Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1994, Side 4

Íþróttablaðið - 01.04.1994, Side 4
Efnisvfirlit Guðmundur Bragason hefur náð af- bragðs árangri sem þjálfari og leik- maður Grindavíkur í vetur en hann er að stíga sín fyrstu skref í þjálfun. ÍÞRÓTTABLAÐIÐ hitti hann og Wayne Casey, erlenda leikmanninn í liði Grindavíkur, að máli fyrir úrslita- leikina um íslandsmeistaratitilinn gegn Njarðvík. Wayne hefur ákveðnar skoðanir á dómurum og hvort leyfa eigi fleiri erlendum leik- mönnum að leika hér á landi. Guð- mundur hefur aldrei leikið betur en í vetur og ræðir um allt sem viðkemur körfubolta í forvitnilegu viðtali. Stuðningur íslendinga við afreksfólk í íþróttum hefur verið til háborinnar skammar. Stjórnmálamenn vita varla að stundaðar eru íþróttir á íslandi, slíkt er skilningsleysi þeirra og sér- samböndin hafa síður en svo veitt sínum íþróttamönnum nægilegan stuðning. í athyglisverðri samantekt, um hvað þarf að gerast tiI að við eign- umst íþróttamenn á heimsmæli- kvarða, kemur í Ijós að með fjárstyrk að upphæð 4,5 milljónir á ári til af- reksmanns eigir hann von um að komast á verðlaunapall eftir ákveð- inn árafjölda. 32-37 Um þessa mundir fara línur fljótlega að skýrast í þjálfaramálum þeirra liða sem leggja stund á svokallaðar vetr- aríþróttir. ÍÞRÓTTABLAÐIÐ brá sér í flugulíki og hleraði ýmsar þreifingar og sögur sem hafa verið í gangi. Menn velta ýmsum spurningum fyrir sér sem íþróttablaðið leitar svara við. Hver þjálfar FH næsta vetur? Hættir Þorbjörn með Val? Heldur Jón Kr. áfram með ÍBK? Ætlar Guðmundur Bragason virkilega að hætta með Grindavík? Svörin eru á blaðsíðum 6, 7, 30 og 31!

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.