Ljósmæðrablaðið - des. 2020, Blaðsíða 49
49
lifunina; endalaust álag í vinnu fer illa með mann og
áfallið og áhrifin þegar frá líður. Meginniðurstöður
rannsóknarinnar eru að þátttakendur upplifðu sig
eina í áfallinu, stuðningurinn var takmarkaður og
álag á vinnustað yfirþyrmandi. Alvarlegu atvikin
höfðu bæði áhrif á andlega og líkamlega líðan ljós-
mæðranna. Þær upplifðu höfnun, skort á skilningi
og jafnvel að hafa misst hluta af sjálfum sér, en aðrar
sögðu að reynsla hefði þrátt fyrir allt þroskað þær.
Að yfirgefa starf sitt í kjölfar alvarlegs atviks í starfi
hefur gríðarleg áhrif á líf og líðan ljósmæðra. Skapa
þarf styðjandi og hvetjandi umhverfi fyrir ljósmæður
sem upplifa áföll í starfi og gefa rými til úrvinnslu
og bata.
Lykilhugtök: Ljósmæður, alvarleg atvik, stuðn-
ingur, áföll, fyrirbærafræði.
Abstract
Midwives who work at delivery wards and ex-
perience serious incidents during childbirth are
more likely to leave their profession than those who
have not experienced such incidents. Furthermore,
support after experiencing a serious incident
during work can improve their wellbeing and speed
up their recovery. The purpose of this study was to
investigate how midwives experience leaving their
profession following a serious incident during birth.
The research questions were two; What is midwi-
ves experience of quitting their job as a midwife
at labour wards after serious incident and what is
midwives’ experiences of support after experience
such incident. The research design was qualitative,
using the Vancouver-School of Doing Phenomen-
ology-method. Seven midwives, chosen by pur-
poseful sample and snowball sample, were intervi-
ewed once or twice each by use of a non-structured
interview in a total of twelve interviews. The main
theme identified was named; It stays with you for-
ever. There were seven themes; Support or the lack
thereof; too weak to stand up for myself; to lose a
part of oneself or become yourself again; a learning
opportunity; previous experiences have an effect;
never ending pressure has an effect and the shock
and the impact. The main results are that particip-
ants felt alone during the traumatic event, support
was limited and workplace stress was overwhelm-
ing. The traumatic event had an effect on both
their mental and physical health. They experienced
rejection and a lack of understanding but some
of them were able to use the events for personal
development while others felt like they lost a part
of themselves. Leaving their profession following
a serious incident has a tremendous impact on the
lives and wellbeing of midwives. A supportive and
encouraging environment for those midwives is
important and they need space to process and to
heal after such an incidence.
Key words: Midwives, serious incidents, support,
traumatic events, phenomenology.
Inngangur
Ljósmæður sem vinna við fæðingar upplifa flestar
einhvern tímann á starfsævinni alvarleg atvik í sínu
starfi sem ógna lífi móður og/eða barns. Áhrif og
afleiðingar slíkrar upplifunar eru mismiklar en alvar-
leiki atviksins og útkoma móður og barns hafa mik-
ið að segja (Javid, Hyett og Homer, 2018). Sérstök
áhersla ætti að vera á það að draga úr álagi og
líkum á kulnun í starfi, (Hoffman, 2018). Fjölmargar
rannsóknir hafa sýnt fram á að áhrif slíkra aðstæðna
verða frekar til þess að ljósmæður og fæðingar-
læknar íhuga að yfirgefa starf sitt (Wahlberg, Hög-
berg og Emmelin, 2019; Wahlberg, o.fl., 2016;
Hammig, 2018; Spiby o.fl., 2018; Leinweber, Creedy,
Rowe og Gamble 2017; Whalberg o.fl., 2016). Sam-
kvæmt rannsóknum kemur fram að ljósmæður upp-
lifa mikið álag í starfi sem eykur líkur á því að þær
yfirgefi stéttina, er raunveruleg hætta á skorti á ljós-
mæðrum í flestum löndum og mikilvægt að skoða
hvað hægt er að gera til að sporna gegn þeirri þró-
un (Holland, Tham og Gill, 2018; Spiby o.fl., 2018;
Sheen, Spiby og Slade, 2016).
Ljósmæður verða reglulega útsettar fyrir streitu-
valdandi atvikum eða aðstæðum í starfi sínu og
hafa rannsóknir sýnt að slíkt getur haft áhrif á bæði
andlega og líkamlega heilsu (Cohen, Leykin, Golan-
-Hadari, og Lahad, 2017; Fenwick, Lubomski, Dreedy
og Sidebotham, 2018; Hammig, 2018; Schrøder,
Larsen, Jørgensen og Hjelmborg, 2016; Björg Sig-
urðardóttir og Ólöf Ásta Ólafsdóttir, 2014). Ljósmæð-
ur eru í aukinni hættu á að þróa með sér kvilla eins og
þunglyndi og kvíða og að upplifa kulnun í starfi (Favr-