Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1969, Blaðsíða 85
Leiðbeiningar
um framsetningu og frágang á handritum greina,
sem birtast eiga í ritinu.
HANDRIT
Æskilegt er, að höfundar, er senda handrit
til birtingar í ritinu, hafi hugfast, að greinar
þeirra séu gagnorðar, rökfastar og skýri frá stað-
reyndum. Handritið skal vera vélritað með tvö-
földu línubil og góðri spássíu á A4 vélrit-
unarpappír. Gera skal grein fyrir því með
undirstrikun, livaða orð eða kaflar skuli vera
skáletraðir. Vanda skal frágang og réttritun á
handriti og bera sérstaklega saman tölur við
frumgögn og yfirfara erlend fræðiheiti vand-
lega. Númera skal blaðsíður í réttri töluröð í
hægra horni. Senda skal frumritið og tvö afrit,
en halda þó eftir afriti.
FRAMSETNING OG
NIÐURRÖÐUN EFNIS
Fyrirsögn. Greinin skal hefjast á fyrirsögn
á íslenzku, og undir henni skal vera enskur
texti. Heiti greinarinnar á að geta gefið skýra
mynd af efninu. Undir fyrirsögnum komi nafn
eða nöfn höfunda, með starfsheitum og þá
einnig heiti þeirrar stofnunar, sem höfundar
starfa við.
Inngangur. í inngangi, sem á að vera stutt-
orður, skal greina frá tilgangi og markmiði
rannsóknarinnar, þar sem skýrt er frá aðalástæð-
um fyrir því, að rannsókn var hafin.
Þegar ástæða er til, skal vitna í áðurunnar
rannsóknir, sem á einhvern hátt eru hliðstæðar
þeirri, sem greint er frá og nauðsynlegt hefur
þótt að styðjast við eða hafa til hliðsjónar við
rannsóknina. Slíkar tilvitnanir má eftir atvik-
um hafa í sér kafla.
Lýsing tilraunar (athugunar). Greina skal frá
rannsóknaraðferð og rannsóknarefni, annarri
tilhögun og framkvæmd rannsóknarinnar. Skýra
skal nákvæmlega frá smáatriðum, ef þurfa þykir,
eða vitna til fyrri skýringa og heimilda.
Niðurstööur. Greina skal frá árangri rann-
sóknarinnar á skipulegan hátt, hvort heldur er
í texta, töflum eða línuritum, en ekki rætt um
gildi niðurstaðna, ef sérstakur kafli með álykt-
unarorðum fylgir.
Ályktunarorð. Ályktanir skulu dregnar af
niðurstöðum rannsóknarinnar og rætt um vís-
indalegt og/eða hagnýtt gildi þeirra og hvort
samræmi sé milli þessara niðurstaðna og fyrri
árangurs eða hvort um misræmi sé að ræða.
Stundum er rétt að hafa niðurstöður og álykt-
unarorð í einum kafla, sérstaklega þegar um
mjög stuttar ritgerðir er að ræða.
Yfirlit. Sérhverri grein skal fylgja yfirlit á
íslenzku. Það á að vera stuttur, en skýr útdrátt-
ur úr greininni og ekki lengri en 5% af lengd
hennar.