Íþróttablaðið - 01.04.1994, Page 56
Grip framtíðarinnar?
Kylfingurinn JIM McLEAN heldur
því fram að nýja gripið, sem hann
hefur kennt þegar verið er að sippa,
eigi framtíð fyrir sér meðal atvinnu-
kylfinga. Gefum honum orðið: Marg-
ir golfarar eiga í erfiðleikum með að
sippa. Eittalgengasta vandamálið hjá
þeim, sem er að læra golf, er tilhneig-
ingin til þess að beygja úlnlið vinstri
handar sem dregur boltann töluvert
til vinstri. Önnur algeng mistök er
slæm staða hægri úlnliðs sem fleytir
boltanum mun lægra og lengra en
áætlað var.
Til þess að koma í veg fyrir bæði
þessi mistök læt ég nemendur mína
sippa með „krosslögðu gripi" — þ.e.
að vinstri höndin sé fyrir neðan þá
hægri.
Þetta grip kemur í veg fyrir að þú
beygir vinstri úlnlið eins og þú hefur
tilhneigingu til að gera með venju-
legu gripi. Þess í staðer vinstri úlnlið-
urinn og handleggurinn flatur í högg-
inu en það hefur áhrif á kylfuhausinn
til hins betra. Stefnan á boltanum
verður mun betri fyrir bragðið.
Þegar vinstri úlnliðurinn er flatur
verður sá hægri aðeins boginn (sjá
mynd) en þetta gerir það að verkum
að sveiflan verður „brattari" og nið-
ursveiflan lægri. Boltinn lyftist upp
ogskopparminnaog með þessu móti
„ræðurðu" betur við fjarlægðina.
Það gæti virkað ankannalegt að
prófa þessa handabreytingu en til
þess að nábeturtökum á henni skaltu
gera þetta: Settu bolta (sömu stærðar
og fótbolti) milli handleggjanna en
með því móti vinna handleggirnir
betur saman. Festu blýant á vinstri
úlnliðinn (sjá mynd) en hann kemur í
veg fyrir að þú beygir úlnliðinn.
Hafðu lítið bil á milli fóta, boltann
fyrir framan hægri fótinn. Byrjaðu
sveifluna með því að draga vinstri
öxlina að kinninni. Haltu höfðinu og
líkamanum stöðugum og boltinn á
að vera þægilega skorðaður milli
handleggjanna. Byrjaðu niðursveifl-
una með því að færa líkamsþungann
yfir á vinstri fótinn og hægri mjöðmin
snýst í áttina að holunni. Fylgdu
sveiflunni vel í gegn eða eins langt í
gegn og þú fórst í baksveiflunni og
gættu þess að missa ekki boltann.
Þegar þú hefur náð tökum á þessu
skaltu fjarlægja boltann og blýantinn
ogsjáðu hvað gerist. (Golf magazine)
EITT eða TVÖ??
Boltinn hans Palla er ósláan-
legur undir tré. Hann ákveður að
„droppa" boltanum rúmlega 9
metrum aftar en boltinn lá og
heldur handleggnum í beinni
stefnu að holunni. Þegar hann
sleppirboltanum rúllarhann tæp-
an metra í áttina að holunni. Er
honum skylt að „droppa" boltan-
um aftur?
NEI! Þetta er gott. og gilt svo
framarlega sem boltinn rúllaði
ekki í ójöfnu, t.d. hjólfar, sand-
gryfju eða inn á grínið. Palli fær
víti ákveði hann að taka boltann
upp og endurtaka „droppið" —
eða við það að taka boltann upp.
Margir kylfingar telja að bolti
megi ekki rúlla nær holu þegar
„droppað" er en það er sem sagt í
lagi.
(Golf magazine)