Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1969, Síða 85

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1969, Síða 85
Leiðbeiningar um framsetningu og frágang á handritum greina, sem birtast eiga í ritinu. HANDRIT Æskilegt er, að höfundar, er senda handrit til birtingar í ritinu, hafi hugfast, að greinar þeirra séu gagnorðar, rökfastar og skýri frá stað- reyndum. Handritið skal vera vélritað með tvö- földu línubil og góðri spássíu á A4 vélrit- unarpappír. Gera skal grein fyrir því með undirstrikun, livaða orð eða kaflar skuli vera skáletraðir. Vanda skal frágang og réttritun á handriti og bera sérstaklega saman tölur við frumgögn og yfirfara erlend fræðiheiti vand- lega. Númera skal blaðsíður í réttri töluröð í hægra horni. Senda skal frumritið og tvö afrit, en halda þó eftir afriti. FRAMSETNING OG NIÐURRÖÐUN EFNIS Fyrirsögn. Greinin skal hefjast á fyrirsögn á íslenzku, og undir henni skal vera enskur texti. Heiti greinarinnar á að geta gefið skýra mynd af efninu. Undir fyrirsögnum komi nafn eða nöfn höfunda, með starfsheitum og þá einnig heiti þeirrar stofnunar, sem höfundar starfa við. Inngangur. í inngangi, sem á að vera stutt- orður, skal greina frá tilgangi og markmiði rannsóknarinnar, þar sem skýrt er frá aðalástæð- um fyrir því, að rannsókn var hafin. Þegar ástæða er til, skal vitna í áðurunnar rannsóknir, sem á einhvern hátt eru hliðstæðar þeirri, sem greint er frá og nauðsynlegt hefur þótt að styðjast við eða hafa til hliðsjónar við rannsóknina. Slíkar tilvitnanir má eftir atvik- um hafa í sér kafla. Lýsing tilraunar (athugunar). Greina skal frá rannsóknaraðferð og rannsóknarefni, annarri tilhögun og framkvæmd rannsóknarinnar. Skýra skal nákvæmlega frá smáatriðum, ef þurfa þykir, eða vitna til fyrri skýringa og heimilda. Niðurstööur. Greina skal frá árangri rann- sóknarinnar á skipulegan hátt, hvort heldur er í texta, töflum eða línuritum, en ekki rætt um gildi niðurstaðna, ef sérstakur kafli með álykt- unarorðum fylgir. Ályktunarorð. Ályktanir skulu dregnar af niðurstöðum rannsóknarinnar og rætt um vís- indalegt og/eða hagnýtt gildi þeirra og hvort samræmi sé milli þessara niðurstaðna og fyrri árangurs eða hvort um misræmi sé að ræða. Stundum er rétt að hafa niðurstöður og álykt- unarorð í einum kafla, sérstaklega þegar um mjög stuttar ritgerðir er að ræða. Yfirlit. Sérhverri grein skal fylgja yfirlit á íslenzku. Það á að vera stuttur, en skýr útdrátt- ur úr greininni og ekki lengri en 5% af lengd hennar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.