Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 45

Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 2020 45 LANDSSAMTÖK SKÓGAREIGENDA Hvað er eiginlega þetta kolefni? Kollegi minn fékk þessa spurn- ingu einu sinni, hálfpartinn í gríni held ég. Og þó. Til að hafa sæmilegan skilning á frumefninu kolefni þarf maður helst að hafa setið háskólakúrsa í lífefnafræði, sem fæstir hafa gert. Vegna sér- stakra eiginleika kolefnisatóma, umfram önnur frumefni, við að mynda tengingar við önnur atóm fær kolefni þá sérstöðu að heilu fræðigreinarnar fjalla eingöngu um það. Sumir segja að kolefni sé undirstaða lífs. Mér finnst réttara að segja að líf sé einn eiginleika kolefnis. Líf er sú birtingarmynd kolefnis sem við höfum hvað mestan áhuga á, enda erum við lífverur. Þó er mun meira kolefni í efnasamböndum utan lífríkisins, t.d. í koltvísýringi (CO2) og metani (CH4) sem eru gastegund- ir, eða í kalksteini eða silfurbergi (CaCO3) sem er grjót. Ekki er síður mikið kolefni í hafinu, t.d. í formi uppleysts CO2, í skeljum dýra og í seti. Þegar talað er um kolefnisforða er átt við að kolefni finnist í mismun- andi formi, í mismiklu magni og á mismunandi stöðum. Koltvísýringur og metan mynda aðalkolefnisforða andrúmsloftsins. Kolefnisforðar á yfirborði jarðar eru einkum í lifandi og dauðum lífverum og í jarðvegi og vatni í margs konar efnasamböndum. Neðanjarðar eru stórir kolefnisforðar í kolum, olíu og jarðgasi sem er lífrænt kolefni úr fornum skógum eða seti. Stór hluti kalksteins í heiminum er einnig upprunninn í lífríkinu, úr skelj- um í sjávarseti og fornum kóralrifjum. Kolefni færist á milli þessara forða og er þá talað um kolefnishringrás. Ljóstillífun í laufblöðum plantna nýtir sér CO2 úr andrúmsloftinu og vatn neðan úr jarðveginum sem hráefni og sólarljós sem orkugjafa til að búa til sykrusameindina glúkósa (C6H12O6), sem er keðja kolefnisatóma með súrefnis- og vetnisatóm tengd við á ákveðinn hátt. Glúkósa nota síðan aðrar frumur plantnanna til að búa til aðrar kolefnissameindir, t.d. til að mynda stoðvefi (við), forðanæringu (fjölsykrur og fituefni), amínósýr- ur (sem mynda prótein), kjarnsýrur (erfðaefni) og fleiri lífrænar sameind- ir. Þar með er búið að færa kolefni úr forða andrúmsloftsins í forða lífrík- isins. Þar heldur það svo áfram að flæða. Sumt endar í jarðvegi þegar smárætur vaxa þar um og drepast síðan. Sumt færist yfir í dýr þegar þau éta plönturnar og svo önnur dýr sem éta þau. Við orkumyndun lífvera, sem er í raun hægur bruni á lífrænum kolefnissamböndum, losnar kolefni aftur út í forða andrúmsloftsins sem CO2. Það gerist einnig þegar líf endar og sveppir, bakteríur og aðrar rotverur taka til við niðurbrotsiðju sína. Svipaðar tilfærslur er hægt að lýsa á milli annarra kolefnisforða en ég læt duga að nefna eina. Það er sú tilfærsla sem á sér stað þegar maðurinn færir gamalt og vel geymt kolefni úr neðan- jarðar kola- og olíuforðum, brennur það sem orku- gjafa og úr verður CO2 sem bætist í forðann í andrúmsloftinu. Allt eru þetta nátt- úrulegir ferlar. Á undan- förnum 200 árum hefur athafnasemi mannsins hins vegar aukið hraða tilfærslna á kolefni á milli forða. Við það hafa sumir forðar minnkað en aðrir stækkað. Kola- og olíuforðinn í jarðlögum hefur verið fluttur upp í andrúmsloftið með milligöngu iðnaðar og farartækja. Stærsti