Bændablaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 63

Bændablaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 63
Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 2020 63 Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur sent frá sér ályktun þar sem hún hvetur stjórnvöld og landsmenn alla að taka fæðuöryggi þjóðarinnar föstum tökum. Ályktunin er svohljóðandi: „Fæðuöryggi er skilgreint sem stöðugur aðgangur allra að nægilegum, öruggum og næringarríkum mat til að mæta næringarþörfum sínum. Það er aðeins nú síðustu öldina sem fæðuöryggi Íslendinga hefur verið nokkuð stöðugt, en aldirnar á undan varð reglulega mannfellir vegna hungursneyða. Sú jákvæða breyting sem varð á fæðuöryggi landsmanna á 20. öldinni byggir á byltingu í landbúnaði, sjávarútvegi og samgöngum, almennt batnandi efnahag þjóðarinnar, auknu frelsi í viðskiptum milli ríkja, ásamt fleiru. Þetta virðast sjálfsagðir hlutir þegar fólk þekkir ekki annað, en þegar vá steðjar að, sem vegur að einhverjum þessara þátta, er fólk minnt á að fæðuöryggi er ekki sjálfgefið. Þá koma oft fram yfirlýsingar um að hlúa þurfi að innlendri matvælaframleiðslu, tryggja flutningsleiðir og birgðahald. Um leið og váin er afstaðin virðist þetta þó oft gleymast. Á Íslandi er og hefur afkoma sumra búgreina lengi verið óörugg og á þolmörkum. Ábyrgð neytenda er mikil en stjórnvöld leggja línurnar.“ Bændur og fæðuöryggi Í niðurlagi ályktunnar segir orðrétt: „Sveitarstjórn Bláskógabyggðar vill skora á stjórnvöld að tryggja til framtíðar þá grunnþætti er mestu skipta varðandi fæðuöryggi þjóðarinnar. Þar má nefna eignarhald á jörðum, varðveislu ræktunarlands, tollvernd sem heldur, og almenna þekkingu og viðurkenningu á hæfi mismunandi landgerða til mismunandi landnota, ekki síst matvælaframleiðslu. Tryggja þarf afkomu bænda til að í framtíðinni verði einhverjir til að framleiða þau matvæli sem þjóðin þarf og hægt er að framleiða hér. Annað er ábyrgðarleysi gagnvart komandi kynslóðum og þegar allt er rakið til enda hvort sem er kolefnisspor, virðisaukandi afleiðingar, sjálfbærni, byggðamál eða búmannleg hugsun er það hið rétta enda landbúnaður styrktur og tollverndaður hjá flestum þjóðum heims. Stuðla þarf að aukinni fjölbreytni í matvælaframleiðslu, meðal annars með því að styðja við ylrækt, garðyrkju og kornrækt. Miklir vannýttir möguleikar eru varðandi nýtingu íslensks korns bæði í manneldi og búfjárrækt. Í ylræktinni eru frábær tækifæri til að nýta hreinar orku- og vatnsauðlindir til að framleiða úrvals matvæli og blóm sem gleðja. Á sama tíma þarf að nýta styrkleika Íslands til grasræktar, sem undirstöðu nautgripa- og sauðfjárræktar. Öll viljum við að lífsgæði okkar séu og verði sem mest, til að svo verði þurfum við að lifa á því sem landið gefur okkur á sjálfbæran hátt og vera stolt af því.