Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1969, Page 81

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1969, Page 81
VAXTARKJÖR GROÐURS VIÐ SKAFL 79 og lofthitinn, og sé jarðvegurinn mjög rak- ur af leysingavatni, hitnar hann seinna en þurrari jarðvegur ofan skafls. Undir sjálfum skaflinum var enginn jarðklaki, en nokkru neðar var klaki, sem hefur annaðhvort myndazt um haustið, áður en snjór féll, eða í frostum eftir hlákuskeið vetrar og vors. Athyglisvert er, að kalskemmdir voru einungis, þar sem klaki var í jörðu. Óvíst er, hvort klakinn var valdur að kalinu eða hefur myndazt samtímis kalinu. Hafi klakinn myndazt um haustið, hefur hann getað hindrað leys- ingavatn í að síga brott á hlákuskeiðum vetrarins. Næstu frost hafa síðan getað valdið kalinu. Hins vegar getur einnig ver- ið, að enginn klaki hafi myndazt fyrr en í frostunum eftir hlákuskeiðið og klakinn þá orðið til samtímis kalinu. Einnig getur kalið hafa myndazt við leysingu skaflsins, meðan rönd hans lá við kalsvæðið, en á þeim tíma mun enn hafa gætt næturfrosta. Vaxtarmælingar leiddu í ljós, að vallar- sveifgras og hálíngresi hófu vöxt fyrst allra grastegunda, og hafði skaflinn þau áhrif á gróður að seinka upphafi vaxtar. Sá gróð- ur, sem lá lengst undir skaflinum, var því síðbúnari framan af vaxtarskeiðinu og mældist styttri, en munurinn hvarf, þegar leið á sumarið. Uppskerumagn var framan af sumri háð því, hve snemma gróðurinn kont undan skaflinum, en síðar á sumrinu varð þessi munur að engu. Hlutdeild eggjahvítu og trénis í gróðrinum virtist að nokkru háð því, hvenær gróður kom undan snjónum. Var síðbúnari gróður eggjahvíturíkur og trénislítill Þessara eiginleika gætti einnig í gróðri, sem óx í kalskellunum, enda bar þar mest á síðsprottnum jurtum. Ekki verður af þessari athugun séð, að gróður kali undir síðleystum sköflum, þótt í þeim sé þétt klakalag. Túnið framan við skafl þann, sem kannaður var, hafði hins vegar kalið allmikið, og hafa aðstæður þær, sem valdið hafa kali þar, verið aðrar en á athugunarsvæðinu. Kalið varð fyrr um árið, og verður ekki beint ráðið af þessari athugun, hvaða aðstæður ollu því. Þó er auðsætt, að kal virðist samfara jarðklaka og snjóalögum, en síðleystir skaflar verja gróður gegn hretum og áhlaupum vorsins. ÞAKKARORÐ Athugun þessi var að verulegu leyti fram- kvæmd fyrir hluta styrks, sem Vísindasjóð- ur veitti Rannsóknastofnun landbúnaðar- ins til kalrannsókna árið 1967. Ákvörðun á eggjahvítu og tréni í grasi var gerð undir umsjón Óskars Bjarnason- ar, deildarstjóra við Rannsóknastofnun iðn- aðarins. Þórarinn Jónsson, bóndi á Skarðaborg, veitti afnot athugunarsvæðisins og margvís- lega aðstoð við framkvæmd athugunar. Öllum þessum aðilum ber að þakka veittan stuðning.

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.