Ljósmæðrablaðið - des. 2020, Blaðsíða 41
41
sem árangursrík geðheilbrigðisþjónusta fyrir þenn-
an viðkvæma hóp skiptir miklu máli. Fyrst og fremst
vegna þess að leggja þarf áherslu á þau fjölmörgu
vandamál sem mæðurnar geta staðið frammi fyrir
eins og félagslegri einangrun, aukinni læknisfræði-
legri og fjárhagslegri byrði, auknu svefnleysi og auk-
inni streitu milli foreldranna (Klock, 2004; Wenze og
Battle, 2018).
Stuðningur við tvíburaforeldra og hlutverk ljós-
mæðra
Í þróuðu ríkjunum hefur verið búinn til fjöldinn all-
ur af leiðbeiningum sem tengjast umönnun kvenna
sem ganga með og fæða tvíbura. Umfangsmestu
leiðbeiningarnar sem notaðar hafa verið eru frá
bresku stofnuninni NICE (2019) og hér á landi er
stuðst við þær leiðbeiningar en Landspítalinn hefur
einnig gefið út fjöldann allan af gæðaskjölum sem
ætluð eru heilbrigðisstarfsfólki. Einnig hafa verið
gefnir út svokallaðir fróðleiksmolar Heilsugæslu
Höfuðborgarsvæðisins þar sem m.a. er að finna
vinnuleiðbeiningar sem fjalla um tvíburameð-
göngur þegar um er að ræða meðgönguvernd á
heilsugæslustöð (Heilsugæslan, 2016).
Niðurstöður rannsókna hafa sýnt fram á mikil-
vægi samfellu og samræmis í umönnun kvenna sem
ganga með tvíbura og þarf umönnunarþjónustan
að fela í sér teymisvinnu sérfræðinga sem sam-
anstanda af sérhæfðum fæðingarlækni, sérfræði-
ljósmóður og sónarlækni sem öll hafa reynslu og
þekkingu á fjölburameðgöngum. Íhuga ætti að vísa
flóknum málum til sérfræðinga í fósturlækningum
og huga ávallt að viðeigandi og nákvæmri upplýs-
ingagjöf og tilfinningalegum stuðningi sem þarf til
að draga úr streitu og kvíða (Bricker, 2014; Bryan,
2005).
Konurnar í viðtölunum upplifðu báðar líkamlega
fylgikvilla á tvíburameðgöngum sínum m.a. með-
göngueitrun og meðgöngusykursýki. Þó höfðu
þessir fylgikvillar ekki áhrif á andlega líðan þeirra þar
sem þær upplifðu öryggistilfinningu í meðgöngu-
vernd Landspítalans, sem fól í sér þétt eftirlit með
góðum stuðningi frá ljósmóður og öðru heilbrigðis-
starfsfólki ásamt reglulegum fósturgreiningum. Hér
má sjá tilvitnun frá Erlu:
Ég fann kannski bara einu sinni fyrir því [áhyggj-
um] á þessari meðgöngu. Og mér finnst af því að
það er alltaf verið að tala um áhættumeðganga,
Þrennir tvíburar: Efst frá vinstri eru Sara Henny H. Arnbjörnsdóttir og Rebekka Pálsdóttir en niðri eru Rakel
Pálsdóttir og Klara Jenný H. Arnbjörnsdóttir (höfundur greinar) með þær Hrafntinnu og Móeiði Jónsdætur.