Íþróttablaðið - 01.04.1994, Síða 46
Gunnar Beinteinsson leikmaður FH
Hvernig andstæðingur
er Gunnar Beinteinsson?
Valdimar Grímsson,
KA
Hans helstu kostir eru að hann er
mjög jarðbundinn leikmaður sem
skilar alltaf sfnu fyrir liðið. Gunnarer
alhliða sterkur leikmaðursem nærað
nýta veikleika andstæðingsins mjög
vel.
Gunnar er tvímælalaust landsliðs-
maður í dag en hann vantar að geta
tekiðafskarið. Hans veikleiki ersá að
þegar illa gengur hjá liðinu er hann
ekki sá sem að rífur sig út úr og gerir
hluti upp á eigin spýtur og rífur þar
með liðið upp. Hins vegar er það
alltaf spurning um hvort slíkt á við
um hópíþróttir en þetta er tvímæla-
laust styrkur margra leikmanna.
Hann flýtur dálítið með I iðinu. Það er
dálítið erfitt að skýra leik Gunnars því
maður horfir á hann leika og finnst
hann ekkert frábær en þegar leiknum
er lokið kemur í Ijós að hann var besti
maður liðsins jafnvel markahæstur
og hafði leikið vel alhliða.
Bjarki Sigurðsson,
Víkingi
Gunnar Beinteinsson er yfirvegað-
ur sóknarmaður, reynir ekki við færi
nema það sé öruggt og gerir þá hluti
sem hann gerir inni á vellinum vel.
Hann er fljótur fram í hraðaupp-
hlaupum. Hann býryfirþeim kosti að
geta leikið þrjár stöður á vellinum
(línu og bæði horn (innsk. blm)) sem
ég myndi segja að væri mjög sjald-
gæft. Menn hafa reyndar deilt um
það hvaða stöðu hann skilar best á
vellinum en mér finnst hann hafa
spilað mjög vel í hægra horni miðað
við að hann er rétthendur. Gunnar er
sterkur varnarmaður en á þó dálítið
til að hanga fullmikið íandstæðingn-
um ef hann missir hann framhjá sér.
Ef hann hins vegar heldur honum
fyrir framan sig þá fer enginn framhjá
honum. Hans helsti galli er sá að
hann reynir ekki mikið sjálfur, flanar
ekki út í neina vitleysu og ætlar ekki
að taka leikinn í sínar hendur. Hann
nýtir þau færi sem hann færog reynir
ekki eins mikiðsjálfurog aðrir. Þá má
segja að þetta sé hans eini galli.
ROBINSON BESTUR?
Körfuboltasérfræðingar NBA deildar-
innar veðja á að DAVID ROBINSON, leik-
maður San Antonio Spurs, verði valinn
besti leikmaður deildarinnar í vor. Hann
hefur leikið einstaklega vel í vetur og
verið lykilmaður Spurs ásarnt Dennis
Rodrnan. Þeir, sem hafa fylgst rneð
Spurs í vetur, vita að Rodrnan á stóran
þátt í framförum Robinsons. Rodman
hefur tekist að virkja villidýrið í Robin-
son og fengið hann til þess að vera ekki
lengur „góði gæinn“ í boltanum.
Robinson hefur þetta að segja um
Rodman: „Eg hef verið innan um leik-
menn eins og Jordan, Bird og Barkley en
ég hef lært meira af Rodman en nokkr-
urn öðrurn um það hvað þarf til að vinna
leiki.“
Robinson hefur staðið í skugga leik-
manna eins og Olajuwon og O’Neil und-
anfarin tvö ár en núna er hann stjarna
senteranna. Menn segja að Rodman fái
Robinson til þess að reiðast í leikjum og
þess vegna sé hann svona góður.
„Eg veit að ég hef verið of mikill sént-
ilmaður á veliinum," segir Robinson.
„Rodman hefur hvatt mig á sérstakan
hátt og í kjölfar þess finnst mér ég ganga
vopnaður til hverrar orrustu. Það gerði
ég ekki áður.“ Það verður gaman að sjá
hvernig San Antonio Spurs vegnar í úr-
slitakeppninni og hvort Rodman og
Robinson verða stjörnur keppninnar.
46