Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1969, Blaðsíða 30
ÍSL. LANDBÚN.
J. AGR. RES. ICEL.
1969 1: 28-37
Uppgræðslutilraun á Mosfellsheiði
Sturla Friðriksson
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
Yfirlit. Fjórum grastegundum: túnvingii, vallarfoxgrasi, háliðagrasi og vallarsveif-
grasi, var sáð í 2 m- reiti með þremur endurtekningum á vörðum og óvörðum svæðum
á Mosfellsheiði. Yoru svæðin mishátt yfir sjávarmáli, í 100 m, 220 m, 372 m, 670 m og
771 m hæð.
A reiti þessa var borinn áburður sem svarar til 200 kg af þrífosfati og 300 kg af kjarna
á hektara. Borið var á fyrri hluta sumars í alls fjögur sumur og mælingar gerðar á gróð-
urfari athugunarsvæðanna.
Reyndist vöxtur misjafn milli tegunda, svo og milli vaxtarstaða. Eftir fjögurra ára
ræktun höfðu einkum túnvingull og vallarfoxgras náð að mynda þéttan svörð og varð
svarðmyndun örari í vörðu reitunum. Þéttleiki svarðar, svo og lengdarvöxtur og uppskeru-
magn fór heldur minnkandi eftir því, sem hærra dró í landið. Fór þó ekki verulega að
draga pr vexti, fyrr en komið var í og yfir 670 m hæð. Upp undir þau hæðarmörk virðist
með góðu móti unnt að nota sáningu og áburðardreifingu til uppgræðslu.
INNGANGUR
Uppgræðslutilraunir, áður framkvæmdar á
vegum Atvinnudeildar Háskólans á Bisk-
upstungnaafrétti, leiddu í ljós, að talsverð-
ur munur var á þroska og uppskerumagni
grastegunda, eftir því hve hátt yfir sjó
vaxtarstaðir þeirra voru (Sturla Fribriks-
son 1960, Ingvi Þorsteinsson og Björn
Sigurbjörnsson 1961). Eðlilegt var að
álykta, að vöxtur grasa væri þeim mun
minni sem ræktunarstaður þeirra lá hærra
ylir sjó. Hins vegar gat fjarlægðarmunur
frá strönd einnig haft áhrif á vöxtinn í
umræddri tilraun, þar sem nreiri rnegin-
landsveðráttu gætir inni í landinu, en
hins vegar býr gróður við umhleypinga-
sarnara veðurfar nær ströndinni. Þótti for-
vitnilegt að rannsaka betur, hver væru
raunveruleg áhrif hæðarinnar og upp að
livaða hæðarmörkum væri með góðu móti
unnt að græða upp land með sáningu og
áburði.
í því skyni var efnt til nýrrar tilraunar,
sem þó var með nokkuð svipuðu fyrir-
komulagi og tilraunin á Biskupstungnaaf-
rétti, og átti hún að veita nánari upplýs-
ingar um vaxtarhæfni ýmissa sáðgrasa í
mismunandi hæð yfir sjó. Verður hér lýst
fyrirkomulagi og helztu niðurstöðum þeirr-
ar athugunar.
TILHÖGUN TILRAUNAR
OG MÆLINGAR
Rannsókn þessari var valið land á Mosfells-
heiði, og voru þar reistar fjárheldar girð-
ingar á fimm stöðum. Lágu athugunar-
svæðin mishátt yfir sjávarmáli, eða við
Skeggjastaði í 100 m hæð, í Bugðumóa 220
m, á Kýrhólahæð 372 m, á Skálafellsöxl
670 m og á Skálafellstindi í 771 m hæð yfir
sjó (mynd 1). Ekki voru athugunarsvæðin
öll jafngróin í byrjun. Á Skeggjastöð-
um og í Bugðumóa var girðingin reist á
grónum lyngmóa, á Kýrhólahæð var nokk-