Ljósmæðrablaðið - des. 2020, Blaðsíða 16
16
Skýrsla stjórnar
Ljósmæðrafélags Íslands
starfsárið 2019-2020
Síðari hluti hundraðasta starfsárs Ljósmæðrafélags-
ins var með afar óvenjulegum hætti vegna heims-
faraldurs COVID-19. Nær allir fundir hafa verið
gegnum fjarfund og ýmsum viðburðum hefur verið
ýmist frestað eða þeir felldir niður. Stjórnin hittist
reglulega á fundum/fjarfundum yfir árið. Haldinn var
einn aukaaðalfundur á haustmánuðum til að kjósa í
kjaranefnd. Edythe Mangindin var kjörin. Kjarabar-
átta félagsins var með allt öðru sniði að þessu sinni
heldur en áður hefur verið. Nú voru 11 félög innan
BHM saman, auk þess voru skipaðir hópar bæði frá
launagreiðendum og launafólki sem stóðu sameig-
inlega að þessari samningagerð. Hópur launagreið-
enda var frá ríki, sveitarfélögum og Reykjavíkurborg.
Bandalög launafólks voru BHM, BSRB, ASÍ og Fíh.
Mjög mikil vinna var lögð í styttingu vinnuvikunnar
og tók þetta ferli allt saman um það bil ár. Því mið-
ur þurfa vaktavinnumenn að bíða eftir að styttingin
komist í gagnið til 1. maí 2021 sem er alltof langur
tími en vinnuveitendur telja sig ekki vera búna að
undirbúa kerfin sín til að halda utan um svo umfangs-
miklar breytingar fyrr en þá svo því varð ekki hnikað.
Þetta er langmesta breytingin sem gerð hefur verið
á vinnumarkaði í 47 ár og loks verður hugsanlegur
möguleiki fyrir vaktavinnufólk á þrískiptum vöktum
að vera í 100% starfi óski fólk þess. Kjarabaráttan sjálf
og samningaviðræður tóku langan tíma – eitthvað
yfir 50 samningafundir voru haldnir á tímabilinu fyrir
utan alla þá fundi sem fóru í vinnutímastyttinguna og
var það unnið í öðrum hópum. Einn stór kjarabar-
áttufundur sameiginlegur með BHM, BSRB og Fíh
var haldinn í Háskólabíó á haustmánuðum.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO tilnefndi árið
2020 sem ár ljósmæðra og hjúkrunarfræðinga. Við
hófum árið þann 16. janúar með sameiginlegum
viðburði Fíh og LMFÍ í Hallgrímskirkju. Síðan var ým-
islegt planað en það þurfti að fara að mestu í bið
vegna COVID. Við stefnum þó að því að hafa þessa
viðburði síðar þegar betur árar. Félagið byrjaði með
Instagramreikninginn ljósmæðralíf og setti auglýs-
ingu á strætisvagn sem keyrði frá Spönginni. Skoð-
anir á því voru misskiptar en í heildina vakti þetta
jákvæða athygli. Auk þessa var útbúið sérstakt lógó
fyrir LMFÍ á ári ljósmóðurinnar sem hefur verið notað
núna 2020.
Erlenda starfið hefur legið niðri að því leyti að
alþjóðaráðstefnu ICM á Balí var frestað um ár eins
og vel flestum öðrum ráðstefnum ársins. Stjórnar-
fundur ICM var engu að síður haldinn á ZOOM og
svo var einnig með NJF fundinn og EMA fundur
var haldinn núna í haust, einnig rafrænn.
Á meðan veiran var að búa um sig í Wuhan lifð-
um við okkar lífi grunlaus með öllu og í desember
2019 hélt félagið jólafund. Gestur fundarins var Sirrý
(Sigríður Arnarsdóttir) fjölmiðlakona. Hún kynnti fyrir
okkur bókina sína - Þegar kona brotnar. Sama dag