Ljósmæðrablaðið - des. 2020, Blaðsíða 82
82
Það var haustið 2016 sem ég tók við teymi sem sinnir
umsækjendum um alþjóðlega vernd hjá Reykjavíkur-
borg. Áður hafði ég sinnt öðru deildarstjórastarfi hjá
Reykjavíkurborg og stýrt teymisvinnu og hafði því
reynslu af að vinna með flókin mál þar sem einstak-
lingar áttu við margháttaðan vanda að etja sem og
barnaverndarmál. Þessi reynsla hefur nýst mér vel en
vinna með umsækjendum um alþjóðlega vernd (hér
eftir: umsækjendur) hefur verið krefjandi og flókin en
á sama tíma lærdómsrík og gefandi.
Helstu verkefnin mín eru í stuttu máli; ábyrgð á
faglegu starfi, vinnubrögðum, uppbyggingu og
skipulagi teymisins sem og samstarfi og samvinnu
við aðrar stofnanir. Ég ber einnig ábyrgð á fjárhags-
áætlun teymisins, starfsmannahaldi og skipulagi
starfa, ráðningum, símenntun, handleiðslu og fleiru
starfsmannatengdu. Ég leiðbeini starfsmönnum og
veiti þeim ráðgjöf í starfi, meðal annars með því að
styðja starfsmenn og hjálpa þeim við að takast á við
ógnandi og erfiðar aðstæður í starfi.
Í mínu teymi, sem sinnir umsækjendum, eru 13
starfsmenn í 11,8 stöðugildum. Teymið okkar er
fjölbreyttur, fjölþjóðlegur hópur frá sex þjóðlönd-
um, með ólíka menntun og ólíkan bakgrunn. Það
eru starfsmenn í húsnæðisteymi, stuðningsþjónustu,
menningarmiðlun (brúarsmiðir) og svo málstjórar
sem bera ábyrgð á einstökum málum. Málstjórar
hafa yfirsýn yfir þá þjónustu sem einstaklingar og
fjölskyldur fá, taka viðtöl, gera einstaklingsáætlan-
ir, fara í heimavitjanir og sjá um samskipti og fundi
við leik- og grunnskóla og það sem til fellur í hverju
máli fyrir sig. Við sinnum eingöngu þeim sem koma
á eigin vegum til landsins og sækja formlega um
alþjóðlega vernd af pólitískum og/eða mannúðará-
stæðum. Yfirvöld ákveða síðan hvort viðkomandi falli
undir skilgreiningu Flóttamannastofnunar um hvort
viðkomandi umsækjandi teljist flóttamaður eða ekki.
Árið 2014 gerði Útlendingastofnun (UTL) samn-
ing við Reykjavíkurborg (þjónustuaðili ) um þjónustu
við umsækjendur, en áður var það alfarið í hönd-
um Reykjanesbæjar. Samningur við velferðarsvið
Reykjavíkurborgar tók gildi í janúar 2014 og var
Þjónusta við umsækjendur
um alþjóðlega vernd (UAV)
hjá Reykjavíkurborg.
Magdalena Kjartansdóttir, deildarstjóri