Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1969, Blaðsíða 60
58 ÍSLENZKAR LANDBUNAÐARRANNSÓKNIR
26 —
24 —
22 _
20 _
18;__
CZU Fjalldrapi - fíetula nana
CZ3 Klófífa - Erioþhorum angustifolium
Kalsíurn
Kalsíuminnihaldið er mjög hátt í elítingu,
0.40—1.42%, allhátt í fjalldrapa, fremur lágt
í klófífu og nijög lágt í túnvingli.
Innihaldið hækkar allreglulega frá vori
fram i september—nóvember, en lækkar
síðan. Þessi breyting er minnst og óreglu-
legust í túnvingli.
Fosfór
Fosfórinnihaldið er hæst í elftingu og fjall-
drapa, en mjög lágt í hinum tegundunum.
Það verður t. d. aldrei hærra en 0.14%
í túnvingli, og það er 0.02—0.17% í kló-
fífu.
Innihaldið hefur yfirleitt náð lágmarki
í október.
Magníum
Um magníuminnihaldið gildir nær hið
sama og um kalsíum. Það er hæst í elfting-
unni yfir sumarið, allhátt í fjalldrapa,
fremur lágt í klófífu og mjög lágt í tún-
vingli. Það hækkar nokkuð frá vori fram
í ágúst—september, en lækkar síðan. Slík
breyting á sér þó ekki stað í túnvingli.
Kalsíum-fosfór-hlutfallið
Kalsíum-fosfórhlutfallið í plöntunum frá
Hvanneyri breytist á svipaðan hátt með
árstíma og í Heiðmörk, þ. e. a. s. það
hækkar fram í september—október, en
lækkar síðan.
Langhæst verður hlutfallið í klófífu, 30.
en einnig mjög hátt í mýrelftingu, 17.