Ljósmæðrablaðið - des. 2020, Blaðsíða 68
68
Salbjörg Jóhannsdóttir (1896-1991) ljósmóðir og
Ingvar Ásgeirsson (1886-1956) smiður og bók-
bindari, voru leigjendur í gömlum torfbæ í Un-
aðsdal á Snæfjallaströnd á árunum 1925 til 1936
að þau fluttu á nýbýlið Lyngholt í sömu sveit.
Þegar Kristný Pálmadóttir ljósmóðir í Bæjum
hætti og flutti í Ögurnes báðu hreppsnefndar-
menn Salbjörgu að taka að sér ljósmóðurstarfið.
Salbjörg lét eftir sig nokkrar ritaðar frásagnir um
ljósmóðurnám í Reykjavík veturinn 1928 til 1929
og ýmsar ferðir í ljósmóðurstörfum.
Til er ritgerð í óútgefnu handriti sem Sveinn
Víkingur skráði í tengslum við ritun á æviþáttum
og endurminningum íslenskra ljósmæðra. Frá-
sögn Salbjargar birtist þó ekki í ritinu Íslenzkar
ljósmæður sem kom út í þremur bindum 1962-
64, en hér er stuðst við þetta handrit, „Ljósmóðir
á Snæfjalla- og Langadalsströnd – Salbjörg Jó-
hannsdóttir segir frá ljósmóðurstörfum sínum.“
Já, þegar í það óefni var komið að engin
var til að gegna þessum störfum, fór einn
hreppsnefndarmaðurinn þess á leit við mig,
að ég lærði fyrir hreppinn, en ég átti þá
ekki hægt um vik að fara langt að heiman
og færðist undan. Þá var mér tjáð, að ég
mundi verða fengin til þeirra starfa, þó ég
ekki lærði, og hefur það líklega verið af því
að ég hafði verið fengin nokkrum sinnum, í
vandræðum, til að stunda sængurkonur. Ég
sá, að ég myndi ekki geta neitað um mína
lítilfjörlegu hjálp, þótt ólærð væri, svo ég
vildi þá heldur reyna að fara og afla mér
þeirrar þekkingar, sem ég gæti á móti tekið,
og verið þá öruggari. En erfitt var að fara að
heiman frá manni og þremur ungum drengj-
um, sá yngsti þá á öðru ári. En minn ágæti
maður latti mig ekki, heldur hughreysti mig,
og létti það mikið undir með mér að fara frá
heimilinu. Einnig var mitt prýðilega nábýlisfólk
mér hjálplegt á allan hátt.
Þetta var ekki í fyrsta skipti sem Salbjörg var
beðin að fara í ljósmóðurnám. Sigvaldi Kaldalóns
Ljósmóðir á Snæfjalla-
og Langadalsströnd
Engilbert S. Ingvarsson (byggt á frásögnum Salbjargar Jóhannsdóttur)
Ólafur J. Engilbertsson (tók saman í desember 2020)