Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - dec. 2020, Side 55

Ljósmæðrablaðið - dec. 2020, Side 55
55 svo alvarleg...það leggur enginn af stað með að meiða aðra manneskju í þessu starfi, þetta verður bara svo alvarlegt ef eitthvað gerist. En fjölmiðlarnir geta dæmt mann. Annað undirþemað nefnist áhrif áfallsins þegar frá líður. Það þema lýsti líðan ljósmæðra sem upp- lifðu að missa styrk sinn, vonleysi og höfðu byggt sér ákveðna varnarmúra áður en þær tóku ákvörðun um að hætta. Þeim fannst erfitt að hugsa til þess að jafnvel í langan tíma höfðu þær ekki fengið þá ánægju út úr starfinu sem þær voru vanar að fá áður en atvikið átti sér stað. Þegar frá leið fannst þeim enn erfitt að hugsa til þess. Sumar vildu einfaldlega gefast upp á öllu, voru áhugalausar um samskipti við aðra og fannst þær ekkert hafa að gefa öðrum lengur. Ég fékk áfallastreituröskun, var endalaust að endurupplifa atburðinn... svitnaði ef ég hugs- aði um þetta, grét af minnsta tilefni, þetta er bara hræðileg tilfinning... Áfallið kemur á svo löngum tíma, það varð alltaf meira eftir því sem tíminn leið. Þetta hafði bara svo mikil áhrif lengi á eftir. Ein ljósmæðranna lýsti líðan þannig að í stað þess að standa ein eftir atvikið hafi hún smátt og smátt byggt upp varnarmúra, byggt upp styrk sinn og sótt í félagsskap sterks fólks sem var henni dýrmætt: Maður er bara duglegur að byggja sér varnar- múra, sem hefur kannski gert það að ég er þessi sterka manneskja sem ég er í dag, ég er ekkert betri en hver annar en ég hef safnað rosalega sterku fólki í kring um mig sem ég get leitað til þegar eitthvað kemur upp á. Þriðja og síðasta undirþemað var, lífið heldur áfram. Þrátt fyrir að ljósmæðurnar legðu áherslu á að lífið héldi áfram þá töluðu þær um að lífið yrði aldrei samt og líktu reynslunni við sár sem aldrei gróa al- veg. Hluti ljósmæðra gat litið jákvæðum augum á reynslu sína og fannst þegar upp var staðið að um væri að ræða reynslu sem hefði gert þær að sterkari einstaklingi. Sumar höfðu náð ákveðinni úrvinnslu og sátt þrátt fyrir allt. Áhrifin á flestar ljósmæðurnar voru þó gífurleg og ekki allar ljósmæðurnar höfðu náð að vinna sig úr áfallinu en fleiri höfðu lagt ferlið að baki og haldið áfram með líf sitt. Atvikið og ferl- ið allt stóð þeim þó enn mjög nærri og hafði sett sitt mark á sálarlíf þeirra og litu á reynsluna sem sár sem aldrei mundi gróa. Ein ljósmóðir lýsti þessu á þennan hátt: Fyrir mig er engin leið til baka, þótt það sé ekki sem ljósmóðir, en bara að fá að lifa, fá að halda áfram með líf mitt... Það er bara svo erfitt að það er ekki hægt að ýta málinu út af borðinu, að maður sé búinn með þennan pakka... þetta lifir með manni, alltaf. Umræður Meginniðurstöður rannsóknarinnar sýna að þær ljósmæður sem fengu góðan jafningjastuðning töldu að hann hefði verið þeim mikilvægastur og hefði skipt mestu máli í því að vinna úr áfallinu. Hins vegar upplifðu sumar ljósmæðurnar mikið stuðn- ingsleysi og að ekkert kerfi hefði farið í gang til þess að styðja þær. Áhrif áfallsins voru veruleg og hamlandi og komu fram í bæði líkamlegum og and- legum veikindum. Þær upplifðu höfnun og skiln- ingsleysi og að ekki væri horft til þeirra sem einstak- linga sem ættu sér sína sögu og sína reynslu. Sumar gátu horft til þessa ferlis sem tækifæri til þroskast og að finna sig sjálfar á ný á meðan öðrum fannst þær missa hluta af sjálfri sér. Ljósmæðurnar upplifðu ekki bara stuðning frá samstarfsfólki og vinnuveitendum heldur upplifðu þær margar mikið stuðningsleysi sem særði þær óumræðanlega. Stuðningurinn gat verið í formi um- hyggju þar sem þær voru spurðar um líðan þeirra eftir að þær hættu störfum, faðmlög frá fyrrverandi samstarfsfélögum og hughreystandi orð. Aftur á móti upplifðu þær einnig að fólk forðaðist þær, að þeim væri ekki heilsað og að þær voru ekki lengur boðnar með þegar ljósmæður hittust utan vinnu. Aðrar rannsóknir hafa sýnt svipaðar niðurstöður svo sem rannsókn Coughlan o.fl., (2017) en þar kemur fram að góður stuðningur getur haft mikil og góð áhrif á meðan skortur á stuðningi getur aukið áfall- ið og afleiðingar þess. Ljósmæður búa við mikla sérstöðu í starfi sem eru mikil og náin tengsl þeirra við þær konur sem þær sinna og það gerir þær að öllu jöfnu berskjaldaðri gagnvart alvarlegri útkomu móður og barns (Javid o.fl., 2018). Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna að ljósmæðurnar höfðu flestar upplifað erfiðar tilfinningar í tengslum við

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.