Íþróttablaðið - 01.04.1994, Síða 13
David Platt.
PLATT BLÓMSTRAR
DAVID PLATT, leikmaður Sampdoria,
blómstrar nú á Ítalíu eftir að hafa átt frekar
slakt tímabili hjá Juventus. Þegar hann var
spurður um muninn á því að leika með þess-
um liðum, svaraði hann: „Ég spila hjá Samp-
doria“. Hjá Juventus lék Platt aftarlega á
miðjunni og fékk lítil svigrúm til þess að gera
það sem hann er bestur í — að stinga sér
fram. Hann segir: „Hjá Juventus snýst allt
um Baggio sem er svo sem í góðu lagi. Hjá
Sampdoria eru Gullit og Mancini í fremstu
víglínu en hvorugur er mjög hrifinn af því.
Þess vegna leita þeir mikið inn á miðjuna og
skapa þar með svæði fyrir okkur í framlín-
unni.“
Flestir hafa mikið álit á Platt sem knatt-
spyrnumanni og Gianluga Vialli sagði í við-
tali um daginn að Platt væri gífurlega hæfi-
leikaríkur en að hann væri 10 árum á undan
sinni samtíð sem knattspyrnumaður.
Oksana Baiul.
ÚR FÁTÆKT
TIL FRÆGÐAR
OKSANA BAIUL, 16 ára
skautadrottning frá Úkraínu,
varð Ólympíumeistari
kvenna í listdansi á skautum
en hún er einnig heimsmeist-
ari. Frami Oksana er eftir-
tektarverður fyrir þær sakir
að hún átti mjög erfiða æsku
og átti varla til hnífs eða
skeiðar í mörg ár. Hún heillar
fólk með barnslegri einlægni
en þjálfari hennar,
Zmievskaya, sem tók Oksana
að sér þegar hún var 14 ára,
gætir þess að blaðamenn
komist ekki of nærri henni.
Ástæða þess er sú að þeir
vilja vita allt um fortíð þess-
arar 16 ára gömlu stúlku.
Móðir Oksana var fransk-
ur kennari sem dó úr krabba-
meini þegar Oksana var 13
ára. Amma hennar, sem sá að
miklu leyti um uppeldi Oks-
ana í iðnaðarborginni Dne-
propetrovsk, dó þegar hún
var 8 ára. Afi hennar dó
skömmu eftir að hann gaf
henni fyrstu skautana. Eng-
inn veit hver faðir hennar er en sá, sem stóð
henni einna næst frá því hún var 5 ára, var
þjálfarinn hennar — Korytek að nafni. Hún
bjó hjá honum fyrst eftir að mamma hennar
dó en þá stakk hann skyndilega af til Canada
og kvæntist skautadrottningu þaðan. Oks-
ana stóð þá nánast ein eftir en hún sagðist
hafa skilið ákvörðun Korytek mjög vel.
„Hver vill ekki eiga einhvern mat til að
borða,“ sagði hún sár.
Það var síðan Zmievskaya, núverandi
þjálfari hennar, sem gekk henni í móðurstað
SUNDMENN MEÐ
KULDAHROLL
Undanfarin misseri hafa kröfurnar um 50
metra innisundlaug stöðugt orðið háværari.
Keppnisfólk í sundi virðist vera búið að fá
nóg af aðstöðuleysinu á íslandi og hugsan-
lega má kenna ákveðinni stöðnun í íþrótt-
inni þar um.
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ sló á þráðinn til fþrótta-
og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar og
forvitnaðist um hvort 50 metra innilaug væri
á teikniborðinu. „Það hefur ekki verið tíma-
sett hvenær byggð verður 50 metra innilaug
en rætt hefur verið um að þegar gert verður
við Laugardalslaugina verði 50 metra laug
byggð á túninu sunnan við laugina og síðan
byggt yfir hana. Hvenær þetta verður að
veruleika skal ósagt látið," svaraði Ómar
Einarsson hjá Iþrótta- og tómstundaráði.
Þess má að lokum geta að árið 1997 verða
Smáþjóðaleikarnir haldnir á íslandi og er
varla hægt að bjóða keppendum upp á ann-
að en 50 metra innilaug á því móti.
og gætir hennar eins og sjáaldurs augna
sinna. Á svellinu er Oksana eins og fullorðin,
þokkafull kona en þess utan er hún bara
unglingur sem heldur mest upp á bangsann
sinn og Snickers súkkulaði. Og að iokum má
geta þess að uppáhaldsbíómyndirnar henn-
ar eru Litla hafmeyjan og Aladdín.
Rccbok»■
The Pump Vert
Stærðir: UK 6,5-12.
Viðm. verð 9.990.-
Boulevard BlackTop
Stærðir: UK 6,5-12.
Viðm. verð 7.990,-