Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - Dec 2020, Page 22

Ljósmæðrablaðið - Dec 2020, Page 22
22 Útdráttur Bakgrunnur: Ljósmæðrastýrðar einingar innan og utan sjúkrahúsa eru að ryðja sér til rúms, sérstaklega síðustu ár, sem valkostur fyrir heilbrigðar konur í eðli- legri meðgöngu. Ljósmæður eru í lykilhlutverki við að fræða konur um val á fæðingarstað en í mæðravernd er unnið eftir klínískum leiðbeiningum sem segja til um að konur eigi að fá faglegar upplýsingar þannig að þær geti tekið upplýsta ákvörðun um fæðingar- stað. Til að geta sinnt fræðsluhlutverki sínu þurfa ljósmæður að hafa aðgang að áreiðanlegum upplýs- ingum um ávinning og áhættur ólíkra fæðingarstaða. Markmið: Að bera saman útkomu kvenna og barna og inngrip í fæðingar hjá heilbrigðum konum í eðlilegri meðgöngu sem ætla að fæða á ljósmæðrastýrðum einingum innan eða utan sjúkrahúsa, við útkomu kvenna sem ætla að fæða á þverfræðilegum fæðingardeildum sjúkrahúsa. Aðferð: Framkvæmd var kerfisbundin, fræðileg samantekt. Gerð var heimildaleit á leitarsíðunum Scopus, Cinahl, PubMed og Proquest. Notuð voru leitarorðin; ljósmæðrastýrð eining (e. midwifery unit), fæðingarheimili (e. birth center), fæðingar- staður (e. birthplace), útkoma (e. outcome) og Útkoma ljósmæðrastýrðra eininga innan og utan sjúkrahúsa Kerfisbundin fræðileg samantekt Outcomes of freestanding midwifery units and alongside midwifery units A systematic review Guðlaug Erla Vilhjálmsdóttir, ljósmóðir, fæðingarvakt Landspítala, Berglind Hálfdánsdóttir, ljósmóðir og dósent við Háskóla Íslands, Ólöf Ásta Ólafsdóttir, ljósmóðir og prófessor við Háskóla Íslands Ritrýnd fræðigrein, tengiliður: gudlauge@simnet.is

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.