Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - des. 2020, Síða 69

Ljósmæðrablaðið - des. 2020, Síða 69
69 læknir á Ármúla bað hana að læra fyrir Naut- eyrarhrepp þegar hún var 19 ára, en hún taldi sig ekki manneskju til þess. „Honum fannst ég svo dugleg að ferðast, en mér þótti það nú ekki nóg“, sagði hún í blaðaviðtali við Eðvarð T. Jónsson í Vestfirska fréttablaðinu 1980. Hún fór suður frá Ísa- firði, haustið 1928, með Nóvu, sem var að koma að norðan og með skipinu var margt síldarvinnu- fólk, maður við mann var í lestinni og vont veður á leiðinni. Í áðurnefndri ritgerð segir: Það var haustið 1928, sem ég fór í Ljósmóð- urskólann, þá þrjátíu og tveggja ára að aldri, og varð að fá undanþágu til inngöngu í skól- ann, aldurs vegna, en það gekk greiðlega. Guðmundur Björnsson, landlæknir, sá mæti maður, var aðalkennari í bóklegum fræðum, kendi ljósmóðurfræði fjórar stundir í viku og einnig meðferð ungbarna. Skólinn var til húsa í Tjarnargötu 16, í húsi fröken Þuríðar Bárðardóttur, ljósmóður. Við vorum tíu skólasysturnar, frá öllum lands- hornum. Var hópnum skipt niður milli hinna þriggja lögskipuðu ljósmæðra í Reykjavík og var ég ein af fjórum, sem lentu hjá fröken Þuríði Bárðardóttur, og tel ég mig heppna að hafa notið hennar ágætu kennslu, að hinum ólöstuðum. Það var okkar verklega nám að vera með þeim við fæðingar út um bæinn. Við, þessar fjórar, sem landlæknir ákvað að yrðum með fröken Þuríði, fengum bæði húsnæði og fæði hjá henni. Og það var ágætt að geta haft hvoru tveggja á sama stað og var mjög gott að vera þarna. Eftir vetrardvöl í Reykjavík lauk Salbjörg ljós- móðurnáminu 26. júní 1929 og var skipuð í ljós- móðurembættið í Snæfjallahreppi. Hún var einnig ljósmóðir í Nauteyrarhreppi frá 1944 og þjónaði Reykjarfjarðarhreppi frá 1953 til 1956. Fyrstu ljósmóðurstörfin: Þegar ég var kölluð til fyrstu konunnar, sem ljósmóðir, sagði maðurinn sem sótti mig, að komið hefði verið að fæðingunni, þegar hann fór af stað. Konan hafði verið að koma af engjum og borið tveggja ára barn með sér, en svo ekki komist úr fötunum áður en barnið fæddist. Ég flýtti mér sem mest ég mátti og það tók ekki langan tíma að komast til hennar – það var stutt bæjarleið og við á hestum. Aðkoman var nokkuð einkennileg. Konan liggjandi í öllum fötunum, blautum og ötuðum mýrarrauðu, en kona af næsta bæ hafði bjargað barninu frá köfnun. Og mátti það heppni heita, að konan sem var að fæða, gat kallað í dreng og hann svo kall- að á nágrannakonu til hjálpar. Fylgjan var ókomin þegar ég kom, en mitt fyrsta verk var að fjarlægja óhreinindin. Eins og allt var í pottinn búið, gat ég nú búizt við alvarlegum afleiðingum, en Guð gaf að konu og barni heilsaðist vel. Fjölskyldan á Lyngholti haustið 1929 þegar Salbjörg Jóhannsdóttir var nýkomin úr ljósmóðurnámi. Hún og Ingvar Ásgeirsson sitja fremst með Engilbert Sumarliða, tveggja ára (f. 1927). Aftar standa Jón Hallfreð (f. 1921) og Ásgeir Guðjón (f. 1919). Dóttirin Jóhanna Sigrún er ekki fædd (f. 1933). Ljósmynd: Simson, Ísafirði.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.