forði kolefnis í lífi á landi, viður trjáa, hefur verið rýrður mjög verulega með skógareyðingu og það kolefni hefur sömuleiðis endað sem CO2 í andrúmsloftinu að mestu. Við ósjálf- bæra akuryrkju, ofbeit búfjár og jarðvegsrof rýrnar kolefn- isforði jarðvegs og endar einnig uppi í loftinu að mestu. Sömuleiðis færist kolefni úr kalksteini upp í andrúmsloftið við sementsvinnslu. Vandamálið er að allt hefur þetta verið á einn veg, einstefna upp í loftið. Uppsöfnun CO2 í andrúmsloftinu hefur verið mæld árlega síðan 1958. Á þeim 62 árum hefur magn þess aukist um þriðjung. Ekki nóg með það heldur hefur hert á aukningunni jafnt og þétt. Þetta er nú farið að hafa aðrar mælanlegar afleiðingar, einkum á hita. Skýringuna á því má finna á veraldarvefnum og því sleppi ég henni hér, en niðurstaðan er sú að aukið magn CO2 í andrúmsloftinu veldur hlýnun í neðri lögum þess. Afleiðingar þess eru bráðnun jökla, hækkandi sjávarborð og öfgakenndari breytileiki í veðri – þurrkar verða þurrari, stórrigningar verða stærri, stormar verða sterkari, hitabylgjur verða heitari og jafnvel kuldaköst kaldari. Ekki er síður alvarlegt að aukinn styrkur CO2 í andrúmsloftinu þýðir að meira af því leysist upp í hafinu og veldur þar súrnun í gegn- um ákveðin efnahvörf. Það er aftur slæmt fyrir skeljamyndun svifdýra og kórala sem getur haft mjög nei- kvæð áhrif á allt lífríki sjávar. Það eru ekki síst slæmu fréttirnar fyrir okkur Íslendinga. Til að stemma stigu við verstu afleiðingum aukningar CO2 í and- rúmsloftinu er nauðsynlegt að gera tvennt: draga úr losun og efla leiðir til að snúa einstefnunni við, þ.e. að draga CO2 niður úr andrúmsloftinu. Nærtækasta og skilvirkasta leiðin til þess er með skógrækt, að vernda þá skóga sem fyrir eru, rækta nýja og að auka vöxt þeirra. Þannig er að langstærstur hluti þess kolefnis sem tekinn er úr andrúmsloftinu með ljóstillífun fer í að byggja stoðvefi trjáa, en kolefni er um 40% af massa trjáviðar. Í bolum stórra trjáa er því kolefnisforði sem getur verið bundinn þar í marga áratugi eða aldir. Eftir því hvernig sá viður er síðan nýttur getur kolefnið í honum verið bundið mjög lengi í viðbót, t.d. í byggingum. Annar hluti kolefnisins endar í jarðveginum eins og fyrr sagði. Þar getur það verið bundið í aldir og árþús- und- i r s v o fremi að ekki verði jarð- vegsrof. Almennt gildir að gróður þar sem lífmassi eykst ár frá ári, eins og í vax- andi skógi, er einnig að skila kolefni til jarðvegarins og því meira eftir því sem vöxturinn er meiri. Kolefnisbinding með skógrækt er tvímælalaust örugg og góð leið til að binda CO2 úr andrúmsloftinu til langs tíma. Það hlutverk skóga fer líka vel saman við annan ágóða skógræktar svo sem jarðvegsvernd, útivist og timburframleiðslu. Nú er bara að bretta upp ermar og fara að gróðursetja. Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri Hvað er kolefnisbinding með skógrækt? Þröstur Eysteinsson. Finnsk gæði sem henta vel fyrir íslenskar aðstæður VETRARBÚNAÐUR HILLTIP Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík 551 5464 / wendel.is Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020 eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is Skipholt 50b, 105 Reykjavík Vegna aukinnar eftirspurnar óskum við eftir bújörðum á söluskrá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.