Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - Dec 2020, Page 83

Ljósmæðrablaðið - Dec 2020, Page 83
83 Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða (nú Þjónustu- miðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða) falið verkefnið. Reykjavíkurborg tók að sér að veita allt að 50 umsækjendum þjónustu og búsetuúrræði í senn. Vorið 2014 var samið um aukinn fjölda um- sækjanda, alls 70, í þjónustu hjá Reykjavíkurborg. Sumarið 2015 jókst sú tala upp í 90 manns og varð sú breyting á að gert var ráð fyrir að Reykjavíkurborg tæki bæði við einstaklingum og a.m.k. 5 fjölskyld- um. Umfang þjónustunnar við umsækjendur hefur vaxið ört síðan þá. Árið 2017 var samningur kominn upp í 200 manns og skv. núverandi samningi á að þjónusta 220 manns sem gildir út árið 2020. Í samningnum felst m.a. að útvega umsækjend- um húsnæði (rúmlega 60 búsetuúrræði í dag) sem eru víðsvegar um borgina. Þjónustuaðili greiðir um- sækjanda framfærslueyri á meðan hann nýtur þjón- ustu sveitarfélagsins. Til framfærslu heyra matvörur, hreinlætisvörur o.fl. Þjónustuaðili greiðir fyrir hús- næði, rafmagn og hita sem og skólavist fyrir börn. Afar mikilvægt er að koma sem fyrst á reglu um að börn umsækjenda um alþjóðlega vernd, fái forgang sem fyrst að leikskóla- eða grunnskólagöngu því streita forsjáraðila bitnar oftast á börnunum. Þá er einnig önnur þjónusta í boði, svo sem aðstoð vegna heilbrigðistengdrar þjónustu, túlkaþjónustu, ýmis konar ráðgjöf, samgöngukort o.fl. Mikilvægt er að mæta fólki þar sem það er statt því við vitum aldrei úr hvaða aðstæðum það kemur. Menningarnæmi er grundvöllur fyrir vinnu með hóp- um og einstaklingum í okkar starfi. Menningarnæmi felst meðal annars í þekkingu á eigin fordómum og að setja sig inn í aðstæður einstaklinga af öðru þjóð- erni, öðrum kynþætti og menningaruppruna með opnum huga ásamt því að afla sér þekkingar á ólík- um siðum og trúarbrögðum. Markmið teymisins er að veita umsækjendum þjónustu sem stuðlar að vellíðan, valdefla þá og styrkja þessa einstaklinga svo þeir geti tekist á við sín verkefni, hvort sem það er að byggja upp nýtt líf á Íslandi eða fara aftur til annarra landa eða heimarík- is. Félagsleg ráðgjöf, stuðningsþjónusta, stuðningur inni á heimili, fjölbreytt virkni og gott samstarf við aðrar stofnanir og félagasamtök eru undirstaða þess að ná fyrrgreindum markmiðum. Markmiðið með félagslegri ráðgjöf fyrir umsækj- endur er fyrst og fremst að beita heildarsýn þegar unnið er að málum einstaklings. Afar mikilvægt er að nota styrkleikanálgun og valdeflingu þannig að hægt sé að bæta lífsgæði einstaklings á meðan mál hans er í vinnslu til að undirbúa hann fyrir næstu skref. Áhersla er lögð á að koma í veg fyrir félagslega ein- angrun með því að virkja einstaklinga í daglegu lífi en einnig til að bæta lífsgæði einstaklingsins með betri líkamlegri og andlegri líðan. Ýmis virkniúrræði hafa verið hjálpleg til að efla umsækjendur og ber þar helst að nefna myndlistarnámskeið, tónlistarsmiðjur, tungumálakennslu, líkamsrækt og fleira mætti nefna. Hafa ber í huga að það getur tekið tíma að vinna traust fólks. Margir koma frá löndum þar sem mikil spilling er í opinbera kerfinu og erfitt er að treysta því sem sagt er. Hér er ekki um einsleita hópa að ræða, heldur hópa sem hafa mismunandi skoðanir, viðhorf, þekkingu og færni. Þjónusta við barnshafandi konur og mæður ungbarna Útlendingastofnun sér um fyrstu læknisskoðun við komu til landsins og almenna heilbrigðisþjónustu meðan á málsmeðferð stendur, þar með talið mæðra- og ungbarnaeftirlit, þar til Reykjavíkurborg tekur um- sækjanda í sína þjónustu. Eftir að umsækjandi er kom- inn í þjónustu Reykjavíkurborgar sér þjónustuaðili um að aðstoða umsækjanda við að panta tíma hjá göngu- deild sóttvarna og hælisleitenda á heilsugæslu höfuð- borgarsvæðisins (HH) í Mjódd. Samkvæmt samningi sem UTL og HH hafa gert með sér er sérstaklega talið upp að mæðra, ung -og smábarnavernd séu hluti af veittri heilbrigðisþjónustu heilsugæslunnar eftir fyrstu læknisskoðun. Þetta er hluti af þeim samningi sem er í gildi á milli stofnanna UTL og HH. Þegar konur eru barnshafandi fara þær í sína fyrstu mæðraskoðun á Sólvangi í Hafnarfirði. Eftir að þær verða notendur þjónustu í okkar teymi hjá Reykja- víkurborg er bókuð mæðravernd hjá heilsugæslu þess hverfis sem viðkomandi kona býr í. Eftir fæðinguna fá nýbakaðar mæður mikla og góða þjón- ustu frá ungbarnaeftirlitinu. Okkar teymi hefur átt í farsælu samstarfi við starfsmenn ungbarnaeftirlits- ins. Sú hugmynd hefur komið upp að gott væri að formgera samstarfið og samvinnuna enn betur t.d. með sameiginlegum fundi þar sem nýbökuð móðir, ljósmóðir og málstjóri hittast formlega. Á þeim fundi

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.