Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 56

Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 56
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 202056 MATARKRÓKURINN LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR „Við keyptum Kringlu árið 2015, af frænku Arnars og hennar manni, og Svalbarð af frænda Arnars,“ segir Fjóla Mikaels­ dóttir. „Við keyptum um 350 rollur af þeim en höfum aðeins fjölgað. Við ákváðum að prufa að taka nautgripi til eldis og breyttum helmingnum af fjósinu í stíur með steyptum bitum og planið er að breyta hinum helm­ ingnum líka svo allt fjósið nýtist. Þessi ár hafa ekki alveg farið eins og lagt var upp með í byrjun en til stóð að byggja við fjárhúsin o.fl. en þar sem sauðfjárræktin er ekki að gefa mikið af sér höfum við frestað því aðeins. Okkur líður vel hér og unum vel við bústörfin, en við vonum bara að meðalverð fyrir kjöt fari að hækka svo bændur á Íslandi þurfi ekki enda­ laust að berjast í bakka til að halda búum á floti,“ segir Fjóla. Býli: Kringla. Staðsett í sveit: Miðdalir í Dalabyggð. Ábúendur: Arnar Freyr Þorbjarnar­ son og Fjóla Mikaelsdóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Við eigum 4 börn; þau Jasmín, 13 ára, Mikael, 11 ára, Nadíu Rós, 7 ára og Jóel Stein, 3 ára. Á bænum búa einnig hundarnir Smali, Nocco og Nagli. Allir af smalahundakyn­ inu Border Collie. Kettirnir Hemmi og Nonni (Manni stakk af og fann sér annað heimili í sveitinni) og svo eru tvær kanínur sem njóta góðs af grænmetisafgöngum heimilisins. Stærð jarðar? Jarðirnar eru tvær samliggjandi, Kringla og Svalbarð, og eru um 600 ha samtals. Gerð bús? Við erum með sauðfjárbú og ölum einnig nautgripi. Fjöldi búfjár og tegundir? Það eru rúmlega 500 fjár, um 25 naut, fimm geitur og nokkrir hestar. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Á haustin er mest verið að smala og sækja rollur hingað og þangað, velta fyrir sér líflömbum og huga að vetrinum. Það þarf að gefa nautunum á hverjum degi allt árið um kring en annars eru áherslurnar breytilegar eftir árstíðum og vinnudagarnir mjög fjölbreytilegir. Skemmtilegustu/leiðinleg­ ustu bústörfin? Það er held ég skemmtilegast að sinna sauðburði og smalamennskum en annars er allt skemmtilegt þegar vel gengur. Það er ekki mikið leiðinlegt við bústörfin sjálf en bókhaldið og tölvuvinnan sem fylgir þessu mætti alveg missa sín. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Vonandi verður allt með svipuðu sniði, komnar hænur og endur og búið að klára þær framkvæmdir sem eru á listanum langa. Hvar teljið þið að helstu tæki­ færin séu í framleiðslu íslenskra búvara? Það eru ótal tækifæri á ýmsum stöðum sem auðvelt væri að framkvæma. Regluverkið þarf bara vinna með okkur, bæði í matvörum sem og handverki. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Hér eru náttúrlega tveir ísskápar yfirleitt fullir af mat, en rjómi og rjómaostur er það sem er alltaf til og margir hlæja sem þekkja okkur því þetta er yfirleitt eins og lager hjá MS. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Ætli það sé ekki auð­ veldast að segja lamb og naut því það er hægt að gera svo fjölbreytta rétti úr því. En annars held ég að enginn eigi sama uppáhaldsmatinn hér á bæ. