Íþróttablaðið - 01.04.1994, Blaðsíða 58
Afrek í stökkgreinum karla og kvenna utanhúss
Texti: Sigurður P. Sigmundsson
Hástökk karla
Eftir nokkra stöðnun á áttunda ára-
tugnum tók árangur í hástökki að
batna á níunda áratugnum. Eyfirð-
ingurinn, Kristján Hreinsson, sigraði
mjög óvænt í Kallottkeppninni í Alta
1983 og bætti jafnframt 18 ára ís-
landsmetjóns Þ. Ólafssonar. Kristján
var rétt að byrja að bæta sig og hafði
alla möguleika á að ná langt, en
slæm meiðsli árið eftir bundu skjótan
endi á keppnisferil hans. Eftirað met
Jóns Þ. hafði loks verið slegið virtist
hástökkvurum vaxa ásmegin og hef-
ur árangur ígreininni verið þokkaleg-
ur á íslenskan mælikvarða flest ár síð-
an. Gunnlaugur Grettisson virtist
vera framtíðar afreksmaður, en dró
fljótt úr æfingum. Núverandi met-
hafi, Einar Kristjánsson, er einnig
mikið efni. Hann hefur þó dregið úr
.
Kristján Harðarson hafði alla burði til að stökkva yfir 8 m í langstökki en
meiðsli haðu honum á keppnisferlinum.
æfingum, vonandi tímabundið, þar
sem hann hefur nýlega hafið eigin
atvinnurekstur. Jón Arnar Magnús-
son stökk 2,06 m innanhúss í febrúar
s.l. og 18 ára Selfyssingur, Magnús
Aron Hallgrímsson stökk 2,03 m í
marsmánuði, en báðir stefna að góð-
um árangri í tugþraut. Það gæti því
enn orðið nokkur bið á því að við
eignumst hástökkvara sem fer yfir
2,20 m.
Langstökk karla
Fyrir áratug voru miklar vonir
bundnar við að Kristján Harðarson,
sem þá var einungis tvítugur, myndi
stökkva yfir 8 metra „draumamark"
Hástökk karla m
2,16 Einar Kristjánsson, FH ............................. 92
2,15 Gunnlaugur Grettisson, ÍR......................... 88
2,12 Unnar Vilhjálmsson, UÍA .................... 84
2,11 Kristján Hreinsson, UMSE............................ 83
2,10 Jón Þ. Ólafsson, ÍR ................................ 65
2,06 Stefán Friðleifsson, UÍA ........................... 81
2,04 Guðm. R. Guðmundsson, FH ........................... 79
2,03 Stefán Þ. Stefánsson, ÍR ........................... 82
2,03 Jóhann Ómarsson, ÍR .............................. 90
2,03 Jón Arnar Magnússon, HSK ........................... 92
58