Ljósmæðrablaðið - des. 2020, Blaðsíða 51
51
Val á þátttakendum
Við val á þátttakendum var upphaflega notast við
tilgangsúrtak ljósmæðra sem hætt hafa störfum í
kjölfar alvarlegs atviks í starfi á fæðingardeildum.
Óskað var eftir þátttöku ljósmæðra með tölvu-
pósti sem sendur var á allar ljósmæður sem eru í
Ljósmæðrafélagi Íslands og auglýsing birt á spjall-
síðu ljósmæðra á fésbókinni. Þær ljósmæður sem
áhuga höfðu á að taka þátt í rannsókninni sendu
tölvupóst á rannsakanda sem annaðist gagna-
öflun. Á þennan hátt fengust fjórar ljósmæður til
þátttöku. Þar sem ljóst var að fleiri þátttakendur
þyrfti til, svo að heildarmynd af fyrirbærinu fengist,
var skipt yfir í snjóboltaúrtak. Á þann hátt fengust
þrjár ljósmæður til viðbótar í rannsóknina en ein
ljósmóðir sem talað var við hafnaði þátttöku. Þátt-
takendur í rannsókninni voru alls sjö.
Önnur skilyrði fyrir þátttöku voru að geta tjáð
sig á íslensku og að sex mánuðir að lágmarki væru
liðnir frá atviki. Samkvæmt Vancouver-skólanum
er mikilvægt að þátttakendur séu ekki staddir í
miðri reynslu heldur geti litið til baka og miðlað af
reynslu sinni þegar ákveðið jafnvægi hefur náðst
og ígrundun farið fram (Sigríður Halldórsdóttir,
2013b).
Gagnaöflun og gagnagreining
Úrvinnsla viðtalanna var samkvæmt rannsóknarferli
Vancouver-skólans. Ekki reyndist nauðsynlegt að fá
leyfi Vísindasiðanefndar fyrir rannsókninni en hún
var tilkynnt til persónuverndar.
Tekin voru eitt til tvö djúpviðtöl við hvern þátt-
takanda og alls urðu viðtölin tólf. Öll viðtölin voru
hljóðrituð og fóru fram á stað að vali þátttakenda.
Við upphaf allra viðtalanna fengu þátttakendur af-
hent kynningarbréf og þátttakendum var kynntur
réttur þeirra til að hætta þátttöku í rannsókninni, en
þátttaka í viðtalinu gilti sem upplýst samþykki fyrir
þátttöku. Viðtölin voru opnuð með spurningunni:
„Getur þú sagt mér hvaða atvik varð til þess að þú
hættir að vinna við fæðingar“ og stuðst var í fram-
haldinu við fyrirframgerðan viðtalsramma auk þess
sem svörum þátttakenda var fylgt eftir. Gagnaöflun
fór fram á tímabilinu janúar til mars 2019 og tók
fyrsti höfundur öll viðtölin. Þátttakendum var kynnt
við upphaf viðtals möguleiki á viðtali við fagaðila,
sálfræðing, ef viðtalið eða upprifjun á erfiðu atviki
hefði slæm áhrif á líðan þeirra. Enginn viðmælenda
nýtti sér að ræða við sálfræðing í kjölfar viðtalsins.
Öll viðtöl voru hljóðrituð og rituð orðrétt upp. Báð-
ir höfundar komu að greiningu gagna, annar þeirra
með mikla reynslu af gagnagreiningu í eigindleg-
um rannsóknum, en þau voru greind með aðferð
Vancouver skólans þar sem reynt var að komast að
kjarnanum í reynslu ljósmæðranna og út frá því sett
fram greiningarlíkan (Mynd 1). Vegna þess hversu
fámenn stétt ljósmæður á Íslandi er er ekki gefinn
upp aldur ljósmæðranna, starfsaldur þeirra, hvar
þær störfuðu þegar atvikið varð sem leiddi til þess
að þær hættu störfum, né hversu langt var liðið frá
því að atvikin áttu sér stað. Ljósmæðurnar sem tek-
in voru viðtöl við störfuðu á þrem fæðingarstöðum
á landinu.
Niðurstöður
Í þessari rannsókn var markmiðið að fá innsýn í
upplifun ljósmæðra af því að hætta störfum við
fæðingar í kjölfar alvarlegra atvika í starfi, ásamt
því að skoða sérstaklega hver upplifun ljósmæðr-
anna var af stuðningi í kjölfar áfallsins. Afleiðingar
atvikanna á skjólstæðinga voru mismiklar en allar
ljósmæðurnar lýstu atvikum þar sem þær höfðu
metið aðstæður þannig að líf móður og/eða barns
var í hættu. Útkoma atvikanna var breytileg eða allt
frá því að enginn skaði varð og allt til þess að atvik
leiddi til dauða barns.
Greind voru þemu út frá frásögnum ljósmæðr-
anna og varð yfirþema rannsóknarinnar nefnt;
þetta lifir með manni, alltaf, sem vísar til þess að
atvikið, afleiðingar þess og ákvarðanir ljósmæðra í
kjölfar atviksins höfðu, á einn eða annan hátt, áhrif
á bæði líf þeirra og líðan til langframa. Meginþemu
voru sjö það er: stuðningur eða stuðningsleysi;
ekki nógu sterk til að standa með sjálfri mér; að
missa hluta af sjálfum sér eða verða maður sjálfur
á ný; tækifæri til að læra; aðstæður og fyrri reynsla
spilar inn í upplifunina; endalaust álag í vinnu fer
illa með mann og að lokum, áfallið og áhrifin þegar
frá líður.
Stuðningur og stuðningsleysi
Fyrsta meginþemað lýsir upplifun ljósmæðranna af
þeim stuðningi eða stuðningsleysi sem þær upp-