Ljósmæðrablaðið - des. 2020, Blaðsíða 4
4
Ár hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra 2020 sem Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) tileinkaði
er senn á enda. Vegna COVID-19 varð minna um
atburði sem félög þessara systurstétta ætluðu að
halda til að vekja athygli á mikilvægi starfa þeirra í
heilbrigðisþjónustunni.
Stjórn Ljósmæðrafélagsins vildi bæta úr og óskaði
eftir því við ritnefnd Ljósmæðrablaðsins að í tilefni
ársins 2020 yrði gefið út sérstakt blað. Það kemur nú
út fyrir ykkar sjónir, í öðru broti með efni til heiðurs
starfi ljósmæðra víða um heim. Vonumst við til þess
að þetta blað fái verðugan sess á heimilum með það
fyrir augum að það sjáist og geymist sem lengst og
störf ljósmæðra verði metin að verðleikum.
Sérstakur liðsauki var fenginn til að koma með
hugmyndir um hönnun og efnistök í blaðinu en það
eru listakonurnar Sunna María Schram og Sunna
María Helgadóttir, nýútskrifaðar ljósmæður. Strax
kom upp í hugann að tengja þetta þeirri staðreynd
að liðin er heil öld síðan Ljósmæðrafélagið var stofn-
að og að ákveðinn þráður í gegnum blaðið sýndi
margþætt störf og fagsvið ljósmæðra á liðinni öld.
Í þessu skyni var ákveðið að fá listakonur til að gera
portrett myndir af baráttukonum og leiðtogum sem
hafa haft áhrif, við ólíkar aðstæður, á barneignar-
þjónustu, heilsu og valdeflingu kvenna frá fortíð til
framtíðar. Hugmyndin var að vissu leyti unnin út frá
bókinni Kvöldsögur fyrir uppreisnargjarnar stelpur
eftir Elena Favilli og Francesca Cavallo sem Magnea
J.Matthíasdóttir þýddi og kom út árið 2017. Forsíð-
an var síðan hönnuð af þeim nöfnum og myndirn-
ar settar upp eins og á skólaspjaldi fyrri tíma. Inni í
blaðinu er svo hægt að kynnast og fræðast nánar um
„skólasysturnar“.
Á milli myndanna er svo hefðbundið efni, fræði-
greinar, frásagnir og umfjöllun um fagleg málefni,
ársskýrslur og fréttir úr félagsstarfinu. Umsögn fé-
lagsins um nýtt frumvarp um fæðingar- og foreldra-
orlof er kynnt og sagt er frá lokahófi og afrakstri
Twinning Up North verkefnisins sem lauk nú í nóv-
ember. Pistill frá formanni er sá síðasti frá núverandi
formanni Ljósmæðrafélagsins en Áslaug Valsdóttir
lýkur sínu starfstímabili á aðalfundi í mars 2021. Aug-
lýst er eftir framboðum í blaðinu, ljósmóður „með
brennandi áhuga á að vinna að málum ljósmæðra“.
Í gegnum tíðina hefur vinnuálag hjá ljósmæðr-
um verið mikið sem getur haft slæmar afleiðingar
ekki síst þegar alvarleg atvik verða í starfi. Upplifun
ljósmæðra sem hætta störfum vegna þessa er lýst
í ritrýndri grein sem byggir á nýlegri meistararann-
Ritstjórnarpistill
Ár ljósmæðra
Ólöf Ásta Ólafsdóttir, ritstjóri