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Já, það stendur upp úr núna þegar Arnar velti 3 ára gömlu dráttarvélinni í sumar með rúllusam­ stæðunni aftan í og allt ónýtt og karl­ inn bakbrotinn, en sem betur fer fór ekki verr. Við erum ótrúlega þakklát öllu góða fólkinu í kringum okkur sem var boðið og búið að stökkva til og hjálpa okkur, takk allir! Acai-skálar og vegan-vöfflur Auðvelt er að gera skál með berja­ mauki, ávöxtum og öllu uppá­ haldshráefninu þannig að hún líkist svokallaðri „acai skál“. Þetta er gómsætur matur fullur af andoxunarefni og hollri fitu og ef þið gerið þetta heima er hægt að nálgast þetta hvenær sem hentar, fyrir brot af verði sem slíkt myndi kosta úti í búð. En hvað er „acai“? Fyrir það fyrsta, þá eru acai­berin ólík mörgum ávöxtum og berjum sem innihalda mikið af sykri og lítið af fitu. Acai­berin innihalda í raun nokkuð meira af fitu en lítið af sykri. Uppruni þessarar „skálar“ er í Brasilíu, hún samanstendur af frosnum „acai­ávöxtum“ sem eru maukaðir og bornir fram sem „smoothie“ í skál eða glasi. Í Brasilíu eru acai­skálar venju­ lega toppaðar með granola, ban­ ana og guaraná­sírópi. Nokkur önnur afbrigði er þó að finna um allt land, þar á meðal acai­skálar toppaðar með tapioka­kúlum og saltari útgáfu sem er toppað með rækju eða harðfiski. Með hjálp frá samfélagsmiðl­ um hafa acai­skálar orðið vinsælar, þökk sé skærum lit þeirra og úrvali af hráefni. Acai­skála hráefni: › Gott er að nota hreint ósykrað acai-mauk. Ef þú finnur það ekki þá er líka acai-duft í boði. › Frosin bláber og jarðarber - Sem betur fer bragðast acai frábærlega með nánast hvaða ávöxtum sem er. Sem sagt, það bragðast sérstaklega dásamlega með frosnum berjum. Í raun gengur hvaða blanda sem er, með bláberjum, jarðarberjum eða brómberum. › Banani - Helst frosnir, bananar eru náttúrulega ofursætir og ofurkremaðir (svo innihalda þeir líka kalíum!). › Vökvi - Já, þú þarft einhvers konar vökva til að koma hlutunum áfram. Ég bætti við mjólk til að auka prótein-up p örvunina, en ekki hika við að bæta við ykkar eigin uppáhalds ávaxtasafa. › Jógúrt - Jógúrt er góð í skálina, en hentar kannski ekki öllum. Acai-skálar Hráefni › Hráefni sem fallegt er að skreyta með › Granola › Fræ › Hnetur › Ferskir niðurskornir ávextir › Skál fyllt með þykkum og sléttum acai smoothie Aðferð Búðu til þessa acai­skál í þessum einföldum skrefum: Frystið ávextina ykkar eða kaupið frosna. Þegar búið er að frysta ávextina eru þeir settir í stóran blandara, þá mjólkin, síðan jógúrtin og loks er frosnum bláberjum, jarðarberjum, banana og acai­berjamauki bætt við. Gott er geyma í frysti þangað til það kemur að því að njóta þess, eða gera nokkra skammta í einu og geyma í frysti. Skreytið svo skálina eins og þið viljið hafa hana til að fara beint á Instagram; falleg ber, banani, stökkt granola, hnetusmjör. Sumir vilja jógúrt eða skyr á toppinn. Auðveldar vegan-vöfflur – sem auðvelt er að breyta í vegan-borgara Hráefni › 60 g hafrar › 60 g kínóa › 120 g sojamjólk › 30 g hlynsíróp (má sleppa í vegan borgarann) › 1 tsk. lyftiduft Fyrir sætar vöfflur › 1 dós kókosmjólk › 40 g hlynsíróp › 1 tsk. vanilluþykkni › skreytið með berjum og banana Aðferð 1. Breyttu höfrum og kínóa í eins konar „hveiti“ og blandaðu síðan saman við allt annað hráefni til að gera vöfflur. 2. Bakið með vöfflujárni á meðal­ hita í 3–5 mínútur á hvorri hlið. 3. Blandið saman kókosmjólk, hlynsírópi og vanillu og setjið í rjómasprautu. Vegan vöffluborgari Takið sama grunninn og bætið krydd­ jurtum og smá hvítlauk við, ásamt salti og pipar eftir smekk Mikið framboð er af vegan hamborg­ urum sem er gott að steikja og fram­ reiða á vöfflu með uppáhalds íslenska grænmetinu og vegan chili­majó. Bjarni Gunnar Kristinsson matreiðslumeistari Kringla Jóel Steinn. Nadía Rós. Jasmín og Mikael.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.