Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - dec. 2020, Side 46

Ljósmæðrablaðið - dec. 2020, Side 46
46 Einu sinni var stelpa sem kom foreldrum sínum virkilega á óvart þegar hún fæddist heima hjá sér í sveitinni á sum- ardaginn fyrsta árið sem lýðveldið var stofnað. Foreldrar hennar héldu að von væri á einu barni en svo skaust þessi stelpa í heiminn alveg óvænt, sjö mínútum á eftir tvíbura- systur sinni. Þessi stelpa ólst upp í sveitinni við það að eltast við kýr og kindur. Hún átti kanínur, tvær grágæsir, kött og hund. Stelpan hafði mikinn áhuga á flóru íslenskra jurta og safnaði saman í bók þurrkuðum jurtum, sem hún skrifaði fróðleik um. Hún var mikið náttúrubarn og varð hugfangin í hvert sinn sem hún sá ungviði koma í heiminn, hvort sem þau komu úr legi eða eggi. Hún elskaði líka að hlusta á mömmu sína sem talaði svo fallega um fæðingarnar sínar en hún eignað- ist fimm stelpur. Þegar fjölskyldan flutti á mölina fór stelpan í Kvennó, eins og margar ákveðnar og duglegar stelpur gerðu á þessum tíma. Síðar fór hún til Kaupmannahafnar og vann á sængur- kvennagangi á stóru sjúkrahúsi. Þar ákvað stelpan að verða ljósmóðir. Hún vann á Landspítalanum sem ljósmóðir í 25 ár á hinum ýmsu deildum. Í Danmörku kynntist hún vatnsfæðingum og heillaðist af þeim. Hún ákvað að gera allt sem í hennar valdi stóð til að íslenskar konur gætu líka notið þess að fæða í vatni. Sá fæðingarmáti getur auðveldað fæðinguna og gert konum kleift að stjórna fæðingunni sinni sjálfar. Slíkt er valdeflandi og getur gert konur sterkari fyrir lífstíð. Stelpan náði þessu markmiði sínu, þrátt fyrir mótmæli ým- issa fagstétta í ræðu og riti en stelpan vissi alltaf að hún væri að gera rétt. Hún lét mótbárurnar ekki á sig fá og hélt sínu striki. Þegar stelpan tilkynnti Landlækni að vatnsfæðingar væru komnar til að vera á Íslandi, rak hann hana út. En hún fékk líka góðan stuðning frá konum á öllu landinu og einnig frá mörgu samstarfsfólki. Það tók mörg ár að ná takmarkinu að fullu en að lokum voru það konur sem tóku völdin í sín- ar hendur og kröfðust þess að fá að fæða í vatni á stærstu fæðingardeild landsins. Síðustu 14 árin sem stelpan var á vinnumarkaði valdi hún að starfa við heimafæðingar en þar fann hún það andrúms- loft og aðstæður sem hún hafði í raun alltaf verið að leita að. Henni fannst að besta veganesti sem hægt væri veita litlu barni við upphaf lífsins væri að fá að fæðast heima hjá sér í faðm fjölskyldu sinnar. Að vera elskaður af öllum viðstödd- um við upphaf lífsins. Áslaug Hauksdóttir er hugsjónakona og hefur barist fyrir valdeflingu kvenna og rétti þeirra yfir eigin líkama alla sína tíð. Hún hefur verið ötul talskona þess að fordæma lim- lestingar á kynfærum kvenna og stutt sjálfsforræði þeirra varðandi þungunarrof. Hún hefur tekið á móti ótal börnum og sinnt fjölskyldum þeirra á stofnunum og í heimahúsum. Hún hefur einnig verið mikilvæg fyrirmynd og stutt aðrar ljósmæður í námi og starfi. Störf Áslaugar hafa sett mark sitt á barneignarþjónustu á Íslandi og mun arfleifð hennar lifa áfram um ókomna tíð. Áslaug Hauksdóttir er heiðurs- félagi Ljósmæðrafélags Íslands en þrátt fyrir að vera kom- in á áttræðisaldur er hún enn viðloðandi heimafæðingar. Fæðingarnar veita henni nú sem áður kraft og innblástur; að sjá ungviði fæðast við kjöraðstæður í ástríku umhverfi á eigin heimili. Portrett: Sunna María Schram Áslaug Hauksdóttir „Valdeflandi fæðing gerir konur sterkari fyrir lífstíð“

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.