Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1969, Blaðsíða 3
Fylgt úr hlaði
Rannsóknastofnun landbúnaðarins var stofnsett samkv. lögum nr. 64/1965
um rannsóknir í þágu atvinnuveganna. Voru rannsóknir i landbúnaði, sem
verið höfðu í höndum landbúnaðardeildar Atvinnudeildar Háskólans, tilrauna-
stöðvanna og tilraunaráðanna í jarðrækt og búfjárrœkt og Verkfæranefndar
rikisins, þá sameinaðar i einni stofnun: Rannsóknastofnun landbúnaðarins.
Landbúnaðardeildin hagaði útgáfustarfsemi sinni þannig, að birtar voru
styttri og lengri skýrslur um niðurstöður rannsókna og tilrauna, sem gerðar
voru i stofnuninni, tilraunastöðvunum og tilraunabúunum, til leiðbeiningar
fyrir bændur um hagnýtar upplýsingar af tilraunastarfseminni.
Útgáfunni var þannig háttað, að gefnar voru út skýrslur í A- og B-flokki.
1 A-flokki voru birtar bráðabirgðaniðurstöður tilrauna, sem stóðu yfir í nokkur
ár, en í B-flokki voru ritgerðir um lokaniðurstöður tilraunanna.
Nú hefur verið ákveðið að breyta til með fyrirkomulag á útgáfustarfseminni
og gefa út timarit, sem birtir greinar um niðurstöður af tilraunastarfsemi Rann-
sóknastofnunar landbúnaðarins, svo og frá öðrum aðilum, er vinna að land-
búnaðarrannsóknum.
Með útgáfu þessa tímarits, sem nú hefur göngu sína og hlotið hefur heitið
íslenzkar landbúnaðarrannsóknir, er tilgangurinn, eins og að ofan greinir, sá
að koma meðal annars hagnýtum niðurstöðum af tilraunastarfseminni til þeirra,
sem við landbúnað fást, og auka þekkingu þeirra á því, sem bezt hentar til
búskapar við hérlendar aðstæður.
Staðgóð þekking á atvinnuvegum þjóðanna er nauðsynlegri nú en nokkru
sinni fyrr i þeirri öru þróun og hörðu samkeppni, sem i heiminum er um gæði
lifsins. Gildir þetta ekki síður um landbúnað en aðrar atvinnugreinar.
Vonir standa til, að rit þetta verði fjölbreytt að efni og fróðlegt til lestrar.
Dr. Sturla Friðriksson hefur verið ráðinn til þess að annast ritstjórn tíma-
ritsins. í ritnefnd þess hafa verið valdir þeir Friðrik Pálmason, Gunnar Ólafs-
son og Halldór Pálsson.
PÉTUR GUNNARSSON.