Ljósmæðrablaðið - des. 2020, Blaðsíða 8
8
Ágnes Geréb
„Fæðingarfrelsi er mælikvarði
á frelsi samfélagsins“
Þegar Ágnes var viðstödd sína fyrstu fæðingu, sem ungur
læknanemi í Ungverjalandi, gerði hún sér strax grein fyrir því
hvað nærvera hennar var mikilvæg konunni. Þetta var and-
vana fæðing og Ágnes fylgdi konunni eftir og studdi hana í
gegnum sorgarferlið. Út frá þessari örlagaríku reynslu ákvað
Ágnes að sérhæfa sig í fæðingar- og kvensjúkdómalækning-
um. Sem nýútskrifaður sérfræðingur varð hún hins vegar fljótt
vonsvikin með þá ómannúðlegu nálgun sem tíðkaðist víðast
hvar í fæðingum. Þessi hugrakka kona gerði það að ævistarfi
sínu að bæta aðstæður kvenna við fæðingar.
Eftir seinni heimsstyrjöld tóku kommúnistar við stjórnartaum-
um í Ungverjalandi. Þá var bundið í lög að allar konur skyldu
fæða á sjúkrahúsi. Ljósmæðrastéttin dó nánast út og fæðingar-
læknar, sem alla jafna voru karlar, tóku á móti börnum í tækni-
væddu umhverfi spítalastofunar. Fæðandi konur höfðu fáa
málsvara. Ágnes svaraði því kalli.
Í upphafi barðist Ágnes fyrir því að konur fengju að hafa stuðn-
ingsaðila sér við hlið í fæðingum en það þótti fráleitt. Eftir að
hafa hleypt maka inn á fæðingarstofu til að styðja konu sína
í fæðingu var henni vísað frá störfum í hálft ár. Þetta var árið
1978 og ekki síðasta brottvísun Agnesar. Í kjölfarið barðist hún
fyrir því að löggjöf í kringum fæðingar yrði breytt og beitti sér
fyrir bættri fæðingarþjónustu fyrir konur, meðal annars með
aukinni upplýsingagjöf, námsskeiðahaldi og auknum val-
möguleikum í barneignarferlinu.
Ágnes stofnaði Sunnyside fæðingarheimilið á tíunda ára-
tugnum. Starf hennar sem fæðingarlæknir var að mörgu leyti
farsælt en smátt og smátt fór hún að skilgreina starf sitt sem
ljósmóðir - hún var við hlið kvenna og studdi þær í eðlileg-
um fæðingum. Þá fór hún að fara inn á heimili fólks og veita
fæðingarhjálp þar. Í upphafi voru þetta örfáar fjölskyldur en
þeim átti eftir að fjölga hratt. Þrátt fyrir að starfsemin væri á
gráu svæði lagalega fékk Ágnes í byrjun að starfa nokkuð óá-
reitt. Þegar fagmennska hennar spurðist út - hún tók á móti
um 200 börnum á ári í heimahúsum - og eftir því sem fleiri
foreldrar lýstu yfir ánægju með sína einstöku reynslu fóru að
renna tvær grímur á stjórnvöld og fæðingarlækna sem fannst
vegið að starfsheiðri sínum. Sagan segir að reynt hafi verið ár-
angurslaust að koma á hana höggi - ef kallaður var til sjúkrabíll
í fæðingu til að flytja konu var líka sendur lögreglubíll. Ágnes
hefur tekið á móti yfir 3.500 börnum í heimahúsi.
Árið 2010 lauk Ágnes formlegu ljósmæðraprófi. Það sama ár
var hún handtekin og flutt á lögreglustöð í handjárnum án
þess að hafa veitt mótstöðu. Hún var ákærð fyrir að hafa sýnt
af sér vítavert gáleysi í þremur fæðingum á tímabilinu 2000-
2007, þar sem börn létust í kjölfar fæðingarinnar. Foreldrar
þessara barna héldu því fram að Ágnes hefði sinnt starfi sínu af
alúð og fagmennsku. Ágnes var svipt ljósmóðurleyfi í 10 ár auk
þess sem hún fékk tveggja ára fangelsisdóm. Málaferlin gegn
Ágnesi vöktu mikla athygli og reiði meðal málsvara heima-
fæðinga um allan heim. Í kjölfar niðurstöðu Mannréttinda-
dómsstóls Evrópu voru heimafæðingar leyfðar í Ungverjalandi
árið 2011. Eftir áralanga baráttu og réttarhöld var Ágnes að
endingu náðuð af forseta Ungverjalands árið 2018. Þegar
sakaruppgjöfin var tilkynnt var haft eftir Ágnesi: „Þessi náðun
snýst um meira en mig. Hún er viðurkenning á fæðingarfrelsi.
Hún er viðurkenning ríkisins á réttindum kvenna til að taka
ákvarðanir sjálfar um fæðingu barna sinna“.
Portrett:
Solveig Pálsdóttir