“ /MHH Bænda 4. júní Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 RÚÐUR Í DRÁTTARVÉLAR FRÁBÆR VERÐ John Deere Zetor Case IH McCormick Steyr Claas Ford Fiat New Holland Deutz-Fahr Massey Ferguson Glerárgata 34b við Hvannavelli • S 461 1092 • asco.is OKKAR ÆR OG KÝR — STARTARAR OG ALTERNATORAR — Veermier jarðvegsfræsari Getur fræst niður á 70 cm dýpi. Nánari upplýsingar í s. 892-0364. Náttúruperla í höfuðborginni Superior herbergi á 9.900,- kriunes@kriunes.is 567-2245 www.kriunes.is Nýtt auglýsingapláss í Bændablaðinu beinir sjónum að fjölbreyttri ferðaþjónustu innanlands. Býður þú upp á gistingu, mat eða afþreyingu? Komdu þinni þjónustu á framfæri á auðveldan og hagkvæman hátt í Bændablaðinu. Sími 563-0303 - gudrunhulda@bondi.is Hvað er í boði fyrir ferðamenn? Listakot Dóru - Vatnsdalshólum Opið laugardag - mánudags kl. 12-17 í sumar. Aðra daga eftir samkomulagi. Sími 864-2290 www.facebook/Listakot Dóru Við bjóðum upp á gistingu með eldhúsaðstöðu og ís sem framleiddur er úr okkar eigin mjólk. Sjáumst í sumar! Gistiheimilið Skútustöðum og Skútaís eru lítil fjölskyldurekin fyrirtæki við Mývatn. Fyrir frekari upplýsingar info@skutustadir.is isgerdinskutais@gmail.com og á Facebook. FERÐAÞJÓNUSTA Frábær ódýr jeppi í útileguna Hyundai Terracan, beinskiptur, turbo Dísil 163 hestöfl, 4x4 hátt og lágt drif. Með krók og tengi. Nýbúið að taka mikið í gegn á verkstæði og nýskoðaður. Nýtt í bremsum, allir spíssar nýir, nýjar hjólalegur að framan. Góð vetrardekk fylgja. Nýlega smurður. Ekinn 216 þús. km, ný tímareim í 204 þús. Upplýsingar gefur Jón Albert í síma 662-3061 Atvinna Barnfóstra/barnapía óskast á heimili í Fljótshlíð í sumar til að aðstoða við umönnun eins árs þríbura. Við- komandi þarf að hafa reynslu af umönnun barna. Meðmæli æskileg. Starfið er eingöngu tímabundið, eða frá lok maí til lok ágúst (möguleiki á að það gæti orðið fram í septem- ber). Viðkomandi getur fengið her- bergi á staðnum. Umsókn sendist á nanna@peturs.net. Nánari upplýs- ingar er hægt að fá í síma 823-9384. Starfskraftur með áhuga á lífrænni garðyrkju óskast í gróðrarstöðina Reykjalund í Grímsnesi, tvo daga í viku. Reynsla af sveitastörfum kostur. Uppl. í síma 663-5906. Óska eftir starfskrafti á sauðfjárbú á Norðurlandi sem fyrst. Óskandi væri að starfskrafturinn kæmi af norðanverðu landinu. Nánari uppl. í s. 452-4487. Hæ ég heiti Hilmir, ég er að verða 17 ára og bráðvantar vinnu á sveitabæ. Ég er vanur. Upplýsingar í síma hjá mömmu (Stínu) 867-9481. Ráðskona óskast. Ráðskona óskast á heimili í Fljótshlíð í sumar. Viðkomandi þarf að geta sinnt öllum almennum heimilisstörfum eins og þrifum og eldamennsku. Bílpróf og meðmæli æskileg. Starfið er eingöngu tímabundið, eða frá lok maí til lok ágúst (möguleiki á að það gæti orðið fram í september). Viðkomandi getur fengið herbergi á staðnum. Umsókn sendist á nanna@peturs. net. Nánari upplýsingar er hægt að fá í s. 823-9384. Jarðir Óskum eftir að kaupa jörð. Margt kemur til greina en nauðsynlegt að ræktunarskilyrði séu góð. Eiríkur, sími 862-9044 og eirikurkg@yahoo.com Sveitarstjórn Bláskógabyggðar: Nauðsynlegt er að huga að fæðuöryggi þjóðarinnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.