Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1969, Blaðsíða 11
ELDI SLÁTURKÁLFA 9
TAFLA IV - TABLE IV
Fóðurnotkun í kálfaeldistilraun á Lundi 1965
Amount of feed used in feed trial 1965
Dagar Period Tala Number Mjólkurmjöl g á dag Dried whole and skimmed milk powder in s per day Drykkur á dag, lítrar Volume when mixed with water, l Mjöl alls á kálf, kg Total of mix- ture per calf
23/5-28/5 6 900 7.0 5.400
29/5— 3/6 6 1035 7.0 6.210
4/6-11/6 8 1200 9.0 9.600
12/6-18/6 7 1380 10.0 9.660
19/6-26/6 8 1430 10.0 11.440
27/6- 9/7 13 1545 11.0 20.085
10/7-23/7 14 1740 12.0 24.360
24/7- 6/8 14 1910 13.2 26.740
7/8-16/8 10 2066 13.2 20.660
Samtals 134.155
Total
Frá aðlögunarskeiði .... 6.188 + 22.3 1 mjólk
Pre-trial period added whole milk
Alls 140.343 kg + 22.3 1 nýmjólk á kálf
Total whole milk per calf
Fóðrunin var eins fyrir alla kálfana, en
breyttist að sjálfsögðu eftir því sem kálf-
arnir eltust. Þetta er sýnt á töflu III. Fyrstu
17 dagana, er nefna mætti aðlögunarskeið-
ið, fengu kálfarnir fyrst nýmjólk einvörð-
ungu. Síðan var nýmjólkin smáminnkuð,
en mjólkurmjöl látið koma í staðinn, fyrst
nýmjólkurmjöl, en síðan einnig undan-
rennumjöl í vaxandi mæli, unz hlutfallinu
1:3 var náð. Þetta var gert í þeim tilgangi
að forðast snögga fóðurbreytingu og þannig
reyna að sporna við því, að kálfarnir fengju
þunnlífi. Þetta heppnaðist þó ekki, og er
vafamál, hvort ekki hefði verið alveg eins
hagkvæmt að gera aðlögunarskeiðið miklu
skemmra, svo sem gert var með nr. 6, er
kom síðastur í tilraunina.
Þar eð kálfarnir komu ekki allir sam-
tímis í tilraunina, varð nýmjólkurmagnið,
sem þeir fengu, nokkuð mismunandi. í
töflunni er þó gert ráð fyrir meðalmagni
fyrir alla kálfana nema nr. 6, sem kom
langsíðastur. Að lokum er hann þó líka
tekinn inn í meðaltalið.
Tafla IV sýnir, hvernig fóðrunin var á
ýmsum tímum tilraunarinnar, eftir að að-
lögun lauk, og hvernig hún breyttist. Síð-
asti dálkur töflunnar er svo samandregið
magn af mjólkurmjöli, sem hver kálfur hef-
ur fengið á öllu tilraunaskeiðinu að meðal-
tali. Síðar er svo gerð grein fyrir röskun,
sem orðið hefur á þessu varðandi hvern
einstakan kálf.
Gjöfin var alltaf aukin smám saman, svo