Íþróttablaðið - 01.04.1994, Síða 49
Jordan handleikur kylfuna einbeittur á svip.
GERT GRÍN AÐ JORDAN
Þótt mörgum hafi þótt það sterkur leikur hjá MICHAEL JORDAN að hætta í körfubolta og
snúa sér að HAFNABOLTA brosa þeir út í annað sem þekkja síðarnefndu íþróttina. Þeir segja
að þeir, sem hafa ekki leikið hafnabolta í 15 ár eins og Jordan, eigi ekki nokkra möguleika á að
ná langt í íþróttinni.
Þótt Jordan hafi fengið góðar viðtökur í íþróttinni er það aðallega fyrir kurteisissakir. Hann
þykir hafa of langa og óstöðuga sveiflu og notar fæturna nánast ekkert í sveiflunni. Sumir
hafnaboltaleikmenn sögðu í gríni: „Við munum sjá sveiflur í íþróttinni sem hafa aldrei sést
fyrr!“
Hingað til hafa þjálfarar verið að kasta boltum að honum á um 100 km hraða sem þykja
hálfgerðir æfingaboltar en menn segja að Jordan biðji til Guðs þegar atvinnumennirnir kasta
að honum boltum á 150 km hraða. Fæstir reikna með að Jordan geri nokkuð annað í
hafnaboltanum en að leika nokkra leiki með varaliði White Sox Chicago en hann þykir víst
mjög áhugasamur.
Svo skemmtilega vill til (sem er þó alls ekki uppörvandi fyrir Michael Jordan) að sá
hafnaboltaleikmaður, sem á lakasta árangur allra atvinnumanna í íþróttinni, hét einmitt
Michael Henry Jordan. Kannski er það tilviljun að það eru nákvæmlega 100 ár á milli
fæðingardaga þeirra. Sá eldri var fæddur 7. febrúar 1863 en sá yngri 17. febrúar 1963. Henry
Jordan hitti aðeins 12 bolta með kylfunni af þeim þem 125, sem var kastað til hans þegar hann
lék sem atvinnumaður, en slíkt þykir með afbrigðum lélegt. Núna bíða menn eftir að sjá hvort
það séu hugsanlega einhver tengsl á milli þessara alnafna sem fæddir eru með nákvæmlega
100 ára millibili.
Rccbok
Etoile
Stærðir: UK 3-8.
Viðm. verð 3.490,-
Bergkamp Pro
Stærðir: UK 6,5-11.
Viðm. verð 7.990.-
HM1994USA