Í dag er Pronar leiðandi fyrirtæki
í Póllandi í framleiðslu og sölu á
vélum og tækjum fyrir landbúnað,
þjónustu við sveitarfélög og fyrir-
tæki í vöruflutningum, með um 50%
markaðshlutdeild þar í landi. Þar að
auki er Pronar með umboðsaðila í
yfir 60 löndum víðs vegar um heim,
öllum Evrópusambandslöndunum,
Skandinavíu og Rússlandi, einnig
Afríku, Norður- og Suður-Ameríku,
Nýja-Sjálandi og Ástralíu.
Pronar eru einnig einn stærsti
framleiðandi í heimi á felgum,
hjólbúnaði, vökvakerfum, vökva-
tjökkum og öxlum fyrir vagna, sem
og stálskjólborðum.
Pronar var stofnað árið 1988 í
borginni Narew í norðausturhluta
Póllands.
Fyrirtækið hefur vaxið gríðarlega
á þessum rúmum 30 árum og í
dag starfa yfir 2000 manns hjá
fyrirtækinu, í 7 nútímavæddum
verksmiðjum að flatarmáli sem
svarar til 80 fótboltavalla.
Daglega eru framleiddir 4000
íhlutir úr 600 tonnum af stáli.
Frá stofnun hafa eigendur haft
skýrar hugmyndir um þróun starf-
seminnar, sem miðar mestmegnis
að framkvæmd framleiðslu á fjöl-
breyttu úrvali íhluta sem gefur þeim
möguleika á að bregðast mjög hratt
við í allri þjónustu tengdum sínum
vörum.
Áhersla á nýsköpun
og nútímavæðingu
Í gegnum árin hefur skuldbinding
um að leggja áherslu á nýsköpun,
nútímavæðingu og gæðafram leiðslu
véla og tækja, gert Pronar meira en
samkeppnishæfa og ört vaxandi
fyrirtæki á hörðum alþjóðlegum
markaði.
Árið 2014 opnaði Pronar
rannsóknar og þróunarmiðstöð.
Þar starfa yfir 70 tækniteiknarar og
180 verkfræðingar. Þetta stóra skref
hjálpar þeim við þróun nýjunga, þar
sem styrkur og nákvæmni nýrra
lausna er kannaður undir ströngu
gæðaeftirliti.
Með fjölda markaðsleiðandi
tækja og lausna setur Pronar tóninn
í nýrri tækni fyrir landbúnaðinn,
sveitarfélagaþjónustu og
úrgangsstjórnun, allt í samvinnu
við náttúruna með mottóið „Tækni
fyrir náttúru“ að leiðarljósi.
Pronar tækin eru einföld í
notkun, auðveld í viðhaldi og á
hagstæðu verði.
Trú þeirra á gæði og endingu
sinna tækja endurspeglast í
ábyrgð inni sem þeir veita.
Pronar veitir 36 mánaða ábyrgð
á flestum heyvinnutækjum og
vögnum með þeim skilyrðum að
tækið undirgangist 24 mánaða
ábyrgðarskoðun hjá viðurkenndu
Pronar þjónustuverkstæði. Skoðun-
in greiðist af eiganda tækis ins og
framlengir ábyrgðinni um 12
mánuði. /BA/HKr.
Pronar framleiðir öflugar dráttarvélar eins og þessa Pronar 8140. Hún er með
Deutz-sílindra túrbó mótor sem skilar 265 hestöflum. Þá er dráttarvélin búin
ZF gírskiptingu sem getur valið úr 40 gírum áfram og 40 gírum afturábak.
Lyftigeta vökvakerfis er 10,5 tonn.
Pronar 5340 dráttarvél með Pronar Z500 heyrúlluvél.
Mælingar á loftgæðum heimila sem elda með gasi sýna að í sumum tilfell-
um geti loftmengun á heimilum verið töluvert meiri en leyfilegt er utandyra
samkvæmt loftgæðastöðlum.
Gaseldavélar geta haft
slæm áhrif á heilsu fólk
Nýlegar rannsóknir benda til að
gaseldavélar geti haft slæm áhrif
á heilsu fólk sé ekki loftað vel út.
Höfuðverkur og öndunarkvillar
geta fylgt því að elda með gasi.
Ýmislegt bendir til að við sem
kjósum að nota gaseldavélar séum
í vondum málum. Rannsóknir
benda til að þar sem ekki er loft-
að vel út safnist fyrir óæskilegar
lofttegundir í kjölfar þess að elda
með gasi. Auk þess sem bruni gass
er mikill mengunarvaldur.
Mælingar á loftgæðum heim-
ila sem elda með gasi sýna að í
sumum tilfellum geti loftmengun
á heimilum verið töluvert meiri en
leyfilegt er utandyra samkvæmt
loftgæðastöðlum. Áhrif þessa er
að fólk þjáist af höfuðverk og
jafnvel öndunarkvillum eins og
astma.
Í löndum þar sem flestir elda
með gasi er mengun frá bruna
þess gríðarleg og því meiri sem
eldavélarnar eru eldri. Samkvæmt
skýrslunni er fólki bent á að besta
leiðin til að koma í veg fyrir
vandamál af þessu tagi sé að fá
sér rafmagnseldavél. /VH
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300