Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1969, Blaðsíða 8
6 ÍSLENZKAR LANDBUNAÐARRANNSÓKNIR
TAFLA I - TABLE I
Dagleg fóðurnotkun á kálf í eldistilraun 1964
Daily arnount of feerh used per calf in feed trial 1964
Frá — til Period Dagar alls Number of days Þurrmjólkur- rnjöl á dag Dried whole and skimmed milk mixture g Þurrmjólkur- mjöl samtals Total arnount of þowder kg Drykkur á dag Volume when mixed with water í Mjólk á dag Whole milk daily i Mjólk samtals Whole milk total 1
22/5-30/5 10 300 3.000
1/6- 3/6 3 350 1.050
4/6- 6/6 3 50 0.150 1-1.5 3.5 10.5
7/6-13/6 7 100 0.700 9 3.5 24.5
14/6—20/6 7 500 3.500 5 1.5 10.5
21/6-27/6 7 925 6.475 7
28/6- 1/7 4 1050 4.200 8
2/7- 5/7 4 1100 4.400 9
6/7-11/7 6 1200 7.200 9
12/7-18/7 7 1325 9.275 10
19/7—25/7 7 1425 9.975 10
26/7- 2/8 8 1550 12.400 11
3/8- 8/8 6 1700 10.200 12
9/8-15/8 7 1850 12.950 12
16/8-22/8 7 2000 14.000 13
23/8—27/8 5 2200 11.000 13
Samtals á kálf
Total per calf 98 110.475 45.5
af drykk, þ. e. þurrmjólkurmjölinu, út-
hrærðu í vatni. Hver kálfur var fóðraður
sér, en drykkinn handa kálfunum varð að
blanda í einu lagi og síðan deila honum
niður í drykkjarílát kálfanna. Kom þá í
Ijós, að sumir kálfarnir torguðu ekki ætíð
því, sent til var ætlazt. Einkum bar á þessu,
þá er líða tók á tilraunina. Matarlyst kálf-
anna var þó mjög duttlungafull og óút-
reiknanleg frá degi til dags og máli til
máls. Var því ógerlegt að taka tillit til
þessa við undirbúning fóðrunarinnar. Þetta
kom því fram sem leifar í drykkjardöllum
kálfanna, og voru þær vegnar frá dag-
skammtinum, en fóru annars í vaskinn.
Þetta fóðurtap nam um 4.6% af þurrmjólk-
urgjöfinni, og er á töflu II dregið frá
fóðri hvers einstaks kálfs, og fæst þá hin
raunverulega fóðureyðsla á hvern kálf af
þurrmjólk og nýmjólk. Henni er síðan
breytt í fóðureiningar, og er þá gert ráð
fyrir, að hvert kg af þurrmjólkurblöndunni
gefi 1.5 F.E., en af nýmjólkinni þurfi 3 kg
í F.E.
Kálfarnir voru fóðraðir tvisvar á dag, kl.
9.30—10.30 að morgni og 6—7 að kvöldi.
Mjólkurmjölsskammturinn var veginn í
hvert mál og hrærður út í hæfilegu vatns-
magni í stóru keri, en blandan því næst
mæld í fötur handa kálfunum. Hitastig