Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - Dec 2020, Page 38

Ljósmæðrablaðið - Dec 2020, Page 38
38 Reynsla kvenna af tvíbura- meðgöngu með áherslu á andlega líðan og stuðning ljósmæðra Klara Jenný H. Arnbjörnsdóttir, ljósmóðir, Fæðingarvakt, Landspítala Ingibjörg Eiríksdóttir, sérfræðiljósmóðir, kvennasviði, Landspítala Ólöf Ásta Ólafsdóttir, ljósmóðir og prófessor við Háskóla Íslands Inngangur Meðganga getur haft ýmsar breytingar í för með sér, m.a. líkamlegar breytingar og haft áhrif á félagslegt hlutverk hjóna og fjölskyldna þeirra, sem krefst tilfinningalegra breytinga og aðlögunar að nýjum aðstæðum (Benute o.fl., 2013). Þegar foreldrar fá að vita að börnin séu tvö eða fleiri getur vitneskjan haft meiri áhrif á líðan þeirra en þegar um einbura er að ræða (Benute o.fl., 2013; Bryan, 2002; Klock, 2004). Grein þessi er byggð á lokaverkefni í ljós- móðurfræði þar sem markmiðið var að gera fræðilega samantekt um reynslu kvenna af eineggja tvíburameðgöngu með áherslu á andlega líðan og stuðning ljósmæðra. Eins að skoða andlega líðan þeirra eftir fæðingu og þau mælitæki sem hægt er að styðjast við til að meta einkenni þunglyndis og kvíða á með- göngu og eftir fæðingu. Tekin voru viðtöl við tvær íslenskar tvíburamæður og þau síðan þemagreind í þeim tilgangi að fá innsýn inn í sameiginlega reynslu kvennanna. Tíðni tvíburaþungana hefur aukist á Íslandi frá árinu 1998 sökum þess að núorðið eru fleiri þung- aðar konur eldri þegar þær eignast barn og úr- ræði til að verða barnshafandi hafa aukist (Karítas Ívarsdóttir, Ragnheiður Bachmann og Ingibjörg Eiríksdóttir, 2016). Hlutverk ljósmæðra er fjölbreytt þegar kemur að umönnun þessara kvenna og hefur breska stofnunin National Institute for Health and Care Excellence (NICE) þróað umfangsmiklar leið- beiningar sem notaðar hafa verið hér á landi fyrir ljósmæður og annað heilbrigðisstarfsfólk. Upplýs- ingagjöf og fræðsla skiptir sköpum sérstaklega þar sem hætta er á að konur fái ekki réttar upplýs- ingar í heimi tækninnar og er því nauðsynlegt að tryggja þeim góðar og gagnlegar heimildir. Í með- gönguvernd þurfa ljósmæður einnig að þekkja og meðhöndla líkamlega fylgikvilla sem geta tengst móður og börnum, ásamt því að leggja áherslu á tilfinningalegan stuðning til að draga úr streitu og kvíða sem oft tengjast slíkum áhættumeðgöngum (Bricker, 2014). Fáar rannsóknir hafa hins vegar verið fram-

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.