Bændablaðið - 08.10.2020, Page 24

Bændablaðið - 08.10.2020, Page 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 202024 LÍF&STARF Tryggvi Gunnarsson skipstjóri, sem gjarnan er kenndur við Flatey á Breiðafirði, er ófaglærð- ur hagleiksmaður og hefur unnið öll helstu verk er tengjast hús- byggingum. Tryggvi er nú búsettur á Seyðisfirði þar sem hann hefur undanfarið staðið í endurbótum á húsi sem hann keypti þar. Hann hefur velt fyrir sér hvernig megi minnka flækjustig við endurnýj- un húsa og nýbygginga með því að einfalda regluverk, án þess þó að slakað sé á byggingarkröfum. Tryggvi hefur sett saman til- lögur að breytingum á núgildandi byggingar reglugerð sem lagðar hafa verið fyrir þar til bær ráðuneyti, en vildi gjarnan sjá almenna umræðu og jafnvel fleiri tillögur til bóta. Hann hefur sent Bændablaðinu þessar til- lögur sínar með von um að þær veki umræðu, meðal annars hjá bændum sem þurfa stöðugt að vera í viðhaldi og byggingu húsa fyrir sína starf- semi. Hann leggur þó áherslu á að hvergi verði slakað á kröfum um gæði bygginga. Byggingarreglugerðin er í sjálfu sér ekki kolómögulegt plagg „Hafa þarf í huga þegar tillögurnar mínar eru lesnar, að á bak við þær stendur núgildandi byggingar- reglugerð, sem er í sjálfu sér ekki kolómögulegt plagg en vonandi ber okkur gæfa til að laga hana svolítið til þannig að hún virki hvetjandi en ekki letjandi inn í samfélag okkar.“ Keypti Barbapabbahúsið – Hver er aðdragandinn að þessum tillögum þínum? „Jú, ég keypti Barbapabbahúsið, eins og það er stundum kallað hér á Seyðisfirði, og er búinn að taka það í nefið hvað endurbætur varðar. Það er komið nýtt rafmagn, frárennsli neysluvatns og hitalagnir, inn- réttingar og svo framvegis. Húsið er tvær hæðir og í því tvær samþykktar íbúðir. Ég hef gert þetta mest sjálfur en notið aðstoðar við klæðningu utan- húss sem er á lokasprettinum og Barba pabbi blessaður því að hverfa á næstu dögum. Ég nota símann óspart ef einhverjar spurningar vakna og tek þá myndir og spjalla við kunningjana (faglærða) í kjöl- farið og fæ góð ráð. Ég hef gaman af svona stússi, eins og svo margir, og vil skila frá mér góðu verki. Í dag búum við fjölskyldan á efri hæðinni og höfum bestu leigjendur sem hugs- ast getur á þeirri neðri. Auðvitað er ýmislegt eftir en stóra myndin er við það að líta dagsins ljós.“ Vill draga úr skriffinnsku og minnka flækjustig og kostnað „Með þessum tillögum langar mig til að gera einstaklingum auðveldara að koma sér þaki yfir höfuðið á sínum leigu- eða eignarlóðum og bændum möguleika á að byggja bú sín upp á þeirra hraða og nýta þá verkkunnáttu sem svo margir búa yfir. Við upplifum nú tíma sem eru harla óvenjulegir vegna heimsfar- aldurs og tel ég því mikilvægt að nýta nú sem aldrei fyrr alla þekkingu og verkkunnáttu hvers einasta einstak- lings til uppbyggingar og sjálfbærni landi okkar til heilla. Best væri að draga úr skriffinnsku og minnka flækjustig ef þú hyggst byggja fyrir sjálfan þig til eigin nota. Tel einnig að með þessum tillögum megi draga úr beinum kostnaði og einstaklingar fái að njóta þess að vera á góðu kaupi hjá sjálfum sér til uppbyggingar á svo mörgum sviðum. Fjöldi bygginga hefur verið byggður í gegnum árin af hugviti og elju einstaklinga og langar mig að nefna eitt dæmi til gamans. Gamla Ríkið á Seyðisfirði var á dögunum afhent af ríkinu bæjaryfirvöldum til uppgerðar og varðveislu ásamt veglegri fjárhæð sem meðgjöf til endurbótanna. Þetta fallega og merkilega hús er byggt kringum mastur af franskri skútu, stendur enn og vonandi um ókomin ár,“ segir Tryggvi Gunnarsson. Hann leggur til á minnisblaði eftirfarandi breytingar á byggingarreglugerð: Tillögur um breytingar á byggingarreglugerð „Eftirfarandi eru tillögur mínar um breytingar á gildandi byggingar- reglugerð vegna bygginga einstak- linga á mannvirkjum á eigin lóðum og jörðum. Eftirtaldir aðilar/mannvirki verði undanþegin byggingarleyfi en þó ávallt leyfisskyld: Einstaklingar á leigu- og einkalóðum: • Eitt hús til eigin nota með að hámarki 2 samþykktar íbúðir þar sem önnur íbúðin er ætluð til útleigu. • Bílskúrar + vinnustofur + gesta- hús + gróðurhús + geymslur og einnig frístundahús á annarri lóð eða landi í hans eigu. Bændur og jarðaeigendur: • Eitt hús til eigin nota, að hámarki 2 samþykktar íbúðir þar sem önnur íbúðin er ætluð til útleigu eða til að hýsa starfsfólk. • Gripahús + vinnustofur + bíl- skúrar + vélageymslur + gróð- urhús og hús til ferðaþjónustu + bátaskýli + veiðihús + önnur hús er nýtast starfsemi innan viðkomandi bújarðar og einnig frístundahús á annarri lóð eða landi í hans eigu. Undanþága við byggingar til eigin nota „Skilyrði fyrir undanþágu frá bygg- ingarleyfi verður m.a. að eignin verði ekki seld innan 2 ára frá því að byggingu er lokið að fullu sam- kvæmt lokaúttekt þar til hún er seld að fullu eða að hluta til þriðja aðila. Sé það gert fyrr skal veita undanþágu vegna sérstakra aðstæðna (t.d. vegna fráfalls eða veikinda innan nánustu fjölskyldu) er upp kunna að koma. Þá skal fara fram úttekt á því sem búið er að framkvæma af viðkomandi byggingaryfirvöldum sé mannvirki óklárað og hafi lokaúttekt ekki farið fram. Undanþágu veitir t.d. viðkom- andi sveitarstjórn. Með þessu ákvæði er tryggt að viðkomandi mannvirki sé byggt til eigin nota en ekki til endursölu.“ Einstaklingum verði gefið færi á að byggja í áföngum „Gefa verður einstaklingum færi á að byggja í áföngum (á sínum hraða) umræddar byggingar, þó með þeim hætti að gætt sé fyllsta öryggis og ekki stafi hætta af framkvæmdinni á mismunandi byggingarstigum. (Sökklar, plata frágangur lóðar með öllu sem til þarf, bygging fokheld, lokafrágangur að innan o.s.frv.) Upplýsingatækni verði nýtt eins og kostur er til að sannreyna verklag og frágang ýmissa atriða bygging- anna, t.d. með myndum úr farsíma á sannanlegan hátt. Þau gögn mætti hafa til hliðsjónar við úttektir mismunandi byggingar- stiga. Ekki er slakað á neinum kröfum skv. gildandi byggingarreglugerð hverju sinni, né í gæðum úttekta á mismunandi byggingarstigum.“ Ávallt í skjóli þar til bærra hönnuða og iðnmeistara „Viðkomandi eigandi lóða, bújarða og annars jarðnæðis má vinna við byggingu eða breytingar, alfarið eða að hluta, fyrrnefndra mann- virkja á lóð eða landi í hans eigu, þó ávallt í skjóli þeirra hönnuða og iðnmeistara sem krafist er enda beri þeir ábyrgð á verkþáttum hver á sínu sviði. Húsbyggjandi, hönnuðir og meistarar hafi allir virkt eftirlit með því að fullnægjandi verklagsþættir séu framkvæmdir eins og kveðið er um í gildandi byggingarreglugerð hverju sinni. Með þessu er komið til móts við þann hóp einstaklinga sem með verkkunnáttu sinni geta unnið við byggingar og breytingar mannvirkja til eigin nota, á lóðum, bújörðum og öðru jarðnæði í þeirra eigu. Þó ávallt í skjóli viðurkenndra hönnuða og iðnmeistara sem bera ábyrgð á verkþáttum hver á sínu sviði. Einnig að draga úr kostn- aði fyrrnefndra einstaklinga við byggingar í eigin þágu með vísan til ofanritaðs. Með vísan til ofanritaðs er einstak lingi heimilt að byggja í eigin nafni eða í nafni félags í meirihluta- eigu hans og nánustu fjölskyldu á bújörðum (ættaróðölum) og öðru jarðnæði fasteign til eigin nota án þess að krafist sé byggingarleyfis. Þetta ætti einnig við um óskylda aðila sem nýta, reka saman og halda heimili á sömu bújörð í meirihluta- eigu þeirra á ársgrundvelli eða hluta úr ári,“ segir Tryggvi í tillögum sínum. /HKr. Tryggvi Gunnarsson ásamt dóttur sinni, Gunnhildi Jöru. Hún ætlar meðal annars að verða „lagaramaður“ eins og pabbi þegar hún verður stór. Myndir / Úr safni Tryggva Barbapabbahúsið á Seyðisfirði sem Tryggvi keypti. Það er nokkuð augljóst af hverju húsið fékk þetta nafn. Tryggvi á fullu við lagfæringar á húsinu. Einkennismynd hússins, Bar- bapabbinn, að hverfa undir klæðn- ingu. Barbapabbahúsið áður en Tryggvi hóf að gera á því endurbætur. Búið að klæða húsið og endurbætur utanhúss langt komnar. Tryggvi Gunnarsson frá Flatey vill að fólki verði auðveldað að koma sér þaki yfir höfuðið: Leggur til að byggingarreglugerð verði breytt til að draga úr skriffinnsku og kostnaði – Samt verði ekki slakað á kröfum um byggingu og viðhald húsa né opnað á neitt fúsk í greininni

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.